Manuscript Detail

PDF
PDF

AM 406 a I 4to

Lárentíus saga biskups ; Ísland, 1530

Language of Text
Icelandic

Contents

(1r-29v)
Lárentíus saga biskups
Explicit

hvad leid meigin hans. vm

Note

Vantar aftan af.

Bl. 2 endar á orðunum: framar at sino næme, en þar er eyða og hefst bl. 3 á orðunum: veitti hakonn konungur agæta veislu.

Physical Description

Support
Skinn
No. of leaves
29 blöð (). Bl. 15, 23 og 28 frá upphafi haft hálfa breidd.
Foliation

Blaðsíðumerkt af Jóni Sigurðssyni.

Layout

Eyður fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir.

Condition

  • Víða lítil göt og rifur. Á nokkrum blöðum merki um fúa. Um ástand handritsins þegar Árni Magnússon fékk það í hendur, sjá seðil.
  • Vantar aftan af handriti.

Script

Handritið er skrifað með snoturri hendi, en af því hve það er orðið dökkt og máð er skriftin að hluta til ekki eins skýr.

Binding

Band frá því í mars 1966. mm x mm x mm

Accompanying Material

Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar

  • Seðill 1 (ómerktur) (165 mm x 106 mm): Hér vantar innan í arked.
  • Seðill 2 (merktur A) (134 mm x 99 mm): [Á recto síðu stendur:]Lárentíus sögu, mína, hefur Þórður Jónsson fengið af Jóni Þórðarssyni á Bakka í Melasveit. Blöð tvö úr henni síðan frá einum bónda undan jökli, sem hann mér og gefið hefur, svo hefir athugaleysi þessum pergamentsbókum frá sér sjálfum í sundur fleygt. [Á verso síðu stendur:]Bókin, þá ég hana fékk, var í tréspjalda greyjum, og þó laus í bandinu. Utan á spjöldin var skorið þetta fangamark nokkrum sinnum: [Sjá myndir.] Item þetta nokkrum sinnum [Sjá myndir.] Item þetta nokkrum sinnum.[Sjá myndir.]
  • Seðill 5 (merktur D) (163 mm x 84 mm): The first sunday, the second sunday, the third sunday, the fourth sunday, the fifth sunday} in lent (α). The book of common prayer. α] lent est qvadragesimale jejunium. pertinent ad vitam Laurentii episcopi holensis.

Tveir seðlar með hendi skrifara, hugsanlega Þórðar Þórðarsonar

  • Seðill 3 (B, tvö blöð í 8vo) (165 mm x 101 mm): Memorial fyrir monsieur Árna Hannesson. Ég hefi eina Lárentíus sögu á kálfskinni í litlu 4to, sem ég fengið hefi af síra Þórði Jónssyni á Staðarstað, enn hann hefur bókina öðlast af Jóni Þórðarsyni á Barða [Bakka] í Melasveit. En Jóni er sagt að bókin komist hafi í Vík á Akranesi. Nú vantar í þessa bók (í fyrsta arkið) fjögur blöð. Áhrærandi þessa Lárentíus sögu, og þann defectum sem þar í muni, vildi ég fá að vita. 1. hvar Víkurfólk komist hafi að þessari kálfskinnsbók item hverjir hennar eigendur hafa upp að verið, svo langt sem inn það til baka rekja kunna. 2. Hvort þessi blöð muni í bókina vantað hafa, þá Jón Þórðarson hana eignaðist, og ef svo er, þá að gangast grandvarlega eftir, hvort þau blöð ei muni upp á einhvern máta í Vík eftir orðið, eða þar um kring vera að finna. Hafi Jón ekki athugað hvort þau vantað hafi eður ei, þá að biðja hann rannsaka hjá sér hér aftur. 3. Að fornema hjá Jóni Þórðarsyni hvort hefur nefnda Lárentíus sógu eftir þessari bók uppskrifað, eður uppskrifa látið, áður en hann bókina af höndum lét. Og ef hann þar af copie hefur, þá að biðja hann einkanlega ljá mér þá sömu copie, til að fylla þar úr það nú í bókina vantar (ef það þar í standa kynni) og sérdeilis til eftirsjónar um ein og önnur orð, sem nú allvíða í kálfskinnsbókinni trosnuð út nú og lítt læs, framar en þau munu verið hafa, þá bókin var í hans höndum.
  • Seðill 3 (merktur C, 2 blöð í 8vo) (165 mm x 101 mm): Úr bréfi Árna Hannessonar, datis ytra Hólum 17. octobris 1706. Fyrir utan langyrði er það af Lárentíus sögu hið fljótasta að segja, það mér er með skilum fortalið, ad hún komin sé fyrir nokkrum árum síðan, frá Halldóri Þorbergssyni að norðan til Þorvarðs Hallssonar /: sem verið hefur hjá Snæbirni sálugum Björnssyni :/ móðurbróður Víkurbræðra og kvinnu Jóns Böðvarssonar. Þorvarður segir að sínir systursynir muni fengið hafa Jóni Þórðarsyni þessa bók /: sem satt reynist :/ Heldur Þorvarður að hún öldungis full og óskert verið hafi, nær í hans höndum var, en eigi finnst þar neitt af þess lags eftir orðið né heldur öðru gömlu sem ég hefi rannsakað. Hann meinar að útskrift þessarar bókar muni vera fyrir norðan hjá fólki Halldórs, eður þar nálægt. Ég skrifaði til Jóni Þórðarsyni og beiddi hann um fyrirgreiðslu á þessu, eftir sem kynni, fann ég hann nú samstundis persónulega þar um, og kveðst hann ekkert til vita, hvort nokkuð hafi í bókina vantað nær til hans kom eður burt aftur fór, þar ei hafi hjá sér verið mikið yfir eina viku, og segir fullkomlega, að ekki hafi hjá sér eftir orðið það í hana vantar, og öngva þess lags sögu sé þar að finna. Fyrrnefndur Þorvarður H.s. segir sig tilranki að fangamark Halldórs Þorbergssonar, áður hans föður sé skorið upp á spjöld bókarinnar, og ef það enn nú sést er það til nokkurrar bevisningar. Ég veit ekki hvað ég kann meira að gjöra í þetta sinn hér um sem yðar eðlasnitum þinnar.

History

Origin

Handritið er tímasett til um 1530 (sjá  ONPRegistre , bls. 452), en til 16. aldar í  Katalog I , bls. 607.

Provenance

Árni Magnússon fékk handritið frá séra Þórði Jónssyni á Stað á Ölduhrygg. Áður átti það Halldór Þorbergsson. Halldór lánaði handritið ókenndum manni en frá honum komst það til Víkur á Akranesi. Þar náði því Jón Þórðarson á Bakka og fékk það síðan séra Þórði Jónssyni (sbr. seðla og AM 435 a 4to, bl. 83v).

Acquisition

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júlí 1973.

Additional

Record History

Tekið eftir Katalog I , bls. 607-608 (nr. 1159). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í November 1886. GI skráði November 14, 2001.

Custodial History

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1966. Eldra band fylgdi ekki með.

Surrogates

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.

Bibliography

Author: Guðrún Ása Grímsdóttir
Title: Brot úr fornum annál, Gripla
Scope: 10
Title: , Biskupa sögur III
Editor: Guðrún Ása Grímsdóttir
Scope: 17
Author: Haraldur Bernharðsson
Title: Þykkja og þykja. Hljóðbeygingarvíxl einfölduð, Gripla
Scope: 15
Author: Hreinn Benediktsson
Title: Linguistic studies, historical and comparative
Title: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Editor: Den arnamagnæanske kommision
Title: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Editor: Foote, Peter
Scope: 14
Title: Rit Handritastofnunar Íslands, Laurentius saga biskups
Editor: Árni Björnsson
Scope: III
Author: Voigt, Helmut
Title: , Eine abschrift von AM 435a 4°
Scope: p. 184-193
Title: Biskupa sögur
Scope: I-II
Author: Árni Björnsson
Title: Laurentius saga biskups í ÍB 62 fol, Gripla
Scope: 8
Metadata
×
  • Country
  • Iceland
  • Place
  • Reykjavík
  • Institution
  • The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies
  • Repository
  • Handritasvið
  • Collection
  • Safn Árna Magnússonar
  • Shelfmark
  • AM 406 a I 4to
  • Keywords
  • Sagas of bishops
  • Additional pictures
  • CCPCCP
  • XML
  • View as XML  
  • PDF all-in-one
  • InformationInformation
  • Notes
  • Send Feedback on Manuscript  

Metadata