„Hier ſkrif|ast ſogu þa|ttur af Aſ|munde Seb|ba foſtra ur | ſogunne af Hr|inge ok Trigg |va“
Skrifari auðkennir eyðu í texta. Bl. 1r titilblað og 1v autt. Á eftir titlinum er strikað yfir fyrirsögnina: Jtem lytid æfin|tyr af To|ka Tokſini, en það hefur aldrei verið í þessu handriti.
Strikað yfir fyrirsögn á bl. 1r.
Bl. 13 innskotsblað.
á saurblaði stendur með hendi Árna Magnússonar : „Þáttur af Ásmundi Sebbafóstra úr sögunni af Hring og Tryggva.“ Fastur seðill (165 mm x 49 mm) fremst með hendi skrifara: „Hér skrifast söguþáttur af Ásmundi Sebbafóstra úr sögunni af Hring og Tryggva. Strikað yfir stendur á eftir: „Lítið ævintýr af Tóka Tókasyni.““
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 734, en bl. 13 er með hendi Árna Magnússonar og skrifað í byrjun 18. aldar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1976.