Aftan við Þjófabálk er leyniskrift í þremur línum sem Árni Magnússon hefur leyst að hluta; lausn hans er á seðli með AM 173 d A 34 4to.
Band frá því í nóvember 1975.
Blöðin eru tímasett til fyrri hluta 14. aldar í Katalog I , bls. 449 (sjá einnig ONPRegistre , bls. 447).
Á seðli með hendi Árna Magnússonar er fylgir AM 173 d A 20 4to segist hann hafa fengið þessi blöð hjá sonum séra Bjarna Einarssonar í Ásum, en hann hafi fengið þau hjá föður sínum, séra Einari Jónssyni. Sjá nánar á seðlinum.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. desember 1981.
Tekið eftir Katalog I , bls. 449-52 (nr. 844). Kålund gekk frá handritinu til skráningar March 25, 1909. Haraldur Bernharðsson skráði April 17, 2001.
AM 173 d A 1-33 fol. viðgert og bundið allt í eina bók á verkstæði Birgitte Dall í nóvember 1975. Eldra band fylgir. Myndir af ýmsu efni úr eldra bandi (3 möppur) í kassa ásamt fleiri myndum frá Kaupmannahöfn af gömlu bandi.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.