Nær yfir árin 70-1430.
Ein hönd.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Fimm seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar.
Með hendi séra Jóns Halldórssonar í Hítardal og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 616. Aftan við þessa tímasetningu setur Kålund (c. 1685), en á seðli kemur fram að Jón segist hafa skrifað handritið í Miðfelli um það leyti sem hann lauk námi. Handritið var áður hluti af stærri bók sem í voru annálar Björns Jónssonar á Skarðsá.
Árni Magnússon fékk handritið árið 1705 frá Lárus Scheving klausturhaldara að Möðruvöllum. Lárus Scheving fékk það hins vegar frá Bjarna Árnasyni á Skúmstöðum. Af sumum leiðréttingum má sjá að séra Eyjólfur Jónsson á Völlum hefur notað handritið (sjá seðla).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1973.