„Nú skal segja nokkuð af þeim íslenskum mönnum …“
„… og lýkur hér nú frásögu þessari.“
Kver I er þannig samsett að fremst er 1 stakt blað sem myndar fals utan um kverið, á falsið er fest 1 tvinn aftast í kverinu. Á milli staka blaðsins og tvinnsins eru saumuð saman 4 tvinn á hefðbundinn hátt.
Band (218 null x 170 null x 13 null) er frá 1730-1780. Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Blár safnmarksmiði er á kili.
Tveir seðlar.
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi). Það er tímasett frá hausti 1688 til ársloka 1689 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) en til um 1700 í Katalog I , bls. 661, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.
Það er afrit af pappírshandriti frá Þormóði Torfasyni (AM 551 d, 4to). Það handrit var höfuðlaust og því var upphafinu (úr Ólafs sögu helga, í eigu Árna Magnússonar sem hann fékk frá Bæ á Rauðasandi) bætt við á 11 blöðum fremst í handritinu (sbr. seðil). Þessar upplýsingar stemma við athugasemd í AM 435 a 4to, blað 162r, þar sem þetta handrit er nefnt meðal bóka sem keyptar voru af etatsráði Meier.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. apríl 1975.
VH skráði handritið 29. apríl 2009; lagfærði í nóvember 2010.
GI skráði 23. janúar 2002.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. júní 1887. Katalog I; bls. 661-662 (nr. 1260).
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1730-1780.