„ONOMA|STICON | NOMINUM | PROPRIORUM“
Tvískipt skrá yfir norræn sérnöfn, annars vegar mannanöfn og hins vegar staðanöfn, með skýringum á latínu. Tileinkuð Hans Gram. Með liggja ýmsar styttri ritgerðir höfundar og uppköst að svipuðu efni, sem og nokkrir smáseðlar Árna Magnússonar með athugagreinum um norsk staðanöfn.
Ein hönd.
Eiginhandarrit Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, tekið saman 1735 og endurskoðað 1765.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. janúar 1991.
Viðgert og sett í tvö hylki í janúar 1991. Gamalt band fylgdi.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.