Vantar aftan af uppskriftinni sem endar á miðri síðu 9v. Bl. 10 upprunalega auður seðill.
Á bl. 10 er ferskeytt vísa með sérstakri hendi. Vigfús Jónsson, Flatey á Breiðafirði, 1701, stendur undir henni.
Band frá desember 1988.
Fastur seðill (163 mm x 109 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Af Pétri (eins greifasyni af Provincia) og einni konungsdóttur af Neapel sem hét Mgl [Magelóna]: hin fagra: útlögð úr fransisku máli á þýsku. Byrjast: Þá datum skrifaðist 1453. Er á íslensku hjá Lofti Jónssyni í Flatey, hjá nokkrum öðrum ævintýrum á bók í 4to.“
Handritið er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 740.
Árni Magnússon hefur fengið frá Lofti Jónssyni í Flatey (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. desember 1991.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í desember 1988. Eldra band fylgir.