Brot. Meðal efnis: Latneskt hexametursvers um heimsaldrana átta, latneskur listi yfir konur þær er voru í örkinni, latneskt trúarvers, latnesk skýring við röð bókstafa sem ſpamaðr eınn ıróma skrifaði.
Óheilt, vantar bæði framan og aftan af.
Á undan fjarðatalinu virðist hafa verið latnesk upptalning á dýrahljóðum. Á eftir fjarðatalinu hefur fylgt upptalning á latneskum töluheitum. Á bl. 2v eru einnig leifar af latnesku efni, hugsanlega minningarversi.
Annáll frá fæðingu Krists til 1313. Árunum 1001-1269 hefur verið sleppt eða þau fallið brott. Meirihluti 9r er nýttur fyrir sagnfræðilegar, landfræðilegar og talnafræðilegar smágreinar á íslensku (heimsaldrarnir, ætt Abrahams, um lengdarmælingar, ummál jarðar, samanburður á tylpt siafar og erlendum mælieiningum, skipting Grikklands, rúmfræði hrings, þvermál jarðar og sólar). Meirihluti bl. 11r hefur upprunalega verið auður.
Frá Ragnari loðbrók til Eiríks Eiríkssonar (Menved).
Langfeðgatal Haralds hárfagra aftur til Nóa.
Langfeðgatal Hörða-Knúts, sonar Sigurðar orms-í-auga, aftur til Óðins.
„hamborgar ıſtorıa ok kallaz ſa meıſtarı er gıort | hefır bokına fleſt allt hafa rıtat epter fırı ſogn Sveınſ vlfſ | ſvnar af tıðendvm dana ok ſvıa“
Útdráttur.
Nær frá stríði Ottós keisara I. gegn Danmörku, fram til dauða Ólafs Tryggvasonar. Þar á eftir er autt rými fyrir um 8-10 línur, án þess að séð verði hvort til þess hefur verið ætlast að textinn héldi áfram.
Sums staðar er ritað í dálka. Texti bl. 5r er að hluta skrifaður innan i hring.
Bl. 2v er skrifað með sérstakri hendi er einnig virðist hafa skrifað spássíuviðbót á bl. 6r.
Band frá 1993. mm x mm x mm
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku kirkjuhandriti.
Bókfellið er ríkulega skreytt.
Í umslagi með áritun Árna Magnússonar er uppskrift hans af fjarðatalinu óheila ásamt seðli. Enn fremur uppskrift hans af heilu íslensku fjarðatali með leiðréttingum hans.
Tímasett til um 1310 (1r23, 1v-2r, 3r-5v, 6v-12v) (sjá ONPRegistre , bls. 453), en til upphafs 14. aldar í Katalog I , bls. 618.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1993.
Tekið eftir Katalog I , bls. 618-620 (nr. 1180). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í November 1886. Haraldur Bernharðsson skráði May 22, 2001.
Viðgert og bundið 15. október 1992 til 21. október 1993. Eldra band fylgir.