Ein hönd.
Fastur seðill (91 mm x 133 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Skáld-Helga rímur. Úr rímnabók, membrana, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli.“
Með hendi sr. Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 10 og 11.
Í AM 477 fol., eru að auki nefndar undir númerinu AM 606 4to Rímur af Andra jarli, Hjálmþérs rímur og Rímur af Ormari Framarssyni, sem nú vantar en hafa að því er virðist einnig verið með hendi Jóns Sigurðssonar eldri.
Árni Magnússon fékk handritið úr rímnabók frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. september 1977.
Tekið eftir Katalog II , bls. 11 (nr. 1537). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 29. ágúst 2001.