Handritin hafa öll verið blaðsíðumerkt í einu á seinni tímum: 1-20, þar sem einungis oddatölur eru færðar inn (aðeins tvisvar slétt tala: 8 og 20).
Band frá september 1970 (168 mm x 118 mm x 9 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 216 a-f 4to.
Eldra band frá 1772-1780 liggur í öskju með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð eru blöð úr prentaðri bók.
Efnisyfirlit Jóns Sigurðssonar liggur sér í pappakápu með línkili.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1973.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í september 1970.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Síðari tíma blaðsíðumerking 1-8 (1r-4v), þar sem einungis oddatölur eru færðar inn (aðeins einu sinni slétt tala: 8).
Eitt kver (4 blöð, 2 tvinn).
Ein hönd.
Óþekktur skrifari.
Skrifað c1642-1700, en Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:485 ).
Síðari tíma blaðsíðumerking 9-11 (1r-2r), þar sem einungis oddatölur eru færðar inn.
Tvinn (2 blöð).
Brot er í miðju blaði á öllum blöðunum, en aðeins á 2v er texti ögn máður í brotinu.
Ein hönd.
Björn Jónsson á Skarðsá.
Eiginhandarrit Björns Jónssonar á Skarðsá og tímasetur Kålund það til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:485 ). AM 216 e III er skrifað 1633 og ætla má að þetta handrit sé skrifað um líkt leyti eða á árunum 1630-1640.
„Ad eg seige mijna meinng“
„16 oktobris anno 1633 | B. J. s.“
Lýkur með vísu: Eg set erfð hér niður, og ættarregistri (4v).
Aftan við textann á 4r er vísa: Hér til dæmi fleiri finn.
Síðari tíma blaðsíðumerking 13-20 (1r-4v), þar sem einungis oddatölur eru færðar inn (aðeins einu sinni slétt tala: 20).
Eitt kver (4 blöð, 2 tvinn).
Brot er í miðju blaði á öllum blöðunum og er texti óverulega skertur í ættartölunni á 4v.
Ein hönd.
Björn Jónsson á Skarðsá.
Athugasemd við texta með hendi skrifara á spássíu á 1r.
Eiginhandarrit Björns Jónssonar á Skarðsá og skrifað 16. október 1633 (4v).