Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM 271 fol.

Bréfabók Brynjólfs biskups Sveinssonar X ; Ísland, 1657-1658

Indhold

1 (1r-174v)
Bréfabók Brynjólfs biskups Sveinssonar X
Rubrik

Brefabök Biskupſens M: Bryn|jölfs Sveinſsonar frä Alþïnge, og byriast ä þui | Anno 1657. og tekur framm yfer næstkomanda | alþïng. Anno 1658 5. Julij

Bemærkning

Fyrir árin 1657-1658.

Óheil. Nokkur bréfanna sem vantar eru í NKS 1392 fol.

1.1 (167r-174v)
Efnisyfirlit
2 (2r-2v)
Citatia til Alþingis prestastefnu.
Rubrik

Citatia til Alþingis prestastefnu.

Bemærkning

Brynjólfur biskup boðar presta í Skálholtsbiskupsdæmi til prestastefnu á Þingvöllum. Engin sérstök mál eru tilgreind sem viðfangsefni fundarins heldur er bréfið almenn lýsing á kostum þess að hinir lærðustu menn komi saman og ráði ráðum sínum. Vísað er til skrifa Platós í bréfinu. Dags. á Þingvöllum 29. júní 1657.

Bréfið er á latínu.

Tekstklasse
3 (3r-3v)
Sendibréf til biskupsins herra Gísla Þorlákssonar.
Rubrik

Sendibréf til biskupsins herra Gísla Þorlákssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Gísla Þorlákssyni sem hefur fyrir skömmu tekið við biskupsmbættinu á Hólum. Brynjólfur tilkynnir Gísla að á þeim tíma sem leið frá því að Gísli var skipaður biskup á prestastefnu hafi hann vígt þrjá presta í Hólabiskupsdæmi: Jón Guðmundsson að Felli, Guðbrand Jónsson að Sauðanesi og Þorlák Halldórsson að Auðkúlu- og Svínavatnskirkju (sbr. 13., 19. og 117. bréf í AM 270 fol.). Dags. í Skálholti 25. júní 1657.

Tekstklasse
4 (4r)
Kvittun herra Árna Oddssonar lögmanns fyrir 20 vættum smjörs.
Rubrik

Kvittun herra Árna Oddssonar lögmanns fyrir 20 vættum smjörs.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hann hefur þegið 53 og hálfan ríkisdal frá Árna Oddssyni lögmanni vegna tuttugu vætta smjörs sem Árni meðtók haustið 1656. Benedikt Halldórsson, sýslumaður í Hegranesþingi, greiðir skuldina fyrir hönd Árna. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1657.

Tekstklasse
5 (4r)
Samþykki biskupsins upp á kosning séra Árna Loftssonar af Dýrfirðingum.
Rubrik

Samþykki biskupsins upp á kosning séra Árna Loftssonar af Dýrfirðingum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup samþykkir kosningu nokkurra sóknarmanna í Dýrarfjarðarþingum sem hafa kosið Árna Loftsson til prests eftir sr. Bjarna Arnórsson. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1657.

Tekstklasse
6 (4v)
Commendatia séra Böðvars Sturlusonar prófastinum séra Vigfúsi Árnasyni tilskrifuð.
Rubrik

Commendatia séra Böðvars Sturlusonar prófastinum séra Vigfúsi Árnasyni tilskrifuð.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Vigfúsi Árnasyni, prófasti í Múlasýslu, í tilefni af fráfalli sr. Einars Þorvarðssonar, prests á Valþjófsstað. Biskup óskar þess að aðstoðarpresturinn, sr. Böðvar Sturluson, taki við staðnum. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1657.

Tekstklasse
7 (5r-5v)
Kaupbréf fyrir hálfum Bæ í Lóni.
Rubrik

Kaupbréf fyrir hálfum Bæ í Lóni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup kaupir hálfa jörðina Bæ í Lóni, alls 15 hundruð að dýrleika, af sr. Þórði Jónssyni í Hítardal. Í staðinn lætur biskup alla jörðina Skipanes í Melasveit sem er 12 hundruð að dýrleika, auk fjögurra málnytukúgilda sem þar standa. Það er Sigurður Jónsson í Einarsnesi sem annast gjörninginn fyrir hönd sr. Þórðar. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1657.

Tekstklasse
8 (5v-6r)
Sala á þremur hundruðum í Króki í Holtum við Sigurð Jónsson fyrir 30 ríkisdali.
Rubrik

Sala á þremur hundruðum í Króki í Holtum við Sigurð Jónsson fyrir 30 ríkisdali.

Bemærkning

Brynjólfur biskup selur Sigurði Jónssyni í Einarsnesi þrjú hundruð í jörðinni Króki í Holtamannahreppi, en það er fimmtungur jarðarinnar. Kaupverðið er þrjátíu ríkisdalir og skulu þeir greiddir um næstu Mikjálsmessu. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1657.

Tekstklasse
9 (6r)
Kvittantia fyrir þriggja ára afgjaldi af Gautastöðum Jóni Þorvaldssyni til handa.
Rubrik

Kvittantia fyrir þriggja ára afgjaldi af Gautastöðum Jóni Þorvaldssyni til handa.

Bemærkning

Brynjólfur biskup hefur móttekið afgjald fyrir þrjú umliðin ár af jörðinni Gautastöðum í Fljótum frá Jóni Þorvaldssyni á Auðbrekku í Hörgárdal. Heildarupphæðin er 21 ríkisdalur. Það er Sigurður Björnsson sem tekur við gjaldinu fyrir hönd biskups. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1657.

Tekstklasse
10 (6r-6v)
Biskupstíunda reikningur af Barðastrandarsýslu anno 1657 og kvittun Gvöndar Jónssonar.
Rubrik

Biskupstíunda reikningur af Barðastrandarsýslu anno 1657 og kvittun Gvöndar Jónssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir móttöku biskupstíunda úr Barðastrandarsýslu frá Guðmundi Jónssyni sem hefur safnað þeim saman. Guðmundur hefur nú komið síðari greiðslu af tveimur til biskups. Árleg heildarupphæð er sex hundruð en Guðmundur hefur greitt lítillega umfram þá upphæð, og skal mismunurinn ganga upp í greiðslu næsta árs. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1657.

Tekstklasse
11 (6v-7r)
Kaupbréf séra Þórðar Jónssonar fyrir hálfum Bæ í Lóni af Gvöndi Björnssyni.
Rubrik

Kaupbréf séra Þórðar Jónssonar fyrir hálfum Bæ í Lóni af Gvöndi Björnssyni.

Bemærkning

Þrír menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem sr. Þórður Jónsson í Hítardal keypti hálfa jörðina Bæ í Lóni af Guðmundi Björnssyni. Á móti lætur sr. Þórður hálfa jörðina Þórólfsstaði í Miðdalasveit, sem er átta hundruð að dýrleika. Sr. Þórður greiðir fjögur málnytukúgildi og tólf ríkisdali á milli. Kaupin eru gerð með samþykki Guðrúnar Marteinsdóttur, eiginkonu Guðmundar. Dags. á Kvennabrekku 1. júní 1657.

Tekstklasse
12 (7r-7v)
Samþykki Guðrúnar Marteinsdóttur upp á sölu síns bónda Guðmundar á hálfum Bæ.
Rubrik

Samþykki Guðrúnar Marteinsdóttur upp á sölu síns bónda Guðmundar á hálfum Bæ.

Bemærkning

Þrír menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem sr. Þórður Jónsson í Hítardal keypti hálfa jörðina Bæ í Lóni af Guðmundi Björnssyni. Á móti lætur sr. Þórður hálfa jörðina Þórólfsstaði í Miðdalasveit, sem er átta hundruð að dýrleika. Sr. Þórður greiðir fjögur málnytukúgildi og tólf ríkisdali á milli. Kaupin eru gerð með samþykki Guðrúnar Marteinsdóttur, eiginkonu Guðmundar. Dags. á Kvennabrekku 1. júní 1657.

Tekstklasse
13 (8r-8v)
Kaupbréf fyrir hálfum Saurstöðum í Jökulsárhlíð í Austfjörðum og Kirkjubæjarsókn af séra Jóni Daðasyni.
Rubrik

Kaupbréf fyrir hálfum Saurstöðum í Jökulsárhlíð í Austfjörðum og Kirkjubæjarsókn af séra Jóni Daðasyni.

Bemærkning

Sex menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Brynjólfur biskup kaupir hálfa jörðina Saurstaði í Jökulsárhlíð af sr. Jóni Daðasyni, alls sex hundruð að dýrleika. Á móti greiðir biskup tvö hundruð í jörðinni Kjóastöðum í Eystri Biskupstungum, allt landið Tröllaskóg fyrir ofan Keldur í Árverjahreppi (alls tíu hundruð) og og eitt hundrað í jörðinni Mýdal á Kjalarnesi. Dags. á Eyrarbakka 8. júlí 1657.

Tekstklasse
14 (8v-9r)
Eignarráð biskupinum gefin yfir hálfum Svarfhóli í Svínadal.
Rubrik

Eignarráð biskupinum gefin yfir hálfum Svarfhóli í Svínadal.

Bemærkning

Bræðurnir Þorleifur og Sigurður Jónssyni selja Brynjólfi biskup hálfa jörðina Svarfhól í Svínadal. Kaupin eru gerð í fullu trausti við þriðja bróðurinn, Guðmund Jónsson, sem er fjarverandi. Í staðinn mun biskup greiða jörð eða jarðarpart í Borgarfirði, átta eða tíu hundruð að dýrleika, og verður það nánar ákveðið síðar. Dags. á Þingvöllum 29. júní 1657.

Tekstklasse
15 (9r-10v)
Skikkunarbréf biskupsins á niðursetning séra Árna Loftssonar í Dýrafjarðarþing.
Rubrik

Skikkunarbréf biskupsins á niðursetning séra Árna Loftssonar í Dýrafjarðarþing.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skipar tvo presta samtímis, annars vegar Sigurð Jónsson prest í Ögurs- og Eyrarsóknum og hins vegar Árna Loftsson prest í Dýrafjarðarþingum (sbr. 4. bréf). Upphaflega hafði biskup fengið bréflegt erindi frá sóknarmönnum í Dýrafirði sem óskuðu eftir því að Sigurður yrði vígður til prests hjá þeim, og var það gert með stuðningi Jóns Jónssonar, prófasts í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Með því stóð til að afturkalla kosningu sr. Árna. Biskup ákvað hins vegar að bíða með málið fram yfir prestastefnu á Alþingi þar sem þeir Árni og Sigurður yrðu báðir viðstaddir. Málið var þó leyst í héraði áður en til Alþingis kom. Dags. í Skálholti 14. júlí 1657.

Tekstklasse
16 ((13r)-12r)
Reikningur Þorvarðs Magnússonar í Skaga 1657.
Rubrik

Reikningur Þorvarðs Magnússonar í Skaga 1657.

Bemærkning

Yfirlit yfir eignir, skuldir, leigur, launagreiðslur, innstæður og úttektir í versluninni á Skaga árið 1656. Ódags.

Tekstklasse
17 (12r)
Biskupsins hlutir á Akranesi 1657.
Rubrik

Biskupsins hlutir á Akranesi 1657.

Bemærkning

Yfirlit yfir þá hluti sem biskup á hjá sjómönnum á Akranesi árið 1657. Ódags.

S. 12v er auð.

Tekstklasse
18 (14r-14v)
Vígslubréf séra Sigurðar Jónssonar til Ögurs og Eyrar sókna.
Rubrik

Vígslubréf séra Sigurðar Jónssonar til Ögurs og Eyrar sókna.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Jóni Arasyni, prófasti í Norður-Ísafjarðarsýslu, Magnúsi Magnússyni sýslumanni og öllum sóknarmönnum í Ögurs- og Eyrarsóknum. Erindi biskups er að tilkynna að hann hefur vígt Sigurð Jónsson til prests í umræddum sóknum. Dags. í Skálholti 14. júlí 1657.

Tekstklasse
19 (15r-15v)
Meðkenning Daða Jónssonar upp á sitt framfæri hjá biskupinum.
Rubrik

Meðkenning Daða Jónssonar upp á sitt framfæri hjá biskupinum.

Bemærkning

Jón Daðason, fráfarandi nemandi í Skálholtsskóla, vottar að hann hefur verið á framfæri biskups undanfarin ár, en Jón stendur á tvítugu þegar bréfið er ritað. Fram kemur að Jón kom til fósturs í skólanum þegar hann var tólf vetra gamall og var sex hundraða jarðarpartur í Egilsstöðum í Vopnafirði gefinn með honum við upphaf skólagöngu. Dags. í Skálholti 15. júlí 1657.

Tekstklasse
20 (15v-16r)
Afbeiðni biskupsins við Orm Vigfússon á hórdóms straffi Oddu í Klausturhólum.
Rubrik

Afbeiðni biskupsins við Orm Vigfússon á hórdóms straffi Oddu í Klausturhólum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Ormi Vigfússyni, sýslumanni í Kjósarsýslu, vegna máls konu sem heitir Odda og er eiginkona Jóns Þórarinssonar, ölmusumanns sem er vistaður á spítalanum á Klausturhólum. Odda hefur orðið uppvís að barneign utan hjónabands með Einari Einarssyni, vinnumanni í Bræðratungu, og á því yfir höfði sér refsingu fyrir hórdómsbrot. Hún hefur hins vegar boðið biskupi að taka til starfa sem þjónustukona við spítalann á Klausturhólum gegn því að refsingin verði felld niður. Biskup hefur samþykkt tilboðið, enda hefur reynst afar erfitt að fá fólk til starfa við spítalann, og því biðlar hann til sýslumanns að leysa Oddu undan refsingunni. Dags. í Skálholti 17. júlí 1657.

Tekstklasse
21 (16r-16v)
Bón Ingveldar Jónsdóttur felld til biskupsins að afturkalla sinn son úr Austfjörðum.
Rubrik

Bón Ingveldar Jónsdóttur felld til biskupsins að afturkalla sinn son úr Austfjörðum.

Bemærkning

Tveir menn votta að þeir voru viðstaddir í Skálholti þar sem Ingveldur Jónsdóttir biður Brynjólf biskup að kalla til sín Runólf Ólafsson, son Ingveldar, sem búsettur er á Austfjörðum. Runólfur fór upphaflega austur með Ólafi Finnssyni en Ingveldur hefur spurt að hann sé nú vistráðinn annars staðar. Hún vill að Runólfur veiti sér liðsinni í ellinni. Dags. í Skálholti 19. janúar 1657.

Tekstklasse
22 (16v-17r)
Lögfesta jarða biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Bakka og Hafnar á Ströndum.
Rubrik

Lögfesta jarða biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Bakka og Hafnar á Ströndum.

Bemærkning

Þorleifur Árnason, umboðsmaður Brynjólfs biskups, lögfestir jarðirnar Bakka og Höfn á Ströndum, sem báðar eru eignarjarðir biskups. Biskup má heimila jarðirnar þeim sem hann vill en öllum mönnum er bannað að yrkja jörðina eða byggja á henni nema með leyfi biskups. Dags. á Skeggjastöðum á Ströndum 5. ágúst 1657.

Tekstklasse
23 (17v-19r)
Skoðun jarðarinnar Bakka á Ströndum.
Rubrik

Skoðun jarðarinnar Bakka á Ströndum.

Bemærkning

Fjórir erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Bakka á Ströndum þar sem Guðmundur Magnússon hefur búið undanfarin ár. Ítarleg lýsing á húsum fylgir og fram kemur að á þeim húsum sem Guðmundur hefur ekki upphlaðið eru moldir flestallar gamlar og að falli komnar. Lýsing á landamerkjum jarðarinnar fylgir og gerð er grein fyrir kúgildum sem jörðinni fylgja. Dags. á Bakka 5. ágúst 1657.

Tekstklasse
24 (19v-20v)
Skoðuð og skrifuð hús í Höfn á Ströndum.
Rubrik

Skoðuð og skrifuð hús í Höfn á Ströndum.

Bemærkning

Fjórir erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Höfn á Ströndum þar sem Jón Marteinsson hefur búið undanfarin ár. Ítarleg lýsing á húsum fylgir. Gerð er grein fyrir rekaviði undanfarinna þriggja ára, landskuldum og landamerkjum. Dags. á Höfn 5. ágúst 1657.

Tekstklasse
25 (20v-22v)
Skoðuð og uppskrifuð hús á Hámundarstöðum í Vopnafirði.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús á Hámundarstöðum í Vopnafirði.

Bemærkning

Sjö erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Hámundarstöðum í Vopnafirði þar sem Ólafur Þórðarson hefur búið undanfarin ár. Ítarleg lýsing á húsum fylgir. Gerð er grein fyrir rekaviði undanfarinna þriggja ára, landamerkjum og afgjöldum jarðarinnar. Dags. á Hámundarstöðum 7. ágúst 1657.

Tekstklasse
26 (22v-24r)
Skoðuð húsin á Ytra-Núpi í Vopnafirði.
Rubrik

Skoðuð húsin á Ytra-Núpi í Vopnafirði.

Bemærkning

Sex erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Ytri-Núpi í Vopnafirði þar sem Jón Snjólfsson hefur búið undanfarin ár. Ítarleg lýsing á húsum fylgir. Gerð er grein fyrir rekaviði, landamerkjum og landskuldum jarðarinnar. Dags. á Ytri-Núpi 7. ágúst 1657.

Tekstklasse
27 (24v-26r)
Skoðuð og uppskrifuð hús á Ásbrandsstöðum.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús á Ásbrandsstöðum.

Bemærkning

Sex erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Ásbrandsstöðum í Vopnafirði þar sem Ólafur Jónsson hefur búið undanfarin ár. Ítarleg lýsing á húsum fylgir, auk greinargerðar um þann kostnað sem biskup hefur lagt í við endurbætur húsa á jörðinni, bæði efniskostnaður og laun vinnumanna. Gerð er grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. á Ásbrandsstöðum 8. ágúst 1657.

Tekstklasse
28 (26v-27r)
Skoðuð og uppskrifuð hús á Svínabakka í Vopnafirði.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús á Svínabakka í Vopnafirði.

Bemærkning

Níu erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Svínabakka í Vopnafirði og gera grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. á Svínabakka 8. ágúst 1657.

Tekstklasse
29 (27r-27v)
Skoðuð og uppskrifuð hús á Skjaldtingsstöðum.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús á Skjaldtingsstöðum.

Bemærkning

Fimm erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Skjaldtingsstöðum í Vopnafirði og gera grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. á Skjaldtingsstöðum 8. ágúst 1657.

Tekstklasse
30 (27v-29r)
Skoðuð og uppskrifuð hús í Syðri-Vík.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús í Syðri-Vík.

Bemærkning

Fimm erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Syðri-Vík, þar sem Jón Þórðarson er ábúandi, og gera grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. á Skjaldtingsstöðum 9. ágúst 1657.

Tekstklasse
31 (29r-30r)
Skoðuð og uppskrifuð hús jarðarinnar Vindfullu.
Rubrik

Skoðuð og uppskrifuð hús jarðarinnar Vindfullu.

Bemærkning

Sjö erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Vindfullu, þar sem Jóhann Vilhjálmsson er ábúandi, og gera grein fyrir landamerkjum og kúgildum jarðarinnar. Dags. á Skjaldtingsstöðum 11. ágúst 1657.

Tekstklasse
32 (30r-30v)
Kaup fyrir fimm hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.
Rubrik

Kaup fyrir fimm hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.

Bemærkning

Brynjólfur biskup selur Ólöfu Sigurðardóttur alla jörðina Fossgerði í Eiðamannaþinghá, alls fimm hundruð að dýrleika, en jörðin er fjórðungur af jörðinni Finnsstöðum. Á móti lætur Ólöf fimm hundruð í jörðinni Búastöðum í Vopnafirði. Sex vottar eru að kaupunum. Dags. að Vindfelli í Vopnafirði 11. ágúst 1657.

Tekstklasse
33 (30v)
Meðkenning biskupsins upp á ábýli Ólafar Sigurðardóttur á þriðjungi af Eyvindarstöðum.
Rubrik

Meðkenning biskupsins upp á ábýli Ólafar Sigurðardóttur á þriðjungi af Eyvindarstöðum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup vottar að hann hefur veitt Ólöfu Sigurðardóttur ábýli á þriðjungi jarðarinnar Eyvindarstöðum í Vopnafirði. Dags. að Vindfelli í Vopnafirði 11. ágúst 1657.

Tekstklasse
34 (30v-32r)
Eyvindarstaðir 6 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.
Rubrik

Eyvindarstaðir 6 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Eyvindarstöðum í Vopnafirði, landskuldir og landamerki. Dags. á Eyvindarstöðum 11. ágúst 1657.

Tekstklasse
35 (32r-32v)
Böðvarsdalur með þýfi 18 hundruð.
Rubrik

Böðvarsdalur með þýfi 18 hundruð.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Böðvarsdal. Ábúandinn, Jón Jónsson, segist hafa lagt mikinn við til endurbóta á húsunum og biður um að þau útgjöld verði gerð upp síðar, “þegar reynist og sést hvers verð eru.” Dags. í Böðvarsdal 11. ágúst 1657.

Tekstklasse
36 (33r-34v)
Heima í Böðvarsdal húsin sem eftir fylgja.
Rubrik

Heima í Böðvarsdal húsin sem eftir fylgja.

Bemærkning

Áframhald á yfirliti yfir húsakost í Böðvarsdal (sbr. 34. bréf), auk þess sem gerð er grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. í Böðvarsdal 12. ágúst 1657.

Tekstklasse
37 (34v-35v)
Egilsstaðir 16 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.
Rubrik

Egilsstaðir 16 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Egilsstöðum í Vopnafirði, auk þess sem gerð er grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. að Egilsstöðum 13. ágúst 1657.

Tekstklasse
38 (35v)
Forlíkun milli biskupsins og Jóhanns Vilhjálmssonar á afgjaldi og húsabót Egilsstaða.
Rubrik

Forlíkun milli biskupsins og Jóhanns Vilhjálmssonar á afgjaldi og húsabót Egilsstaða.

Bemærkning

Brynjólfur biskup semur við Jóhann Vilhjálmsson, ábúanda á Egilsstöðum, um afgjöld af jörðinni. Jóhann hefur lagt út í töluverðan kostnað vegna húsabóta á jörðinni og eru afgjöld undanfarinna ára því látin falla niður í staðinn. Dags. að Egilsstöðum 13. ágúst 1657.

Tekstklasse
39 (36r)
Reikningur Jóhanns Vilhjálmssonar á Vindfells afgjöldum.
Rubrik

Reikningur Jóhanns Vilhjálmssonar á Vindfells afgjöldum.

Bemærkning

Jóhann Vilhjálmsson, ábúandi á Egilsstöðum, gerir grein fyrir afgjöldum síðustu þriggja ára af jörðinni Vindfelli. Ólafur Jónsson á Ásbrandsstöðum meðtók afgjöld fyrri tveggja áranna vegna Björns Sæbjörnssonar, sem nú er látinn. Afgjöld þriðja og yfirstandandi árs hafa verið lögð inn á reikning Barthólómeusar Jenssonar, kaupmanns í Vopnafirði, þar sem þau bíða ráðstöfunar biskupsins. Dags. að Egilsstöðum 13. ágúst 1657.

Tekstklasse
40 (36r-36v)
Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir Fremri-Hlíð í Vopnafirði.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir Fremri-Hlíð í Vopnafirði.

Bemærkning

Björn Sæbjarnarson selur Brynjólfi biskup alla jörðina Fremri-Hlíð í Vopnafirði. Bjarni Oddsson annast kaupin fyrir hönd biskups. Kaupverðið er átján hundruð. Af því greiðast fjórtán hundruð í peningum, sauðum og fiski um næstu fardaga, en þau fjögur hundruð sem út af standa óskar Björn að “ei gjaldist fyrr en báðum semur.” Dags. að Leiðarhöfn í Eystra-Skálanesi 5. janúar 1654; afrit gert að Hofi í Vopnafirði 15. ágúst 1657.

Tekstklasse
41 (37r-37v)
Reikningur millum Ólafs Jónssonar á Ásbrandsstöðum og Björns Snæbjörnssonar.
Rubrik

Reikningur millum Ólafs Jónssonar á Ásbrandsstöðum og Björns Snæbjörnssonar.

Bemærkning

Viðauki við 39. bréf. Hér er að finna sundurliðun þeirrar upphæðar sem Birni Snæbjarnarsyni er greidd fyrir jörðina Fremri-Hlíð. Ólafur Jónsson á Ásbrandsstöðum annast reikninginn fyrir hönd biskups. Ódags; afrit gert að Hofi í Vopnafirði 15. ágúst 1657.

Tekstklasse
42 (37v)
Kvittantia útgefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni af Birni Snæbjarnarsyni.
Rubrik

Kvittantia útgefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni af Birni Snæbjarnarsyni.

Bemærkning

Björn Sæbjarnarson vottar að hann hefur meðtekið átján hundruð frá Brynjólfi biskup fyrir jörðina Fremri-Hlíð. Dags. að Leiðarhöfn í Vopnafirði 6. september 1656; afrit gert að Hofi í Vopnafirði 15. ágúst 1657.

Tekstklasse
43 (37v-38r)
Reikningur Ólafs Jónssonar að Ásbrandsstöðum á viðum.
Rubrik

Reikningur Ólafs Jónssonar að Ásbrandsstöðum á viðum.

Bemærkning

Ólafur Jónsson, ábúandi á Ásbrandsstöðum í Vopnafirði, tekur saman yfirlit fyrir Brynjólf biskup um þann rekavið sem hefur komið að landi á jörðinni frá árinu 1655. Auk þess gerir Ólafur grein fyrir þeim viði sem hann hefur látið öðrum í té til húsbygginga. Dags. að Hofi í Vopnafirði 15. ágúst 1657.

Tekstklasse
44 (38r-38v)
Kvittantia Ólafi Jónssyni útgefin af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.
Rubrik

Kvittantia Ólafi Jónssyni útgefin af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að Ólafur Jónsson hefur greitt landskuld af Ásbrandsstöðum fyrir undangengin þrjú ár, auk þess sem hann hefur skilað biskupstíundunum sem safnast hafa á milli Smjörvatnsheiðar og Þórskambs á Langanesi á sama tímabili. Upphæðin sem Ólafur greiðir biskupi nemur alls níu hundruðum. Dags. að Hofi í Vopnafirði 15. ágúst 1657.

Tekstklasse
45 (38v-39v )
Kaupbréf Bjarna Oddssonar fyrir Ytri-Hlíð í Vopnafirði.
Rubrik

Kaupbréf Bjarna Oddssonar fyrir Ytri-Hlíð í Vopnafirði.

Bemærkning

Björn Sæbjarnarson selur Bjarna Oddssyni jörðina Ytri-Hlíð í Vopnafirði sem er tólf hundruð að dýrleika. Kaupverðið er átján hundruð sem greiðast að hluta í lausafé og að hluta sem afgjöld af jörðinni Þorbrandsstöðum, en Björn fær að hafa þá jörð til fullkomins eignarhalds þar til upphæðin er að fullu greidd. Dags. á Hofi í Vopnafirði 11. september 1642; afrit gert á Saurstöðum í Jökulsárhlíð 22. ágúst 1657.

Tekstklasse
46 (39v-40v)
Fremri-Hlíð í Vopnafirði 6 hundruð að dýrleika hús svo standandi.
Rubrik

Fremri-Hlíð í Vopnafirði 6 hundruð að dýrleika hús svo standandi.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Fremri-Hlíð í Vopnafirði. Magnús Þormóðsson, ábúandi jarðarinnar, gerir grein fyrir landamerkjum og landskuldum og hefur þær upplýsingar að mestu eftir Birni Snæbjörnssyni sem áður bjó á jörðinni. Dags. að Fremri-Hlíð í Vopnafirði 14. ágúst 1657.

Tekstklasse
47 (40v-41r)
Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.
Rubrik

Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Þorbrandsstöðum þegar fráfarandi ábúandi, Högni Pétursson, skilur við jörðina. Dags. 1655; afrit gert á Saurstöðum í Jökulsárhlíð 22. ágúst 1657.

Tekstklasse
48 (41r-41v)
Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.
Rubrik

Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.

Bemærkning

Yfirlit yfir húsakost á jörðinni Þorbrandsstöðum, auk þess sem gerð er grein fyrir landamerkjum jarðarinnar. Dags. að Þorbrandsstöðum 17. ágúst 1657.

Tekstklasse
49 (42r)
Umboð útgefið af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni Ólafi Jónssyni að Ásbrandsstöðum.
Rubrik

Umboð útgefið af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni Ólafi Jónssyni að Ásbrandsstöðum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup veitir Ólafi Jónssyni að Ásbrandsstöðum heimild til þess að sækja sr. Martein Jónsson til laga. Ágreiningsefnið er hús sem Marteinn lét taka niður í leyfisleysi á Höfn á Ströndum, eignarjörð biskups, auk þess sem húsviðirnir hafa verið fluttir burt af jörðinni. Dags. á Hofi í Vopnafirði 16. ágúst 1657.

Tekstklasse
50 (42r-43r)
Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir sjö hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir sjö hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.

Bemærkning

Sex menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Hallur Björnsson selur Brynjólfi biskup sjö hundruð í jörðinni Búastöðum í Vopnafirði. Á móti lætur biskup hálfa jörðina Saurstaði í Jökulsárhlíð sem er sex hundruð að dýrleika, auk þess sem hann skuldbindur sig til að greiða Halli þrjú hundruð í þarflegum peningum til viðbótar um haustið. Dags. á Hofi í Vopnafirði 16. ágúst 1657.

Tekstklasse
51 (43r-43v)
Bygging á Höfn á Ströndum Halli Björnssyni.
Rubrik

Bygging á Höfn á Ströndum Halli Björnssyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup heimilar Halli Björnssyni ábúnað á jörðinni Höfn á Ströndum frá næstu fardögum. Hallur á að hirða jörðina, safna reka og greiða árlega landskuld sem nemur sjö vættum fiska í reiðufé. Dags. á Hofi í Vopnafirði 16. ágúst 1657.

Tekstklasse
52 (43v-44r)
Kaupbréf fyrir Birnufelli sex hundruð.
Rubrik

Kaupbréf fyrir Birnufelli sex hundruð.

Bemærkning

Sex menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Bjarni Oddsson selur Brynjólfi biskup jörðina Birnufell í Fellum sem er níu hundruð að dýrleika. Bjarni hafði selt biskupi jörðina Hafrafell þremur árum fyrr (sbr. 29. bréf í AM 269 fol.) en kaupin voru síðan dæmd ólögmæt (sbr. 69. bréf í AM 270 fol.). Bjarni hefur nú verið dæmdur til að greiða biskupi andvirði jarðarinnar aftur í annarri fasteign og lætur hann Birnufell koma í staðinn. Dags. að Burstarfelli í Vopnafirði 18. ágúst 1657.

Tekstklasse
53 (44v)
Meðkenning Bjarna Oddssonar biskupinum útgefin upp á átta hundruð og áttatíu álnir.
Rubrik

Meðkenning Bjarna Oddssonar biskupinum útgefin upp á átta hundruð og áttatíu álnir.

Bemærkning

Bjarni Oddsson staðfestir að hann skuldar Brynjólfi biskup áttahundruð og áttatíu álnir, sem hann lofar að endurgreiða í gildum peningum eftir nánara samkomulagi. Dags. að Burstarfelli 18. ágúst 1657.

Tekstklasse
54 (44v-45r)
Afskiptisbréf Péturs Bjarnasonar móts við önnur sín samborin systkin.
Rubrik

Afskiptisbréf Péturs Bjarnasonar móts við önnur sín samborin systkin.

Bemærkning

Sex menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Bjarni Oddsson fékk syni sínum, Pétri Bjarnasyni, jarðirnar Torfastaði og Teig í Vopnafirði til fullkomlegrar eignar. Torfastaðir eru þrjátíu hundruð að dýrleika en Teigur átta hundruð. Dags. að Burstarfelli í Vopnafirði 18. ágúst 1657.

Tekstklasse
55 (45r-46r)
Kaup biskupsins á Teigi í Vopnafirði.
Rubrik

Kaup biskupsins á Teigi í Vopnafirði.

Bemærkning

Pétur Bjarnason eldri fær Brynjólfi biskup jörðina Teig í Vopnafirði, sem er átta hundruð að dýrleika, til fullrar eignar. Eignaskiptin eru gerð til að jafna úti um níutíu og sjö ríkisdala skuld Péturs við biskup. Kaupin eru gerð með fullu samþykki fjögurra systkina Péturs. Dags. að Burstarfelli í Vopnafirði 18. ágúst 1657.

Tekstklasse
56 (46r)
Lýsing biskupsins á Svínabakka kaupi, áheyrenda móður Ólafs, Salans.
Rubrik

Lýsing biskupsins á Svínabakka kaupi, áheyrenda móður Ólafs, Salans.

Bemærkning

Tveir menn votta að þeir voru viðstaddir að Svínabökkum í Vopnafirði þann 8. ágúst 1657 þar sem Brynjólfur biskup keypti jörðina Svínabakka af Ólafi Sigfússyni. Í staðinn lætur biskup jörðina Vakursstaði í Vopnafirði og greiðir auk þess 20 ríkisdali í milligjöf. Biskup fékk samþykki hjá Helgu Jónsdóttur, móður Ólafs, fyrir kaupunum. Dags. að Hofteigi 21. ágúst 1657.

Tekstklasse
57 (46v)
Meðkenning um lofun séra Guðmundar Ketilssonar að selja biskupinum Ljósaland í Vopnafirði.
Rubrik

Meðkenning um lofun séra Guðmundar Ketilssonar að selja biskupinum Ljósaland í Vopnafirði.

Bemærkning

Fimm menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl að Refsstöðum í Vopnafirði þann 13. ágúst 1657 þar sem sr. Guðmundur Ketilsson, prestur á Refsstöðum, lofaði að selja Brynjólfi biskup jörðina Ljósaland í Vopnafirði. Í staðinn mun biskup selja Guðmundi jörð sem verður ákveðin síðar. Dags. að Hofteigi í Jökulsdal 21. ágúst 1657.

Tekstklasse
58 (46v-47r)
Lofun Ólafar Sigurðardóttur á Vindfullu að selja biskupinum fyrstum manna aftur Fossgerði.
Rubrik

Lofun Ólafar Sigurðardóttur á Vindfullu að selja biskupinum fyrstum manna aftur Fossgerði.

Bemærkning

Fjórir menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl að Vindfullu í Vopnafirði þar sem Ólöf Sigurðardóttir lofaði að selja Brynjólfi biskup jörðina Fossgerði í Eiðamannaþinghá sem er fimm hundruð að dýrleika. Biskup mun greiða fyrir jörðina í lausafé. Dags. að Hofteigi í Jökulsdal 21. ágúst 1657.

Tekstklasse
59 (47r-47v)
Fullmakt Bjarna Oddssonar upp á nokkrar biskupsins jarðir fyrir austan.
Rubrik

Fullmakt Bjarna Oddssonar upp á nokkrar biskupsins jarðir fyrir austan.

Bemærkning

Brynjólfur biskup heimilar Bjarna Oddssyni að byggja jarðir sínar Fagranes á Langanesi, Bakka á Ströndum og Hámundarstaði í Vopnafirði. Bjarni á að rækta jarðirnar og vakta reka en afgjaldið af jörðunum verður ákveðið síðar. Dags. á Saurstöðum í Jökulsárhlíð 22. ágúst 1657.

Tekstklasse
60 (47v-48v)
Kaupbréf biskupsins fyrir Strandhöfn.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir Strandhöfn.

Bemærkning

Fimm menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Brynjólfur biskup seldi bræðrunum Brandi og Birni Árnasonum jarðirnar Birnufell í Fellum og Skálanes í Seyðarfirði. Hvor jörðin um sig er sex hundruð að dýrleika. Á móti láta bræðurnir jörðina Strandhöfn í Vopnafirði sem er tólf hundruð að dýrleika. Sá hængur er á kaupunum að erfingjar sr. Einars heitins Þorvarðssonar, prests á Valþjófsstöðum, hafa gert kröfu um hálfa Strandhöfn. Biskup bætir því fjórum hundruðum í jörðinni Eyrarteigi í Skriðdal við jörðina sem hann selur bræðrunum og er sá hlutur ætlaður börnum Einars. Fyrir hlutinn í Eyrarteigi greiða bræðurnir biskupi átta hundruð, þar af þrjú gild kúgildi með Strandhöfn sem greiðast um næstu fardaga. Hjalti Jónsson, umboðsmaður biskups, mun síðar innheimta þau fimm hundruð sem út af standa. Dags. að Valþjófsstöðum í Fljótsdal 28. ágúst 1657.

Tekstklasse
61 (48v-49r)
Ráðstöfun biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar við sinn umboðsmann Hjalta Jónsson.
Rubrik

Ráðstöfun biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar við sinn umboðsmann Hjalta Jónsson.

Bemærkning

Brynjólfur biskup veitir Hjalta Jónssyni umboð til þess að semja um afhendingu þriggja kúgilda og fimm hundraða við bræðurna Brand og Björn Árnasyni (sbr. 59. bréf). Dags. að Valþjófsstöðum í Fljótsdal 28. ágúst 1657.

Tekstklasse
62 (49r-49v)
Reikningur Jóns Jónssonar á Dvergasteini.
Rubrik

Reikningur Jóns Jónssonar á Dvergasteini.

Bemærkning

Jón Jónsson, bóndi á Dvergasteini (áður búsettur í Húsavík) gerir reikningsskil við Brynjólf biskup vegna jarðarinnar Eyrarteigs í Skriðdal sem Jón seldi biskupi fimm árum fyrr (sbr. 32. bréf í AM 268 fol.). Jón hafði samið við Hjalta Jónsson, umboðsmann biskups, um að andvirði jarðarinnar kæmi fyrir skólavist og uppihald Ólafs Jónssonar, sonar Jóns, í Skálholtsskóla, en afgangurinn yrði síðan greiddur út þegar skólavist hans lyki. Nú hefur Ólafur lokið vistinni í Skálholtsskóla og reiknaðar eftirstöðvar af andvirði Eyrarteigs eru 33 ríkisdalir sem biskup greiðir með bréfinu. Dags. í Vallanesi 30. ágúst 1657.

Tekstklasse
63 (49v-50r)
Lofun Sigurðar Árnasonar á Hrappstöðum í Vopnafirði biskupinum til handa.
Rubrik

Lofun Sigurðar Árnasonar á Hrappstöðum í Vopnafirði biskupinum til handa.

Bemærkning

Sigurður Árnason, bóndi í Sandbrekku, lofar að selja Brynjólfi biskup jörðina Hreppsstaði í Vopnafirði gegn því að fá í staðinn jörðina Bárðarstaði í Loðmundarfirði. Báðar jarðirnar eru tólf hundruð að dýrleika. Hjalti Jónsson, umboðsmaður biskups, mun fullnusta kaupin þegar þar að kemur. Dags. að Vallanesi 30. ágúst 1657.

Tekstklasse
64 (50r-50v)
Reikningur séra Sigurðar Árnasonar á afgift tveggja jarðarparta biskupsins.
Rubrik

Reikningur séra Sigurðar Árnasonar á afgift tveggja jarðarparta biskupsins.

Bemærkning

Sigurður Árnason yngri, prestur á Skorrastað, greiðir landskuld til Brynjólfs biskups af tveimur jarðarpörtum sem hann hefur í sinni umsjá. Heildarupphæðin er sex dalir fyrir þriggja ára tímabil. Aftan við bréfið er bætt athugasemd um að biskup muni hafa milligöngu fyrir Sigurð við sr. Guðmund Lárentíusson á Stafafelli um að Guðmundur taki Árna, son Sigurðar, til kennslu gegn greiðslu. Dags. á Vallanesi á Völlum 4. september 1657.

Tekstklasse
65 (50v-51r)
Vitnisburður Árna Ketilssonar.
Rubrik

Vitnisburður Árna Ketilssonar.

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, 106-107. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar meðmælabréf fyrir Árna Ketilsson sem áður var nemandi hans í Skálholtsskóla. Biskup gefur Árna góða umsögn og segist ekki vita til annars en að hann hafi verið til fyrirmyndar í orði og verki, en undantekur þó eitt atvik þar sem Árna, ásamt hópi annarra skólapilta, var vísað frá skólanum tímabundið vegna “óleyfilegrar kunnáttu.” Hér vísar biskup til galdrastafamálsins sem upp kom í skólanum 1650. Dags. á Vallanesi á Völlum 4. september 1657.

Tekstklasse
66 (51r-51v)
Reikningur Hjalta Jónssonar og biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar.
Rubrik

Reikningur Hjalta Jónssonar og biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar.

Bemærkning

Yfirlit yfir eftirstöðvar reiknings Hjalta Jónssonar við Brynjólf biskup (sbr. 62. bréf í AM 269 fol.) og þær landskuldir sem Hjalti hefur innheimt af jörðum biskups í Múlasýslu frá 1654. Ódags.

Tekstklasse
67 (51v-53r)
Reikningur biskupstíundanna.
Rubrik

Reikningur biskupstíundanna.

Bemærkning

Yfirlit yfir þær biskupstíundir sem Hjalti Jónsson hefur innheimt frá árinu 1654, svo og þau útgjöld sem Hjalti hefur greitt fyrir hönd biskups á sama tímabili. Aftast er bætt við upplýsingum um landskuldir og afgjöld sem Hjalti á eftir að skila til biskups. Dags. að Vallanesi á Völlum 4. september 1657.

Tekstklasse
68 (53v)
Kaupbréf biskupsins fyrir þremur hundruðum í Ketilsstöðum.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir þremur hundruðum í Ketilsstöðum.

Bemærkning

Páll Björnsson selur Brynjólfi biskup þrjú hundruð í jörðinni Ketilsstöðum í Útmannasveit, en Páll hafði ánafnað biskupi jarðarpartinn skriflega þremur árum fyrr (sbr. 54. bréf í AM 269 fol.). Biskup greiðir í smjöri og reiðufé. Dags. að Vallanesi á Völlum 5. september 1657.

Tekstklasse
69 (54r-55r)
Umboðsbréf Hjalta Jónssonar yfir jörðum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar í Austfjörðum.
Rubrik

Umboðsbréf Hjalta Jónssonar yfir jörðum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar í Austfjörðum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup gefur Hjalta Jónssyni heimild til að byggja sex jarðir í Vopnafirði: Strandhöfn, Fremri-Hlíð, Búastaði, Svínabakka, Vindfell, Eyvindarstaði. Hjalti fær einnig endurnýjað umboð með eignarjörðum og jarðapörtum biskups í Múlasýslu fyrir austan og sunnan Smjörvatnsheiði. Dags. að Vallanesi á Völlum 7. september 1657.

Tekstklasse
70 (55r)
Eignarráð Hjalta Jónssonar yfir hálfum Dísarstöðum og fimm hundruð í Eyrarteigi af biskupi.
Rubrik

Eignarráð Hjalta Jónssonar yfir hálfum Dísarstöðum og fimm hundruð í Eyrarteigi af biskupi.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hann hefur fengið Hjalta Jónssyni, umboðsmanni sínum, hálfa jörðina Dísarstaði í Breiðdal, alls tíu hundruð að dýrleika, og fimm hundruð í jörðinni Eyrarteigi í Skriðdal til fullkominnar eignar. Dags. að Vallanesi á Völlum 7. september 1657.

Tekstklasse
71 (55v)
Samþykki Sigurðar Bjarnasonar upp á Syðri-Kleifar og Skálanes kaup biskupinum gefið.
Rubrik

Samþykki Sigurðar Bjarnasonar upp á Syðri-Kleifar og Skálanes kaup biskupinum gefið.

Bemærkning

Sigurður Bjarnason, bóndi í Snæhvammi í Breiðdal, veitir Brynjólfi biskup samþykki til að gera kaupskap við Eirík Bjarnason, bróður Sigurðar, á jörðunum Syðri-Kleif í Breiðdal og Skálanesi í Seyðarfirði. Biskup hefur þegar rætt kaupin við Eirík og í staðinn mun hann selja Eiríki hálfa jörðina Bæ í Lóni. Dags. að Hálsi 15. september 1657.

Tekstklasse
72 (55v-56r)
Kaupbréf fyrir fremri Kleif í Breiðdal og Skálanesi í Seyðarfirði.
Rubrik

Kaupbréf fyrir fremri Kleif í Breiðdal og Skálanesi í Seyðarfirði.

Bemærkning

Fimm menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Brynjólfur biskup seldi Eiríki Bjarnasyni hálfa jörðina Bæ í Lóni, alls fimmtán hundruð að dýrleika. Í staðinn selur Eiríkur biskupi alla jörðina Fremri-Kleif í Breiðdal, sem er níu hundruð að dýrleika, og alla jörðina Skálanes í Seyðarfirði sem er sex hundruð að dýrleika. Dags. að Stafafelli í Lóni 18. september 1657.

Tekstklasse
73 (56r-56v)
Samþykki Valgerðar Hjörleifsdóttur upp á sölu síns sonar Eiríks Bjarnasonar á Fremri-Kleif í Breiðdal fyrir hálfan Bæ í Lóni.
Rubrik

Samþykki Valgerðar Hjörleifsdóttur upp á sölu síns sonar Eiríks Bjarnasonar á Fremri-Kleif í Breiðdal fyrir hálfan Bæ í Lóni.

Bemærkning

Fylgiskjal með 71. bréfi. Valgerður Hjörleifsdóttir, móðir Eiríks Bjarnasonar, veitir syni sínum skriflegt leyfi fyrir því að selja jörðina Fremri-Kleifar í Breiðdal, sem er hennar eign. Dags. á Stöðvarstað 27. maí 1657.

Tekstklasse
74 (56v-57v)
Reikningur séra Jóns Bjarnasonar á hospítalsins fiski.
Rubrik

Reikningur séra Jóns Bjarnasonar á hospítalsins fiski.

Bemærkning

Yfirlit yfir þann fisk sem sr. Jón Bjarnason, prestur í Bjarnarnesi, hefur innheimt af skipum í Lóni, Hornafirði og Öræfum til spítalans á Hörgslandi á Síðu (sbr. 88. bréf í AM 270 fol.). Dags. á Bjarnarnesi 20. september 1657.

Tekstklasse
75 (57v)
Meðkenning séra Torfa Jónssonar um meðtekna eitt hundrað stórt ríkisdala af Þorleifi Árnasyni.
Rubrik

Meðkenning séra Torfa Jónssonar um meðtekna eitt hundrað stórt ríkisdala af Þorleifi Árnasyni.

Bemærkning

Torfi Jónsson vottar að hann hefur móttekið hundrað og tuttugu ríkisdali frá Þorleifi Árnasyni sem annast greiðsluna fyrir hönd Brynjólfs biskups. Torfi á að koma fénu áfram til sr. Þorláks Bjarnasonar til að greiða fyrir jörðina Sand. Dags. í Gaulverjabæ 20. júlí 1657; afrit gert að Bjarnarnesi í Hornafirði 20. september s.á.

Tekstklasse
76 (58r)
Afgjalds summa af Mýrartungu sem Þórður meðtekið hefur Pétursson.
Rubrik

Afgjalds summa af Mýrartungu sem Þórður meðtekið hefur Pétursson.

Bemærkning

Þrír menn, Guðmundur Bjarnason, Þorleifur Árnason og Gísli Sigurðsson, votta að þeir hafa séð og yfirlesið kvittunarbréf fyrir afgjaldi af Mýrartungu í Króksfirði. Þetta er afgjald sem sr. Guðmundur Bjarnason greiddi Þórði Péturssyni, umboðsmanni Brynjólfs biskups, en Þórður er nú látinn. Dags. að Laugardælum 21. júlí 1657; afrit gert að Bjarnarnesi í Hornafirði 20. september s.á.

Tekstklasse
77 (58r)
Kvittun séra Jóns Bjarnasonar í Bjarnanesi fyrir Bjarnaness umboðs afgjalda meðferð.
Rubrik

Kvittun séra Jóns Bjarnasonar í Bjarnanesi fyrir Bjarnaness umboðs afgjalda meðferð.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að sr. Jón Bjarnason, prestur í Bjarnarnesi, hefur greitt umboðsgjald af jörðinni þar sem hann situr. Greiðsla Jóns er innt af hendi í ýmsu formi, sem smjör, kúgildi og hross. Dags. að Bjarnarnesi í Hornafirði 21. september 1657.

Tekstklasse
78 (58v)
Memorial að minnast við Pétur Þórðarson vegna Björns Magnússonar í Bolungarvík um jarðaskipti.
Rubrik

Memorial að minnast við Pétur Þórðarson vegna Björns Magnússonar í Bolungarvík um jarðaskipti.

Bemærkning

Eldjárn Sumarliðason biður Brynjólf biskup að fara þess á leit við Pétur Þórðarson, bónda á Innra-Hólmi, að hann hafi jarðaskipti við Eldjárn. Jarðirnar sem um ræðir eru Hvítanes í Skötufirði (jörð Péturs) og Hóll á Fellsströnd (jörð Eldjárns), en báðar eru jarðirnar 24 hundruð að dýrleika. Ódags.

Bréfið er yfirstrikað í handriti og bætt svo við með annarri hendi: “Er skriflega skilað en ekki svarað.”

Tekstklasse
79 (59r-59v)
Útskrift af sendibréfi séra Sigurði Torfasyni tilskrifuðu um ofurstans vilja og hans burtför frá Görðum.
Rubrik

Útskrift af sendibréfi séra Sigurði Torfasyni tilskrifuðu um ofurstans vilja og hans burtför frá Görðum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sr. Sigurði Torfasyni, presti í Görðum, varðandi deilu Sigurðar við Tómas Nikulásson sem nú hefur staðið í meira en eitt ár (sbr. 61. og 120. bréf í AM 270 fol.). Biskup hefur nú fengið bréf frá hirðstjóranum Henrik Bjelke sem hefur beðið hann að miðla málum milli Sigurðar og Tómasar, en Bjelke hefur þau orð eftir Tómasi í bréfi sínu að afstaða sr. Sigurðar í deilunni sé fremur sprottin af “prívat hatri en eftir ordinantíunni.” Bjelke hefur biðlað til biskups um að finna annað prestakall þar sem Sigurður gæti tekið við sem aðstoðarprestur. Eina lausa embættið sem Brynjólfur veit um er sjálf Skálholtskirkja, en Halldór Jónsson, fráfarandi kirkjuprestur, mun taka við sem prestur í Reykholti innan hálfs mánaðar. Biskup hvetur sr. Sigurð til að þiggja boðið, enda sé óráðlegt að “bakspyrna á móti broddunum.” Dags. í Skálholti 15. október 1657.

Tekstklasse
80 (60r)
Vitnisburður Árna Rögnvaldssonar.
Rubrik

Vitnisburður Árna Rögnvaldssonar.

Bemærkning

Guðmundur Lárentíusson, prestur á Stafafelli, skrifar Brynjólfi biskup meðmælabréf um Árna Rögnvaldsson sem hefur verið í námi hjá Guðmundi um fimm ára skeið og er nú að hefja nám í Skálholtsskóla. Guðmundur gefur honum sín bestu meðmæli. Dags. á Stafafelli í Lóni 18. september 1657.

Tekstklasse
81 (60r-60v)
Kvittantia Styr Torfasonar upp á andvirði fyrir þrjú hundruð í Ytra-Súlunesi í Melasveit.
Rubrik

Kvittantia Styr Torfasonar upp á andvirði fyrir þrjú hundruð í Ytra-Súlunesi í Melasveit.

Bemærkning

Styr Torfason vottar að hann hefur meðtekið fulla greiðslu fyrir þau þrjú hundruð í jörðinni Ytra-Súlunesi í Melasveit sem hann seldi Brynjólfi biskup (sbr. 73. bréf í AM 269 fol.). Biskup greiðir Styr sex hundruð fyrir jarðarpartinn. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
82 (60v-61r)
Skiptareikningur Árna Pálssonar við biskupinn M. Brynjólf Sveinsson.
Rubrik

Skiptareikningur Árna Pálssonar við biskupinn M. Brynjólf Sveinsson.

Bemærkning

Árni Pálsson staðfestir eigna- og skuldaskipti á milli sín og Brynjólfs biskups. Árni hefur fengið biskupi sexæring til eignar, skip sem biskup hefur áður haft að láni til helminga á móti Árna, en um er að ræða greiðslu með Símoni, syni Árna, sem er við það að hefja nám í Skálholtsskóla. Auk þess kemur fram að biskup hefur greitt Árna landskuld fyrir jarðirnar Gautastaði í Fljótum og Tannastaði. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
83 (61r-62r)
Vígslubréf Péturs Rafnssonar ásamt hans veitingu fyrir Stöðvarstað.
Rubrik

Vígslubréf Péturs Rafnssonar ásamt hans veitingu fyrir Stöðvarstað.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sóknarmönnum í Stöðvarstaðarkirkjusókn og tilkynnir þeim að hann hefur vígt Pétur Rafnsson til prests í sókninni. Eyjólfur Bjarnason, prestur á Kolfreyjustað, og Vigfús Árnason, prófastur í Múlasýslu, aðstoðuðu biskup við að yfirheyra Pétur í guðfræðilegum lærdómi og fór vígslan fram þann 18. október. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
84 (62r-62v)
Grein úr bréfi Halli á Búastöðum tilskrifuðu.
Rubrik

Grein úr bréfi Halli á Búastöðum tilskrifuðu.

Bemærkning

Brot úr bréfi Brynjólfs biskups til Halls Björnssonar sem fengið hefur heimild biskups til ábúnaðar á jörðinni Höfn á Ströndum (sbr. 50. bréf). Biskup skorar á Hall að svara öllum lögskilum fyrir jörðina. Pétur Rafnsson tekur að sér að færa Halli bréfið. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
85 (62v)
Inntak úr bréfi biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Sigurði Bjarnasyni tilskrifuðu.
Rubrik

Inntak úr bréfi biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Sigurði Bjarnasyni tilskrifuðu.

Bemærkning

Brot úr bréfi Brynjólfs biskups til Sigurðar Bjarnasonar, bónda í Snæhvammi í Breiðdal. Biskup býður Sigurði jörðina Fremri-Kleif í Breiðdal til kaups, en biskup hefur skömmu áður keypt jörðina af Eiríki, bróður Sigurðar (sbr. 71. bréf). Sigurður virðist hafa falast eftir jörðinni við biskup og boðið aðra jafndýra jörð í staðinn og biskup spyr nú hvaða jörð Sigurður hafi í huga. Pétur Rafnsson tekur að sér að færa Sigurði bréfið. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
86 (63r)
Inntak úr bréfi biskupsins Bjarna Oddssyni tilskrifuðu.
Rubrik

Inntak úr bréfi biskupsins Bjarna Oddssyni tilskrifuðu.

Bemærkning

Brot úr bréfi Brynjólfs biskups til Bjarna Oddssonar. Biskup biður Bjarna að innheimta afgjald hjá leiguliðum á þremur biskupsjörðum, þ.e. Fagranesi, Bakka og Hámundarstöðum, auk þess sem hann æskir þess að Bjarni gæti að því hvort viðhald jarða og eftirlit með reka séu ekki í góðu lagi á umræddum jörðum. Pétur Rafnsson tekur að sér að færa Bjarna bréfið. Dags. í Skálholti 19. október 1657.

Tekstklasse
87 (63v)
Meðkenning séra Péturs Rafnssonar upp á meðtekna 33 ríkisdali.
Rubrik

Meðkenning séra Péturs Rafnssonar upp á meðtekna 33 ríkisdali.

Bemærkning

Pétur Rafnsson, nývígður prestur á Stöðvarstað, vottar að hann hefur móttekið þrjátíu og þrjá ríkisdali úr hendi Brynjólfs biskups. Um er að ræða eftirstöðvar af skuld biskups við Jón Jónsson á Dvergasteini í Seyðarfirði, móðurbróður sr. Péturs (sbr. 61. bréf), en Pétur á að koma fénu til Jóns. Dags. í Skálholti 20. október 1657.

Tekstklasse
88 (63v)
Trjáreikningur biskupsins í Hafnarfirði.
Rubrik

Trjáreikningur biskupsins í Hafnarfirði.

Bemærkning

Yfirlit yfir viði sem tilheyra Brynjólfi biskup og eru í vörslu Jóns Halldórssonar á Hvaleyri í Hafnarfirði. Dags. 21. október 1657.

Tekstklasse
89 (64r-64v)
Kaupbréf fyrir fjórum hundruðum í Bæ í Lóni af Jóni í Oddgeirshólum fyrir 32 ríkisdali.
Rubrik

Kaupbréf fyrir fjórum hundruðum í Bæ í Lóni af Jóni í Oddgeirshólum fyrir 32 ríkisdali.

Bemærkning

Jón Jónsson, lögréttumaður í Oddgeirshólum, selur Brynjólfi biskup fjögur hundruð í jörðinni Bæ í Lóni. Það er Þorleifur Árnason sem annast kaupin fyrir hönd biskups og kaupin eru gerð að frumkvæði Þórdísar Jónsdóttur, móður Jóns. Þorleifur greiðir Jóni þrjátíu og tvo ríkisdali fyrir jarðarpartinn. Dags. að Oddgeirshólum 21. júlí 1657.

Tekstklasse
90 (64v)
Meðkenning Jóns Jónssonar.
Rubrik

Meðkenning Jóns Jónssonar.

Bemærkning

Jón Jónsson á Dvergasteini staðfestir að hann hefur móttekið þrjátíu og þrjá ríkisdali úr hendi Rafns Jónssonar sem hefur skilað fénu frá sr. Pétri Rafnssyni, en um er að ræða eftirstöðvar skuldar frá Brynjólfi biskup (sbr. 86. bréf). Dags. á Vallanesi 7. september 1659; afrit gert í Skálholti 21. október s.á.

Tekstklasse
91 (65r)
Álnarreytur eftir Ásmund heitinn Brynjólfsson.
Rubrik

Álnarreytur eftir Ásmund heitinn Brynjólfsson.

Bemærkning

Átta menn úrskurða um skiptingu eftirlátinna eigna eftir Ásmund Brynjólfsson, ómaga í Skálholti, sem er nýlátinn. Ásmundur hafði framfærslu til skiptis hjá Skálholtsbiskupi og hreppstjórunum í Tungnasveit, þeim Eiríki og Jóni Þorsteinssonum og Jóni Þorvaldssyni. Bræðurnir Gissur og Árni Bjarnasynir, sem teljast erfingjar eftir Ásmund, samþykkja að eigur hins látna skiptist jafnt á milli hreppsins og biskupsins. Hvor helmingur um sig reiknast fjögur ærgildi, ásamt því sem er “hálft frítt, hálft ófrítt skran. Dags. í Skálholti 18. október 1657.

S. 65v er auð.

Tekstklasse
92 (66r-67v)
Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar af rökum og ástæðum sem hann hefur átt við Bjarna Oddsson frá anno 1654.
Rubrik

Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar af rökum og ástæðum sem hann hefur átt við Bjarna Oddsson frá anno 1654.

Bemærkning

Yfirlit yfir þau afgjöld sem Bjarni Oddsson hefur innheimt af jörðum biskups í umboði hans frá árinu 1654. Ódags.

Tekstklasse
93 (68r)
Vitnisburður séra Halldórs Jónssonar frá Reykholti.
Rubrik

Vitnisburður séra Halldórs Jónssonar frá Reykholti.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar vitnisburð um sr. Halldór Jónsson sem býst undir að taka við prestsembætti í Reykholti. Biskup hefur þekkt Halldór frá því hann kom til náms í Skálholtsskóla, fjórtán ára að aldri, en Halldór stundaði nám við skólann um átta ára skeið. Að námi loknu starfaði Halldór við Skálholt í sex ár, fyrstu þrjú árin í skólaþjónustu en síðari þrjú árin sem kirkjuprestur. Segist biskup ekki vita til annars en að Halldór hafi hegðað sér frómlega og siðsamlega allan þennan tíma. Dags. í Skálholti 22. október 1657.

Tekstklasse
94 (68v-70r)
Vorreikningur á biskupsins jörðum í Borgafirði.
Rubrik

Vorreikningur á biskupsins jörðum í Borgafirði.

Bemærkning

Samantekt á öllum þeim eigum sem tilheyra biskupsjörðum í Borgarfirði, bæði kvikfénaði og búsgögnum. Jarðirnar sem um ræðir eru Höfn í Melasveit, Skálpastaðir í Lundarreykjadal, Reynir á Akranesi og Mófeldsstaðir í Skorradal. Dags. að Höfn 19. maí 1657.

Tekstklasse
95 (70r-70v)
Reikningur millum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og Sigurðar Pálssonar.
Rubrik

Reikningur millum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og Sigurðar Pálssonar.

Bemærkning

Yfirlit um skuldaskipti Brynjólfs biskups og Sigurðar Pálssonar, einkum um kvikfénað. Dags. 19. október 1657.

Tekstklasse
96 (70v-71r)
Vígslubréf Magnúsar Jónssonar.
Rubrik

Vígslubréf Magnúsar Jónssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sóknarmönnum kirknanna í Kvennabrekku og Vatnshorni í Dalasýslu og tilkynnir þeim að hann hefur vígt Magnús Jónsson til prests í umræddum sóknum. Sóknarmenn höfðu áður tilnefnt Magnús í embættið og fengið samþykki héraðsprófasts fyrir tillögunni, en Magnús tekur við af föður sínum, sr. Jóni Ormssyni, sem lést fyrr á árinu. Dags. í Skálholti 26. október 1657.

Tekstklasse
97 (71r-71v)
Þorlákshafnarreka trjáreikningur.
Rubrik

Þorlákshafnarreka trjáreikningur.

Bemærkning

Samantekt um þann við sem hefur rekið að landi við Þorlákshöfn, en ekki kemur fram á hvaða tímabili. Höfundur samantektarinnar er Álfur Gíslason, lögréttumaður á Reykjum í Ölfusi. Dags. 17. október 1657; móttekið í Skálholti þremur dögum síðar.

Tekstklasse
98 (71v-72r)
Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar upp á meðtekna 30 ríkisdali fyrir þrjú hundruð í Króki.
Rubrik

Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar upp á meðtekna 30 ríkisdali fyrir þrjú hundruð í Króki.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hann hefur meðtekið þrjátíu ríkisdali frá Sigurði Jónssyni í Einarsnesi, en um er að ræða greiðslu fyrir þrjú hundruð í jörðinni Króki í Holtum sem biskup seldi Sigurði um sumarið (sbr. 7. bréf). Það er Gísli Sigurðsson sem annast milligöngu um greiðsluna fyrir Sigurð. Dags. í Skálholti 29. október 1657.

Tekstklasse
99 (72r-72v)
Grein úr bréfi séra Jóni Pálssyni tilskrifuðu af biskupinum .
Rubrik

Grein úr bréfi séra Jóni Pálssyni tilskrifuðu af biskupinum .

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, 107-108. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sr. Jóni Pálssyni í Selvogi um málefni Ragnhildar, dóttur Jóns, og fyrirhugaða giftingu hennar og Jóns Jónssonar (sbr. 235. og 283. bréf í AM 269 fol.). Sr. Jón hefur skrifað biskupi að hann vilji ekki samþykkja hjónabandið nema Jón Jónsson sverji að hann hafi ekki verið í tygjum við aðrar konur á meðan á trúlofun hans og Ragnhildar hefur staðið. Segist sr. Jón jafnframt hafa heimildir fyrir því að Jón Jónsson hafi átt sér frillu um nokkurt skeið, konu sem heitir Ingibjörg, en föðurnafnið fylgir ekki í bréfinu. Biskup segir ekkert því til fyrirstöðu að kalla saman prestastefnu í þeim tilgangi að láta Jón Jónsson sverja eið að skírlífi sínu og trúfesti. Stefnan verði þó að bíða þar til daginn tekur að lengja og reiðfærið verður nægilega gott. Dags. í Skálholti 31. október 1657.

Tekstklasse
100 (72v)
Trjáreikningur í Herdísarvík, uppskrifaður af Sigmundi Jónssyni.
Rubrik

Trjáreikningur í Herdísarvík, uppskrifaður af Sigmundi Jónssyni.

Bemærkning

Yfirlit yfir viði sem tilheyra Brynjólfi biskup og eru í vörslu Sigmundar Jónssonar í Herdísarvík. Dags. 27. október 1657.

Tekstklasse
101 (73r-73v)
Afhending skrúðans í Skálholti.
Rubrik

Afhending skrúðans í Skálholti.

Bemærkning

Yfirlit yfir skrúða og áhöld í Skálholtskirkju, gert þegar sr. Halldór Jónsson lætur af embætti kirkjuprests og sr. Sigurður Torfason tekur við. Dags. í Skálholti 22. október 1657.

Tekstklasse
102 (73v-74v)
Úr Bréfi Bjarna Eiríkssonar.
Rubrik

Úr Bréfi Bjarna Eiríkssonar.

Bemærkning

Brot úr bréfi Bjarna Eiríkssonar til Brynjólfs biskups. Bjarni greinir biskupi frá samskiptum sínum við tengdaföður sinn Bjarna Oddsson, sýslumann í Burstarfelli, sem seldi biskupi hálfa jörðina Hafrafell í heimildarleysi árið 1654 (sbr. 51. bréf). Bjarni sýslumaður kennir minnisleysi sínu um mistökin og biður Bjarna Eiríksson um aðstoð við að krefjast réttar síns við þá er selt höfðu honum jörðina áður. Einnig er fjallað um jörðina Teig í Vopnafirði í bréfinu en Pétur, sonur Bjarna Oddssonar, seldi Brynjólfi biskup þá jörð um sumarið (sbr. 54. bréf). Bjarni Eiríksson hefur tjáð Bjarna Oddssyni óánægju sína með að Teigur hafi verið seldur Brynjólfi biskup því hann fullyrðir að jörðin sé lögmæt eign Sigríðar Bjarnadóttur, eiginkonu Bjarna Eiríkssonar og dóttur Bjarna Oddssonar. Dags. í Búlandi 6. nóvember 1657; afrit gert í Skálholti 12. nóvember s.á.

Tekstklasse
103 (74v-75v)
Vígslubréf Snjólfs Einarssonar.
Rubrik

Vígslubréf Snjólfs Einarssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sóknarmönnum á Álftanesi og tilkynnir að hann hefur vígt Snjólf Einarsson til aðstoðarprests með sr. Ólafi Jónssyni á Görðum. Snjólfur kemur í stað Sigurðar Torfasonar sem er nú horfinn frá Görðum eftir deilur við Tómas Nikulásson, höfuðsmann á Bessastöðum (sbr. 61. og 103. bréf í AM 269 fol.) Biskup beinir orðum sínum sérstaklega til Tómasar í bréfinu og segist vona að “hann vilji hans [Snjólfs] þjónustu í hentugan tíma ásjá.” Dags. í Skálholti 15. nóvember 1657.

Tekstklasse
104 (75v-76r)
Vígslubréf Péturs Ámundasonar.
Rubrik

Vígslubréf Péturs Ámundasonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sóknarmönnum í Ölfusi og tilkynnir að hann hefur vígt Pétur Ámundason til aðstoðarprests með sr. Jóni Daðasyni í Arnarbæli. Sr. Jón hafði áður beðið biskup um að sér yrði fenginn aðstoðarprestur og tilfærði hann einkum tvenn rök til stuðnings þeirri bón sinni: “bágindi milli sóknanna, sem og fjölmenni í Þorlákshöfn.” Dags. í Skálholti 15. nóvember 1657.

Tekstklasse
105 (76r-77v)
Kvittantia Halldórs Sigfússonar.
Rubrik

Kvittantia Halldórs Sigfússonar.

Bemærkning

Halldór Sigfússon staðfestir að átta hundraða jarðarpartur í Ásbrandsstöðum, sem Helga Jónsdóttir, móðir Halldórs, seldi biskupi árið 1648 er með réttu eign biskups. Helga seldi biskupi jarðarpartinn sem greiðslu með Halldóri þegar hann hóf nám tólf vetra gamall, fyrst einn vetur hjá sr. Vigfúsi Árnasyni að Hofi í Vopnafirði en síðan átta vetur í Skálholtsskóla. Halldór gerir grein fyrir því hvernig reikningurinn fyrir jarðarpartinum skiptist í útgjaldaliði og nefnir þar m.a. að hann hafi haft hest sinn með sér allan þann tíma sem hann var í Skálholti og var hesturinn á fullu fóðri. Niðurstaða Halldórs er að nám hans og uppihald í Skálholti hafi verið eins og um var samið og biskup teljist því réttmætur eigandi jarðarpartsins í Ásbrandsstöðum. Dags. í Skálholti 29. nóvember 1657.

Tekstklasse
106 (77v-78r)
Kvittun Magnúsar Þorsteinssonar fyrir Skammbeinsstaða umboðsreikning.
Rubrik

Kvittun Magnúsar Þorsteinssonar fyrir Skammbeinsstaða umboðsreikning.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að Magnús Þorsteinsson, sýslumaður í Rangárþingi, hefur skilað til hans leigugjöldum og landskuldum sem hann hefur innheimt í Skammbeinsstaðaumboði fyrir árið 1657. Af því fé sem safnast hefur fær biskup tvo þriðju, eða alls fimmtán hundruð og fimm aura. Einn þriðji rennur í hlut Magnúsar. Dags. í Skálholti 4. desember 1657.

Tekstklasse
107 (78r-79v)
Ráðsmanns umboðsbréf.
Rubrik

Ráðsmanns umboðsbréf.

Bemærkning

Brynjólfur biskup fær Magnúsi Þorsteinssyni, sýslumanni í Rangárþingi, byggingarráð og ráðsmannsumboð yfir þeim dómkirkjujörðum sem nefndar eru Skammbeinsstaðaumboð. Magnús fær það hlutverk að finna ábyrga ábúendur á jarðirnar og innheimta landskuld af þeim. Magnús á auk þess að vakta reka á jörðunum og fá landsetana til að aðstoða sig við að flytja viðina yfir Þjórsá að Háholti. Dags. í Skálholti 5. desember 1657.

Tekstklasse
108 (79v)
(engin fyrirsögn)
Rubrik

(engin fyrirsögn)

Bemærkning

Skuldaviðurkenning. Brynjólfur biskup lánar Jóni Sigurðssyni í Káranesi átta ríkisdali. Dags. í Skálholti 6. desember 1657.

Tekstklasse
109 (79v-80r)
Vígslubréf Árna Halldórssonar.
Rubrik

Vígslubréf Árna Halldórssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sr. Halldóri Daðasyni í Hruna, prófasti í Árnessþingi, og sóknarmönnum í Hruna-, Reykjadals- og Tungufellskirkjusóknum. Erindi biskups er að tilkynna að hann hefur vígt Árna, son Halldórs, til aðstoðarprest með föður sínum. Vígslan fór fram í Skálholtskirkju þann 13. desember. Dags. í Skálholti 15. desember 1657.

Tekstklasse
110 (80r-80v)
Biskupstíunda reikningur af Árnessýslu anno 1657.
Rubrik

Biskupstíunda reikningur af Árnessýslu anno 1657.

Bemærkning

Yfirlit yfir biskupstíundir úr Árnessýslu árið 1657. Dags. í Skálholti 23. desember 1657.

Tekstklasse
111 (81r)
Kvittun Jóns á Hömrum upp á biskupstíunda reiknings og greiðslu af Árnessýslu.
Rubrik

Kvittun Jóns á Hömrum upp á biskupstíunda reiknings og greiðslu af Árnessýslu.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að Jón Jónsson á Hömrum hefur staðið skil á þeim biskupstíundum sem safnast hafa í Árnessýslu árið 1657. Dags. í Skálholti 23. desember 1657.

Tekstklasse
112 (81v)
Kvittantia Jóns Jónssonar á Hömrum fyrir Hamraumboðs meðferð.
Rubrik

Kvittantia Jóns Jónssonar á Hömrum fyrir Hamraumboðs meðferð.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að Jón Jónsson á Hömrum hefur staðið reikningsskap á öllum peningi Skálholtsdómkirkjunnar í Hamraumboði, þ.e. Grímsnesi, Grafningi og Ölvesi, fyrir árið 1657. Dags. í Skálholti 23. desember 1657.

Tekstklasse
113 (82r)
Meðkenning Jóns Jónssonar á Hömrum upp á þrjú kúgildi.
Rubrik

Meðkenning Jóns Jónssonar á Hömrum upp á þrjú kúgildi.

Bemærkning

Jón Jónsson, lögréttumaður á Hömrum, vottar að hann hefur móttekið þrjú kúgildi frá Brynjólfi biskup. Kúgildin eru eign Jóns með réttu, en þau fylgdu jarðarpartinum í Fjalli í Ölvesi sem Jón seldi biskupi fyrr á árinu (sbr. 178. bréf í AM 270 fol.). Dags. í Skálholti 24. desember 1657.

Tekstklasse
114 (82r-82v)
Byggingarráðabréf Björns Þorvaldssonar á Vindási í Landi.
Rubrik

Byggingarráðabréf Björns Þorvaldssonar á Vindási í Landi.

Bemærkning

Brynjólfur biskup veitir Birni Þorvaldssyni jörðina Vindás á Landi til ábúnaðar í eitt ár. Jörðinni fylgja fjögur leigukúgildi. Dags. í Skálholti 6. janúar 1658.

Tekstklasse
115 (83r)
Reiðingsskurðarleyfi útgefið Birni Þorvaldssyni að skera upp á 15 hesta á Hreiðri í Holtum.
Rubrik

Reiðingsskurðarleyfi útgefið Birni Þorvaldssyni að skera upp á 15 hesta á Hreiðri í Holtum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup heimilar Birni Þorvaldssyni að skera reiðing á fimmtán hesta á jörðinni Hreiðri í Holtum. Dags. í Skálholti 6. janúar 1658.

Tekstklasse
116 (83r-85r)
Húsaskoðun Reynis á Akranesi.
Rubrik

Húsaskoðun Reynis á Akranesi.

Bemærkning

Tveir erindrekar biskups, Sigurður Torfason og Þorleifur Árnason, skoða húsakost á jörðinni Reyni á Akranesi. Bréfið er tvískipt og er í hvorum helmingi lýst húsum annars tveggja ábúenda á jörðinni, en þeir eru Gísli Sæmundsson og Þorvarður Kolbeinsson. Þau hús sem Gísli hefur yfir að ráða fá almennt slæma umsögn, eru sögð “fúin” og “fánýt” að undanteknu einu skálahúsi sem er sagt “á öllu sterkt og stæðilegt.” Ástandið á húsum Þorvarðar er öllu betra þótt þar séu fúin og gömul hús innan um. Bæði Gísli og Þorvarður fá afhenta viði til viðhalds á húsunum og er yfirlit yfir þá í bréfinu. Dags. í Skálholti 8. janúar 1658.

Tekstklasse
117 (85r-86v)
Húsaskoðun Skammbeinsstaða.
Rubrik

Húsaskoðun Skammbeinsstaða.

Bemærkning

Lýsing á húsakosti á jörðinni Skammbeinsstöðum. Skoðunin er gerð af því tilefni að Finnur Guðmundsson, sem hefur búið á jörðinni undanfarin ár, hefur nú flust búferlum. Það er Magnús Þorsteinsson sem tekur saman húsareikninginn og sendir til Skálholts en þeir Þorleifur Árnason og Daði Halldórsson skrifa hann upp. Auk þess sem sagt er um húsakostinn er í bréfinu að finna lýsingu á ýmsum búsgögnum og innanstokksmunum, þ. á m. gripum kirkjunnar. Dags. í Skálholti 12. janúar 1658.

Tekstklasse
118 (86v-87r)
Kvittantia biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og séra Guðmundar Bjarnasonar.
Rubrik

Kvittantia biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og séra Guðmundar Bjarnasonar.

Bemærkning

Sr. Guðmundur Bjarnason, prestur í Laugardælum, staðfestir að Brynjólfur biskup hefur staðið skil á öllum landskuldum og leignagjöldum af jörðinni Mýrartungu í Króksfirði, auk þeirra innstæðukúgilda sem jörðinni tilheyra og voru áður í eigu Guðmundar. Dags. í Skálholti 20. janúar 1658.

Tekstklasse
119 (87v-88v)
Mýrartungu í Króksfirði úttekt af séra Gunnlaugi Snorrasyni.
Rubrik

Mýrartungu í Króksfirði úttekt af séra Gunnlaugi Snorrasyni.

Bemærkning

Gunnlaugur Snorrason, umboðsmaður Brynjólfs biskups, skrifar ítarlega lýsingu á húsakosti á jörðinni Mýrartungu í Króksfirði en þar eru alls tólf hús. Greinargerðinni fylgir samantekt um búfénað á jörðinni og selstöðu er tilheyrir landinu. Skjalið er sent til Alþingis. Dags. 30. júní 1657.

Tekstklasse
120 (88v-89r)
Lýsing séra Guðmundar Bjarnasonar upp á Mýrartungu landamerki ítakalaus.
Rubrik

Lýsing séra Guðmundar Bjarnasonar upp á Mýrartungu landamerki ítakalaus.

Bemærkning

Sr. Guðmundur Bjarnason, prestur í Laugardælum, lýsir landamerkjum jarðarinnar Mýrartungu í Króksfirði eftir sinni bestu vitneskju. Skjalið er sent til Brynjólfs biskups á Alþingi sumarið 1657; afritið gert í Skálholti 21. janúar 1658.

Tekstklasse
121 (89r-89v)
Útvalning séra Jóhanns Jónssonar af Sæbóls sóknarmönnum.
Rubrik

Útvalning séra Jóhanns Jónssonar af Sæbóls sóknarmönnum.

Bemærkning

Átta sóknarmenn í Sæbólskirkjusókn lýsa yfir stuðningi við sr. Jóhann Jónsson í embætti sóknarprests, en Jóhann hefur áður lýst því yfir að hann hafi áhuga á að gegna embættinu. Tveir mótframbjóðendur eru nefndir í bréfinu, sr. Árni og sr. Sigurður, en föðurnöfnin vantar. Dags. að Sæbóli á Ingjaldssandi 30. nóvember 1657; afrit gert í Skálholti 2. febrúar 1658.

Tekstklasse
122 (90r-95r)
Ráðsmanns umboðsbréf Jóni Jónssyni á Hömrum útgefið.
Rubrik

Ráðsmanns umboðsbréf Jóni Jónssyni á Hömrum útgefið.

Bemærkning

Brynjólfur biskup veitir Jóni Jónssyni, lögréttumanni á Hömrum í Grímsnesi, umboð fyrir jörðum Skálholts í Grímsnesi, Grafningi, Ölfusi og út með sjónum í Grindavík. Samanlagt eru þetta 62 jarðir ásamt innstæðukúgildum, afgjöldum og ítökum. Jón á að safna reka, hafa yfirumsjón með allri skipaútgerð, flytja fisk í kaupstaði og fylgjast með því að allir ábúendur jarða haldi þeim við góða rækt og haldi við húsum. Honum ber síðan að standa árlegan reikning á öllu saman til biskups. Getið er um ýmsar kvaðir landsetanna á þeim jörðum sem um ræðir, þ. á m. eitt mannslán af hverri jörðu til sjóróðra. Ítarlega er rætt um skyldur Jóns sem fela í sér landgang, hvalreka, skipaútgerð, nauðsynjareiðir og ýmislegt fleira. Gjörningurinn skal gilda á meðan báðir eru ásáttir. Dags. í Skálholti 9. febrúar 1658.

Tekstklasse
123 (95r-96r)
Framburður Vigfúsa Jónssonar að Heysholti upp á Björn Guðmundsson um misþyrming nokkra.
Rubrik

Framburður Vigfúsa Jónssonar að Heysholti upp á Björn Guðmundsson um misþyrming nokkra.

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, 108-109. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Vigfús Jónsson, bóndi í Heysholti, kemur til Skálholts og ber vitni um ofbeldi sem hann hefur þurft að þola af hendi nágranna síns, Björns Guðmundssonar að Flagbjarnarholti. Átökin eiga rætur í eldri deilum milli þeirra Vigfúsar og Björns sem birtust m.a. í því að Vigfús þurfti að svara fyrir ólöglega sölu á reiðingstorfum til Björns og fleiri manna (sbr. 159. bréf í AM 269 fol.). Vigfús greinir frá því þegar Björn réðst á Jón, son Vigfúsar, er Jón sinnti hestum úti við svo að hann hlaut af mikinn bakverk. Vigfús fékk þá lánaðan “arngeirsstaf” sem hann hafði með sér til kirkju í tvígang ef ske kynni að hann þyrfti að verja sig. Í seinna skiptið skildi hann stafinn eftir úti við húsagarð en Björn braut hann í sex parta á meðan á messunni stóð. Vigfúsi þykir hegðun Björns orðin svo ógnandi að hann leitar eftir liðsinni biskups við að leysa deiluna. Dags. í Skálholti 18. febrúar 1658.

Tekstklasse
124 (96r-97v)
Áminningarbréf biskupsins sent séra Jóni á Fellsmúla til að lesa yfir Birni Guðmundssyni.
Rubrik

Áminningarbréf biskupsins sent séra Jóni á Fellsmúla til að lesa yfir Birni Guðmundssyni.

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, 110-111. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar sr. Jóni Jónssyni í Fellsmúla, greinir honum frá deilum Vigfúsar Jónssonar og Björns Guðmundssonar (sbr. 121. bréf) og biður hann að miðla málum milli deiluaðila. Ætlun biskups er að sr. Jón lesi bréfið upphátt þegar Vigfús og Björn eru báðir viðstaddir, en texti bréfsins minnir einna helst á prédikun þar sem lagt er út af orðum frelsarans. Í bréfinu vitnar Brynjólfur einnig til 5. kapítula Galatabréfsins og skipar ofstopa Björns í þann flokk sem Páll postuli kallar “holdsins verk.” Dags. í Skálholti 19. febrúar 1658.

Tekstklasse
125 (97v)
Gjörningur millum biskupsins M. Sveinssonar og Jóns Jónssonar smiðs um skuldir Jóns.
Rubrik

Gjörningur millum biskupsins M. Sveinssonar og Jóns Jónssonar smiðs um skuldir Jóns.

Bemærkning

Jón Jónsson, smiður í Skálholti, hefur tilkynnt Brynjólfi biskup að hann vilji fara frá staðnum. Ástæðan er sú að hann vill liðsinna föður sínum, Jóni Þórðarsyni, sem skuldar biskupi fé. Jón eldri býr á Bóli sem er dómkirkjujörð en Jón sonur hans vill vinna að því að segja jörðinni lausri og finna afbýli eða hjáleigu þar sem hann geti búið. Niðurlag bréfsins vantar og það er því ódagsett.

S. 98r er auð.

Tekstklasse
126 (98v-99r)
Hæderlig och höylerdi Mand M. Bryndholffur Biskobff for Sönden offer Islannd bekommet.
Rubrik

Hæderlig och höylerdi Mand M. Bryndholffur Biskobff for Sönden offer Islannd bekommet.

Bemærkning

Reikningur Páls Kristjánssonar, kaupmanns í Hólmi, við Brynjólf biskup fyrir árið 1655. Dags. 23. júní 1655.

S. 99v er auð að undanskilinni utanáskrift 125. bréfs.

Tekstklasse
127 (100r-109v)
Skagareikningur Þorvarðs Magnússonar anno 1656.
Rubrik

Skagareikningur Þorvarðs Magnússonar anno 1656.

Bemærkning

Reikningur Þorvarðar Magnússonar, kaupmanns á Skaga, við Brynjólf biskup og landseta á Skálholtsjörðum fyrir árin 1656 og 1657. Þessi gögn eru skrifuð upp eftir reikningskveri Þorvarðar. Dags. í Skálholti 16. mars 1658.

Tekstklasse
128 (109v)
Hlutir biskupsins á Akranesi útteknir á krossmessu 1658.
Rubrik

Hlutir biskupsins á Akranesi útteknir á krossmessu 1658.

Bemærkning

Viðauki við 126. bréf. Yfirlit yfir þá biskupshluti sem útteknir hafa verið á Akranesi á árinu 1658, gert eftir reikningi Þorvarðar Magnússonar kaupmanns. Dags. á Höfn í Melasveit 22. maí 1658.

Tekstklasse
129 (110r-111v)
Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi (coperadur) Anno 1656.
Rubrik

Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi (coperadur) Anno 1656.

Bemærkning

Reikningur Páls Kristjánssonar, kaupmanns í Hólmi, við Brynjólf biskup fyrir árið 1656. Dags. á Hólmi 7. júlí 1656. Viðauki aftan við er dags. á Hólmi 29. júlí 1657.

S. 111r og 112r-113r eru auðar.

Tekstklasse
130 (113v-114r)
Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi Anno 1658.
Rubrik

Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi Anno 1658.

Bemærkning

Reikningur Páls Kristjánssonar, kaupmanns í Hólmi, við Brynjólf biskup fyrir árið 1657. Dags. 14. maí 1658.

S. 114v er auð.

Tekstklasse
131 (115r-115v)
Inntak úr sendibréfi Biskupsins til Sigurðar Jónssonar sýslumanns.
Rubrik

Inntak úr sendibréfi Biskupsins til Sigurðar Jónssonar sýslumanns.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Sigurði Jónssyni sýslumanni, lögmanni í Einarsnesi, um fyrirhugaða sölu jarðarinnar Skipaness í Melasveit. Biskup hefur áður selt sr. Þórði Jónssyni í Hítardal jörðina og hafði Sigurður milligöngu um söluna fyrir hönd Þórðar (sbr. 6. bréf). Nú stendur fyrir dyrum að biskup eignist jörðina aftur og er ætlunin að hann selji hana sr. Gunnlaugi Snorrasyni fyrir jörðina Maulustaði í Borgarfirði. Gunnlaugur hefur nefnt það í bréfi til biskups að hann sé reiðubúinn að selja honum jörðina fyrir aðra jörð vestanlands en ekkert hefur verið ákveðið frekar um kaupin. Biskup biður Sigurð að ræða við sr. Gunnlaug um fyrirhuguð jarðaskipti og þau mál er þeim tengjast. Dags. í Skálholti 16. mars 1658.

Tekstklasse
132 (115v-117r)
Umboðsbréf Þorvarðs Magnússonar yfir Heyness umboði og sjóarútveg og skipaútgjörð á Akranesi.
Rubrik

Umboðsbréf Þorvarðs Magnússonar yfir Heyness umboði og sjóarútveg og skipaútgjörð á Akranesi.

Bemærkning

Brynjólfur biskup ritar opið bréf og tilkynnir að hann hefur fengið Þorvarði Magnússyni Heyness umboð, en Páll Gíslason, sem hefur haft umboðið undanfarin ár, hefur nýlega sagt því upp. Umboðið felur í sér umráð yfir skipaútgerð á umboðsjörðunum á Akranesi, eftirlit með því að landsetar rækti jarðir og haldi við húsum, innheimtu leigugjalda, jöfnun skulda o.fl. Sérstaklega er kveðið á um að þeim landsetum sem ekki ræki skyldur sínar skuli úthýst af jörðum. Þorvarður fær greidd fimm hundruð árlega fyrir að sinna umboðinu. Þorvarði er gert að skila reikningabók til biskups árlega þar sem gerð er grein fyrir öllum tekjum og útgjöldum. Um vorið á Þorvarður að fara í yfirreið um jarðrinar með forvera sínum, Páli Gíslasyni, sem mun láta honum í té allar nánari upplýsingar um jarðirnar. Dags. í Skálholti 16. mars 1658.

Tekstklasse
133 (117v)
Heimildar og eignarráð yfir Sandi í Kjós gefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.
Rubrik

Heimildar og eignarráð yfir Sandi í Kjós gefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.

Bemærkning

Þorlákur Bjarnason, prestur á Helgafelli, tjáir Brynjólfi biskup að jörðin Sandur í Kjós sé honum heimil til eignar. Biskup mun greiða gjald fyrir jörðina (sbr. 74. bréf) en ekki hefur enn verið samið um verðið. Þorlákur nefnir engar upphæðir en segist treysta biskupi til að finna sanngjarnt verð. Dags. á Helgafelli 15. mars 1658.

Tekstklasse
134 (118r-118v)
Hospítalsins að Hallbjarnareyri byggingarbréf.
Rubrik

Hospítalsins að Hallbjarnareyri byggingarbréf.

Bemærkning

Matthías Guðmundsson, umboðsmaður Brynjólfs biskups, semur við Þórð Guðmundsson, bónda í Gröf, um að sá síðarnefndi taki að sér yfirumsjón spítalans á Hallbjarnareyri frá fardögum 1658 til fardaga 1659. Þórður fær yfirráð yfir jörðinni Eyri með öllum landgæðum og í staðinn mun hann annast alla sjúklinga á spítalanum, en þeir eru fjórir að tölu. Dags. á Arnarstapa 7. október 1657; afrit gert í Skálholti 2. apríl 1658.

Tekstklasse
135 (119r-119v)
Útskrit úr bréfi lögmannsins herra Árna Oddssonar séra Þorsteini í Holti tilskrifuðu.
Rubrik

Útskrit úr bréfi lögmannsins herra Árna Oddssonar séra Þorsteini í Holti tilskrifuðu.

Bemærkning

Árni Oddsson lögmaður skrifar sr. Þorsteini Jónssyni, presti í Holti. Árni ætlar sér að bjóða upp hálfa jörðina Reyki í Lundarreykjadal en jarðarparturinn er próventugjöf frá Arnfríði Rafnsdóttur, eiginkonu Teits Helgasonar sem hefur arfleitt Brynjólf biskup að eignum sínum (sbr. 110. og 137. bréf í AM 270 fol.). Ætlunin er að Arnfríður verði á framfæri Árna lögmanns í ellinni. Þorsteinn hefur skrifað Árna að hann hafi ekki áhuga á að kaupa jarðarpartinn svo að Árni hyggst nú selja hann einhverjum öðrum. Árni bregst jafnframt við bón Þorsteins um að hann veiti sér veð í fimm hundraða jarðarparti “fyrir austan.” Tillaga Árna er að Þorsteinn greiði honum 40 ríkisdali fyrir fimm hundraða part í jörðinni Stóradal í Eyjafirði. Dags. að Leirá 14. júlí 1657.

Tekstklasse
136 (119v-120v)
Annað bréf lögmannsins herra Árna Oddssonar um sama efni útskrifað.
Rubrik

Annað bréf lögmannsins herra Árna Oddssonar um sama efni útskrifað.

Bemærkning

Árni Oddsson lögmaður skrifar sr. Þorsteini Jónssyni, presti í Holti. Erindið er hið sama og í 135. bréfi og Árni bregst við bréfi sem Þorsteinn hefur ritað honum í millitíðinni. Árni greinir frá því að hann hafi viljað fá úr því skorið hvort próventugjöf Arnfríðar Rafnsdóttur til hans hafi verið lögleg og lagði hann því málið í dóm sex manna þar sem Þórður Hinriksson var yfirdómari. Niðurstaða dómsins var sú að próventan væri lögleg en Arnfríður lést síðan fyrir jólin 1657, áður en til þess kom að hún kæmi á framfæri Árna. Teitur Helgason, eftirlifandi eiginmaður Arnfríðar, varð ásáttur um það við Árna að jarðarparturinn sem Arnfríður hefur ánafnað Árna skuli ganga upp í skuld Teits við hann en hún nemur alls um 20 hundruðum. Dags. 12. febrúar 1658; afrit af báðum bréfum Árna lögmanns gert í Skálholti 11. apríl 1658.

Tekstklasse
137 (120v-121v)
Biskupsins bréf Bjarna Odssyni tilskrifað um eignarjarðir biskupsins.
Rubrik

Biskupsins bréf Bjarna Odssyni tilskrifað um eignarjarðir biskupsins.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Bjarna Oddssyni. Biskup undrar sig á því að hafa ekki enn fengið svar við því bréfi sem hann skrifaði Bjarna síðastliðinn vetur (85. bréf) og hann skortir því upplýsingar um ýmis jarðakaupamál. Auk þess veit hann ekkert um það hversu mikið Bjarni hefur innheimt í gjöld af þeim biskupsjörðum sem hann hefur haft umboð fyrir síðan 1654. Biskup tilkynnir Bjarna að ef engin borgun berist fljótlega vegna þessara jarða þurfi hann að innkalla umboðið og fá það einhverjum öðrum. Hann nefnir einnig jörðina Teig og tjáir Bjarna að tvímæli muni vera á jörðinni (sbr. 101. bréf). Dags. í Skálholti 13. apríl 1658.

Tekstklasse
138 (122r)
Reikningur millum biskupsins og þeirra bræðra á Indriðastöðum um skuldaskipti.
Rubrik

Reikningur millum biskupsins og þeirra bræðra á Indriðastöðum um skuldaskipti.

Bemærkning

Ónefndir bræður sem búsettir eru á Indriðastöðum greiða landskuld sína til biskups með tveimur innstæðukúgildum. Bræðurnir hafa uppbyggt bænhús á staðnum og meðtaka þeir eitt hundrað og fimm aura í laun fyrir verkið. Dags. að Indriðastöðum í Skorradal 1. maí 1658.

Tekstklasse
139 (122r-122v)
Útgjaldaskikkun af biskupsins landskyldum í Borgarfirði og Akranesi 1658.
Rubrik

Útgjaldaskikkun af biskupsins landskyldum í Borgarfirði og Akranesi 1658.

Bemærkning

Yfirlit yfir ýmsar útistandandi landskuldir hjá landsetum Brynjólfs biskups í Borgarfirði og á Akranesi, auk áætlana um það hvernig hver og einn mun greiða sína skuld. Þeir landsetar sem hér eru nefndir eru Teitur Helgason og Bjarni Ámundason að Höfn í Melasveit, Ívar Magnússon á Narfastöðum og Hannes Sigmundsson í Skipanesi. Dags. að Höfn 2. maí og í Skipanesi 3. maí 1658.

Tekstklasse
140 (123r)
Tillag Torfa Helgasonar af biskupinum.
Rubrik

Tillag Torfa Helgasonar af biskupinum.

Bemærkning

Torfi Helgason meðtekur fjögurra ríkisdala greiðslu úr hendi Brynjólfs biskups. Dags. að Höfn í Melasveit 2. maí 1658.

Tekstklasse
141 (123r)
Bón Teits í Höfn að sér útvegist í kaupstaðnum.
Rubrik

Bón Teits í Höfn að sér útvegist í kaupstaðnum.

Bemærkning

Teitur Helgason óskar eftir vörum úr kaupstað. Ódags.

Tekstklasse
142 (123r)
Kaupgjald séra Halldórs Jónssonar fyrir sinn kvót á prestkaupi móts við séra Sigurð Torfason.
Rubrik

Kaupgjald séra Halldórs Jónssonar fyrir sinn kvót á prestkaupi móts við séra Sigurð Torfason.

Bemærkning

Sr. Halldór Jónsson, prestur í Reykholti, tekur við níu ríkisdölum frá Brynjólfi biskup. Um er að ræða prestkaup frá fardögum til allra heilagra messu árið 1657. Dags. að Innstavogi 3. maí 1658.

Tekstklasse
143 (123r)
Landskyldargjald Jóns í Innstavogi.
Rubrik

Landskyldargjald Jóns í Innstavogi.

Bemærkning

Jón Jónsson, bóndi í Innstavogi, greiðir fjóra ríkisdali í landskuld til Brynjólfs biskups. Steinunn Halldórsdóttir, kona Jóns, segist hafa afhent Ögmundi Jónssyni, vinnumanni í Skálholti, tvo fjórðunga riklings. Dags. í Innstavogi 3. maí 1658.

Tekstklasse
144 (123v)
Innstavogs lögfesta.
Rubrik

Innstavogs lögfesta.

Bemærkning

Guðmundur Jónsson, sýslumaður í Borgarfjarðarsýslu, lögfestir Jóni Jónssyni leigujörð hans Innstavog. Öllum öðrum mönnum er bannað að nytja landið nema með leyfi Jóns. Dags. við Garðakirkju 8. nóvember 1657.

Tekstklasse
145 (123v)
Kaupgjald Þorvarðs Magnússonar.
Rubrik

Kaupgjald Þorvarðs Magnússonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup greiðir Þorvarði Magnússyni sextán ríkisdali í kaup fyrir ráðsmennsku á Skaga. Dags. á Skipaskaga 3. maí 1658.

Tekstklasse
146 (124r)
Löggjöf Hans Þórðarsonar Pétri Þórðarsyni gefin.
Rubrik

Löggjöf Hans Þórðarsonar Pétri Þórðarsyni gefin.

Bemærkning

Tveir menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl bræðranna Péturs og Hans Þórðarsona þar sem Hans fékk Pétri fjárbeitarítak sitt í jörðinni Ósi í Skilmannahreppi til fullrar eignar. Auk þess heimilar Hans bróður sínum útræði frá Innrahólmi og stöðu fyrir tvo báta, en Hans á fjórtán hundraða jarðarpart í landi Innrahólms. Dags. að Innrahólmi 1. maí 1658.

S. 124v-125r eru auðar. Á s. 125v er einungis utanáskrift 145. bréfs: “Gjafabréf fyrir fjárbeitarítaki í Ósi og tveggja báta frígöngu í Innrahólms landi.”

Tekstklasse
147 (126r)
Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Guðmundi Jónssyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Guðmundi Jónssyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup kaupir hálfa jörðina Svarfhól í Svínadal af Guðmundi Jónssyni, sýslumanni í Borgarfjarðarsýslu. Jarðarparturinn er átta hundruð að dýrleika. Biskup lofar að greiða jafngildan part í jörð sem skal liggja á milli Hítarár og Ellerár, og verður jörðin ákveðin síðar. Dags. á Skipaskaga á Akranesi 3. maí 1658.

Tekstklasse
148 (126v)
Húsaskoðun og virðing á Reyni á Akranesi.
Rubrik

Húsaskoðun og virðing á Reyni á Akranesi.

Bemærkning

Sjö erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Reyni á Akranesi. Tilefnið eru endurbætur sem Þorvarður Kolbeinsson, annar ábúandi jarðarinnar, hefur látið gera á bæjarhúsi og fjósi síðan húsin voru skoðuð í janúar (sbr. 115. bréf). Skoðunarmennirnir áætla að kostnaðurinn við húsabætur Þorvarðar nemi þremur hundruðum. Þorvarður hefur þegar fengið hluta fjárins greiddan og eru honum nú greiddar eftirstöðvarnar. Við sama tilefni er skoðað nýtt smiðjuhús sem Gísli Sæmundsson hefur reist á sínum parti jarðarinnar. Dags. að Reyni á Akranesi 4. maí 1658.

Tekstklasse
149 (127v-128r)
Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Sigurði Árnasyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Sigurði Árnasyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup kaupir hálfa jörðina Svarfhól í Svínadal af Sigurði Árnasyni lögréttumanni og eignast þar með alla jörðina (sbr. 146. bréf) að undanteknum skógarítökum sem tilheyra jörðunum Efra-Skarði og Hlíðarfæti. Í staðinn fær Sigurður tíu hundruð í jörðinni Skaga á Akranesi. Dags. að Innrahólmi 4. maí 1658.

Tekstklasse
150 (128r-129r)
Kaupbréf biskupsins fyrir 60 sauða beit í Óss jörðu og tveggja báta stöðu í Innra-Hólms landi.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir 60 sauða beit í Óss jörðu og tveggja báta stöðu í Innra-Hólms landi.

Bemærkning

Þrír menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Pétur Þórðarson seldi Brynjólfi biskup fríbeit fyrir sextíu fjár á jörðinni Ósi í Skilmannahreppi um vetrartímann. Kveðið er á um að fjármaður á vegum biskups fái gistingu og aðbúnað í skála á jörðinni á meðan á fjárbeitinni stendur. Pétur selur biskupi einnig engjaslátt á jörðinni upp á tuttugu hesta árlega og bátastöðu fyrir tvo báta (sbr. 145. bréf). Biskup greiðir Pétri fimmtán hundruð í ríkisdölum fyrir þessi ítök. Dags. á Katanesi í Strandahreppi 5. maí 1658.

Tekstklasse
151 (129v-130r)
Gjafabréf fyrir fjárbeitar ítaki í Ósi, og tveggja báta frígöngu í Innra-Hólms landi.
Rubrik

Gjafabréf fyrir fjárbeitar ítaki í Ósi, og tveggja báta frígöngu í Innra-Hólms landi.

Bemærkning

145. bréf afritað; afrit gert á Kalastöðum 6. maí 1658.

Tekstklasse
152 (130r-131v)
Kaupbréf biskupsins fyrir Höfða á Akranesi.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir Höfða á Akranesi.

Bemærkning

Fimm menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Brynjólfur biskup seldi hjónunum Einari Illugasyni og Arndísi Torfadóttur tvær jarðir: Alla jörðina Svarfhól í Svínadal, sem er sextán hundruð að dýrleika, og alla jörðina Skipanes í Melasveit sem er tólf hundruð að dýrleika. Við þetta bætir biskup átta hundruðum í reiðufé og fær á móti alla jörðina Höfða á Akranesi sem er tuttugu hundruð að dýrleika. Um tólf álna fjárítak Höfða er vitnað til kaupbréfs frá 13. nóvember 1582, ritað á Melum í Melasveit, þar sem Gísli Þórðarson seldi föður sinum, Þórði Guðmundssyni, hálfa jörðina og er ítakinu lýst þar (154. bréf). Þetta er stutt með því að vitnað er til Ingibjargar Jónsdóttur, eiginkonu sr. Eyjólfs Arnþórssonar er lengi hélt Garðastað, sem bjó þrjátíu og átta ár á Görðum og telur að lýsingin sé rétt. Einar Illugason gerir grein fyrir landamerkjum milli Höfða og Galmansvíkur og leggur fram bréf frá 1631 þar sem sr. Grímur Bergsveinsson, prestur að Görðum, ræðir um landamerkin. Dags. að Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd 6. maí 1658.

Tekstklasse
153 (132r)
Memorial upp á biskupsins skuld við Einar Illugason .
Rubrik

Memorial upp á biskupsins skuld við Einar Illugason .

Bemærkning

Brynjólfur biskup gerir grein fyrir kúgildum sem fylgja þeim jörðum sem skipta um hendur í viðskiptum hans við Einar Illugason á Kalastöðum (sbr. 151. bréf), ásamt þeim skuldum sem hann á útistandandi við Einar. Dags. á Kalastöðum 6. maí 1658.

Tekstklasse
154 (132r)
Afhending biskupsins vegna Einars Illugasonar, séra Einari til handa, á fjórum ríkisdölum.
Rubrik

Afhending biskupsins vegna Einars Illugasonar, séra Einari til handa, á fjórum ríkisdölum.

Bemærkning

Þorleifur Árnason, umboðsmaður Brynjólfs biskups, vottar að biskup hefur greitt Einari Illugasyni fjóra ríkisdali vegna skuldaskipta þeirra. Dags. á Kalastöðum 6. maí 1658.

Tekstklasse
155 (132v-133r)
Kaupbréf þeirra feðga Þórðar Guðmundssonar og Gísla Þórðarsonar.
Rubrik

Kaupbréf þeirra feðga Þórðar Guðmundssonar og Gísla Þórðarsonar.

Bemærkning

Kaupbréf frá 1582, lagt fram sem fylgigagn með 151. bréfi. Þrír menn votta að þeir voru viðstaddir handsöl þar sem Gísli Þórðarson seldi föður sínum, Þórði Guðmundssyni, hálfa jörðina Höfða á Akranesi, alls tíu hundruð að dýrleika. Fram kemur að Höfði á tólf mánaða beit á landi Garðastaða og skal eigandi Höfða gjalda eina lambgimbur árlega til Garðastaða fyrir það. Á móti fær Gísli hálfa jörðina Geldingaá í Melasveit sem er tólf hundruð að dýrleika. Þórður greiðir syni sínum mismuninn á jarðarverðunum, tvö hundruð, í reiðufé. Dags. á Melum í Melasveit 13. nóvember 1582. Aftan við bréfið fylgir staðfesting á því að bréfið hafi verið lesið yfir og því fylgi tvö hangandi innsigli; dags. 3. mars 1650. Afrit gert í Skálholti 13. maí 1658.

Tekstklasse
156 (133r-133v)
Meðkenning Ingibjargar Jónsdóttur.
Rubrik

Meðkenning Ingibjargar Jónsdóttur.

Bemærkning

Vitnisburður Ingibjargar Jónsdóttur sem vitnað er til í 151. bréfi. Ingibjörg vottar að hún bjó um 38 ára skeið á Görðum á Akranesi og vissi aldrei til þess að tekinn væri hærri hagabeitartollur frá Höfða til Garða en tólf álnir. Dags. á Fitjum í Skorradal 8. júlí 1639; afrit gert í Skálholti 13. maí 1658.

Tekstklasse
157 (133v-134r)
Bréfseðill sr. Gríms Bergsveinssonar tilskrifaður Illuga Vigfússyni um móa til láns frá Höfða handa Oddi í Galmarsvík.
Rubrik

Bréfseðill sr. Gríms Bergsveinssonar tilskrifaður Illuga Vigfússyni um móa til láns frá Höfða handa Oddi í Galmarsvík.

Bemærkning

Sr. Grímur Bergsveinsson biður Illuga Vigfússon, í nafni Odds í Galmarsvík, um áframhaldandi lán á móa þeim sem Oddur hefur haft til láns undangengið ár. Oddur er fús til að greiða Illuga sömu upphæð fyrir afnotin og áður. Dags. 30. nóvember 1631. Afrit gert í Skálholti 13. maí 1658.

Tekstklasse
158 (134r-134r)
Álnareytur eftir Valda heitinn Guðlaugsson.
Rubrik

Álnareytur eftir Valda heitinn Guðlaugsson.

Bemærkning

Upptalning á eignum Valda heitins Guðlaugssonar sem hann skuldaði Brynjólfi biskup, þar má nefna bleikálóttan færleik, ístað, fjóra klippinga, þrjú trogaskrifl, orf fánýtt o.fl. Þessir hlutir voru afhentir í Skálholti af Stefáni Valdasyni. Dags. í Skálholti 14. maí 1658.

Tekstklasse
159 (134v-135r)
Capellánsbréf útgefið af sr. Þorláki á Helgafelli.
Rubrik

Capellánsbréf útgefið af sr. Þorláki á Helgafelli.

Bemærkning

Sr. Þorlákur Bjarnason, prófastur í Snæfellssýslu og prestur á Helgafelli leitar liðsinnis biskups. Sr. Þorlákur er orðinn aldurhniginn og hefur átt við vanheilsu að stríða, hann telur sig því þurfa aðstoðarprest til að geta sinnt embættisskyldum sínum. Hann óskar eftir því að Brynjólfur veiti Jóni Guðmundssyni prestvígslu hið fyrsta og sendi hann vestur fyrir Hvítasunnuhátíð þetta árið. Um þetta var samið með samþykki Jóns Guðmundssonar sem var að ljúka námi frá Skálholtsskóla. Dags. í Skálholti 17. maí 1658.

Tekstklasse
160 (135v-136r)
Kaupbréf biskupsins fyrir Sandi í Kjós af sr. Þorláki Bjarnasyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir Sandi í Kjós af sr. Þorláki Bjarnasyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup kaupir jörðina Sand í Kjósar- og Reynivalla kirkjusókn af sr. Þorláki Bjarnasyni, alls 10 hundruð að dýrleika. Dags. í Skálholti 17. maí 1658.

Tekstklasse
161 (136v-137r)
Kaupbréf biskupsins fyrir Gautastöðum í Fljótum af Árna Pálssyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir Gautastöðum í Fljótum af Árna Pálssyni.

Bemærkning

Brynjólfur biskup kaupir alla jörðina Gautastaði í Fljótum í Skagafjarðarsýslu af Árna Pálssyni, alls 20 hundruð að dýrleika. Í staðinn selur Brynjólfur Árna alla jörðina Sand í Kjós, 10 hundruð að dýrleika með tveimur innistæðu kúgildum og 5 hundruð í Hvammi í Skorradal. Biskup selur Árna einnig 5 hundruð í Hvammi fyrir fjörutíu og átta ríkisdali, sem greiðast skulu í fardögum í Skálholti. Dags. í Skálholti 21. maí 1658.

Tekstklasse
162 (137r-137r)
Viðgjörning Jóns Jónssonar smiðs við biskupinn. Numero 119.
Rubrik

Viðgjörning Jóns Jónssonar smiðs við biskupinn. Numero 119.

Bemærkning

Brynjólfur biskup greiðir Jóni Jónssyni smið fyrir ýmis verkefni, en Jón smíðaði meðal annars líkkistu Þórðar Þorsteinssonar, stóra langsög og lítinn refstað. Dags. í Skálholti 22. maí 1658.

Tekstklasse
163 (137v-138r)
Vígslu og commendatíubréf Jóns Guðmundssonar.
Rubrik

Vígslu og commendatíubréf Jóns Guðmundssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup lýsir yfir að hann hafi vígt Jón Guðmundsson sem aðstoðarprest að ósk sr. Þorláks Bjarnasonar prófasts í Snæfellsnessýslu og prest á Helgafelli og í Bjarnarhöfn. Biskup lýsir einnig yfir að eftir yfirheyrslu og examineringu sé Jón Guðmundsson hæfur til að taka að sér öll prestembætti í forföllum sr. Þorláks. Sjá bréf 158. Dags. í Skálholti 24. maí 1658.

Tekstklasse
164 (138r-138r)
Selur biskupinn Bjarna Eiríkssyni 1 kúgildi með partinum í Rauðabergi.
Rubrik

Selur biskupinn Bjarna Eiríkssyni 1 kúgildi með partinum í Rauðabergi.

Bemærkning

Brynjólfur biskup selur Bjarna Eiríkssyni 1 kúgildi sem fylgir með hlut í Rauðabergi í Hornafirði í skiptum fyrir annað kúgildi. Dags. í Skálholti 24. maí 1658.

Tekstklasse
165 (138r-138r)
Inntak úr bréfi Guðmundar Jónssonar um heimild tveggja kúgilda með Svarfhóli í Svínadal sem hann biskupnum til eignar fékk.
Rubrik

Inntak úr bréfi Guðmundar Jónssonar um heimild tveggja kúgilda með Svarfhóli í Svínadal sem hann biskupnum til eignar fékk.

Bemærkning

Guðmundur Jónsson ítrekar að hann gefi Brynjólfi biskup fulla heimild til að ráðstafa að vild tveimur kúgildum með Svarfhóli í Svínadal sem hann fékk biskupnum til eignar. Bréfið er ódagsett. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
166 (138v-138v)
Kúgilda afhending með Höfða á Akranesi.
Rubrik

Kúgilda afhending með Höfða á Akranesi.

Bemærkning

Einar Illugason afhenti með jörðinni Höfða á Akranesi 4 kýr og fimmta ásauðar kúgildi. Dags. 10. maí. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
167 (138v-138v)
Skipaness kúgilda afhending.
Rubrik

Skipaness kúgilda afhending.

Bemærkning

Einar Illugason fær afhent kúgildi með Skipanesi. (Sjá bréf nr. 165). Dags. 10. maí 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
168 (139r-139r)
Hús á Höfða á Akranesi skoðuð og uppskrifuð.
Rubrik

Hús á Höfða á Akranesi skoðuð og uppskrifuð.

Bemærkning

Tveir erindrekar biskups skoða húsakost á jörðinni Höfða á Akranesi, þeir Þorvarður Magnússon og Sigurður Árnason eftir afhendingu Einars Illugasonar. Ítarleg lýsing á húsum og útihúsum fylgir. Dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
169 (139v-140r)
Þriðjungaskipti á 30 hundruðum í Skaga á Akranesi.
Rubrik

Þriðjungaskipti á 30 hundruðum í Skaga á Akranesi.

Bemærkning

Þrír erindrekar Brynjólfs biskups og þrír fulltrúar Sigurðar Árnasonar voru kallaðir til að skipta í þrjá parta 30 hundraða hlut í jörðinni Skipaskaga á Akranesi, húsakosti, búðum og túnum. Eign Sigurðar í Skipaskaga nam 10 hundruðum en eign Brynjólfs biskups nam 20 hundruðum. Lending skipa og uppsátur hélst óskipt. (Sjá bréf nr. 148). Dags. á Skipaskaga 9. maí 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
170 (140r-140r)
Meðkenning Péturs Þórðarsonar uppá meðtekna tvo ríkisdali af Daða Halldórssyni útskrifuð.
Rubrik

Meðkenning Péturs Þórðarsonar uppá meðtekna tvo ríkisdali af Daða Halldórssyni útskrifuð.

Bemærkning

Pétur Þórðarson kvittar fyrir að hafa meðtekið tvo ríkisdali frá Daða Halldórssyni í umboði Brynjólfs biskups. Dags. í Reykholti 20. maí 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
171 (140v-140v)
Meðkenning Niculásar Illugasonar uppá meðtekna 6 ríkisdali og voð vaðmáls af Daða Halldórssyni.
Rubrik

Meðkenning Niculásar Illugasonar uppá meðtekna 6 ríkisdali og voð vaðmáls af Daða Halldórssyni.

Bemærkning

Niculás Illugason kvittar fyrir að hafa meðtekið sex ríkisdali og tíu aura voð vaðmáls frá Daða Halldórssyni í umboði Brynjólfs biskups. Dags. að Miðfelli austara á Hvalfjarðarströnd 18. maí 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
172 (140v-140r)
Meðkenning Einars Illugasonar uppá meðtekna 4 ríkisdali vegna biskupsins af Daða Halldórssyni.
Rubrik

Meðkenning Einars Illugasonar uppá meðtekna 4 ríkisdali vegna biskupsins af Daða Halldórssyni.

Bemærkning

Einar Illugason kvittar fyrir að hafa meðtekið fjóra ríkisdali frá Daða Halldórssyni í umboði Brynjólfs biskups. Til frádráttar kom greiðsla veiðigjalds sem Brynjólfur biskup skuldaði Einari. Dags. á Kalastöðum 18. maí 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
173 (140v-141r)
Meðkenning Torfa Helgasonar uppá meðteknar 8 álnir vaðmáls af Daða Halldórssyni frá biskupinum sendar.
Rubrik

Meðkenning Torfa Helgasonar uppá meðteknar 8 álnir vaðmáls af Daða Halldórssyni frá biskupinum sendar.

Bemærkning

Torfi Helgason kvittar fyrir að hafa móttekið átta álnir vaðmáls sem Brynjólfur biskup sendi honum með Daða Halldórssyni. Dags. á Melum 23. maí. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
174 (141r)
Skikkunarseðill séra Þórðar í Hítardal Guðmundi Árnasyni útgefinn uppá meðtöku 80 álna landskuldar af jarðarparti þeim sem séra Þórður á hjá biskupinum, meðfylgjandi qvittantiu.
Rubrik

Skikkunarseðill séra Þórðar í Hítardal Guðmundi Árnasyni útgefinn uppá meðtöku 80 álna landskuldar af jarðarparti þeim sem séra Þórður á hjá biskupinum, meðfylgjandi qvittantiu.

Ansvarlig

Brevskriver : Þórður Jónsson

Bemærkning

Staðfesting sr. Þórðar Jónssonar prests í Hítardal um greiðslu 80 álna landskuldar sem hann hefur fært Guðmundi Árnasyni fyrir jarðarpart sem Þórður á hjá Brynjólfi biskup í Borgarfirði. Þar á eftir fylgir kvittunarbréf Guðmundar Árnasonar fyrir móttöku landskuldar. Dags. í Hjarðarholti 14. apríl 1658. Afrit dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
175 (141v-142r)
Bréf fyrir eitt hundrað fjárbeitar ítaki í Óss jörð í Skilmannahreppi með fjárhússtöðu, fjármannsveru, heygarði og heyslætti á 40 hesta árlega.
Rubrik

Bréf fyrir eitt hundrað fjárbeitar ítaki í Óss jörð í Skilmannahreppi með fjárhússtöðu, fjármannsveru, heygarði og heyslætti á 40 hesta árlega.

Bemærkning

Vottunarbréf sex manna um að þeir voru viðstaddir og til vitnis kallaðir við Öxará 29. júní 1647 er Þórður heitinn Henriksson, fyrrverandi sýslumaður í Þverárþingi, galt og greiddi og til eignar fékk Guðrúnu Ólafsdóttur tólf hundruð í jörðinni Ósi á Akranesi fyrir tólf hundruð í jörðinni Neslöndum við Mývatn. Þórður og Guðrún gerðu með sér það samkomulag að Þórður og hans erfingjar hefðu rétt til árlegrar fjárbeitar á Ósi fyrir hundrað sauði með hússtöðu og garði fyrir hey á 40 hesta. Fjármaður hefði sess í baðstofu og legurúm í skála. Einnig fylgdi samkomulagi þeirra að Þórður hefði rétt á heyslætti fyrir 40 hesta hvert sumar en skyldi fyrir það greiða eignarmanni eða ábúanda Óss 20 álnir árlega. Vottarnir staðfestu einnig að hafa séð og yfirlesið samkomulag þeirra eins og það var fært inn í þingbók Þórðar Henrikssonar og að allir málavextir séu þar rétt skráðir. Dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
176 (142v)
Meðkenning Einars Guttormssonar uppá meðtekna 10 ríkisdali af biskupinum vegna Péturs Þórðarsonar.
Rubrik

Meðkenning Einars Guttormssonar uppá meðtekna 10 ríkisdali af biskupinum vegna Péturs Þórðarsonar.

Bemærkning

Einar Guttormsson kvittar fyrir að hafa meðtekið tíu ríkisdali úr hendi Brynjólfs biskups og lofar að hann muni eins fljótt og kostur er koma þeim til Péturs Þórðarsonar á Innra Hólmi. Eins lofar hann að útvega meðkenningu Péturs fyrir móttöku fjárins og senda hana til biskups sem fyrst. Dags. í Skálholti 27. maí 1658.

Tekstklasse
177 (142v-143r)
Citatiubréf Björns Guðmundssonar og Vigfúsar Jónssonar fyrir biskupinn.
Rubrik

Citatiubréf Björns Guðmundssonar og Vigfúsar Jónssonar fyrir biskupinn.

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, bls. 111-112. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Bréf Brynjólfs biskups sent sr. Jóni Jónssyni að Fellsmúla, Ásmundi Brynjólfssyni og Hannesi Bjarnasyni, hreppsstjórum í Landmannahreppi, Birni Guðmundssyni að Flagbjarnarholti og Vigfúsi Jónssyni að Heysholti. Biskup hafði áður sent þeim Birni og Vigfúsi bréf vegna langvarandi óeiningar og misklíðar þeirra í milli og reynt að miðla málum með aðstoð sr. Jóns Jónssonar. Þar sem fyrra áminningarbréf bar ekki tilætlaðan árangur sér biskup sig nú knúinn til að yfirheyra og rannsaka þessa menn og þeirra deilur. Biskup boðar þá því til Skálholts mánudaginn 7. júní nk. og skulu báðir taka með sér sín bréf, sannanir, skjöl og vitnisburði. Biskup boðar einnig til fundarins sr. Jón Jónsson, sóknarprest þeirra beggja og þá Ásmund Brynjólfsson og Hannes Bjarnason, hreppsstjóra í Landmannahreppi. Brynjólfur biskup vonar að með aðstoð góðra manna og eftir sanngjarna rannsókn muni málið leysast farsællega. (Sjá bréf. nr. 122 og 123). Dags. í Skálholti 29. maí 1658.

178 (142v-143r)
Prestkaup séra Sigurðar Torfasonar móts við séra Halldór Jónsson.
Rubrik

Prestkaup séra Sigurðar Torfasonar móts við séra Halldór Jónsson.

Bemærkning

Kvittan sr. Sigurðar Torfasonar um meðtöku kirkjuprestkaups þessa árs frá allra heilagra messu til fardaga. Dags. í Skálholti 1. júní 1658.

Tekstklasse
179 (143v)
Locatz kaup Páls Árnasonar.
Rubrik

Locatz kaup Páls Árnasonar.

Bemærkning

Páll Árnason, heyrari í Skálholti, staðfestir að hann hafi fengið greidd árslaun fyrir síðastliðið ár, alls 18 ríkisdali. Dags. í Skálholti 1. júní 1658.

Tekstklasse
180 (143v-144r)
Skólameistara kaup Gísla Einarssonar goldið. Reikningur skólameistarans Gísla Einarssonar.
Rubrik

Skólameistara kaup Gísla Einarssonar goldið. Reikningur skólameistarans Gísla Einarssonar.

Ansvarlig

Brevskriver : Gísli Einarsson

Bemærkning

Yfirlit yfir þær greiðslur sem Gísli Einarsson, skólameistari í Skálholti, hefur þegið fyrir störf sín á síðastliðnu ári, þ.e. frá fardögum 1657 til fardaga 1658. Dags. í Skálholti 2. júní 1658.

Tekstklasse
181 (144v-145v)
Inntak úr bréfi Bjarna Oddssonar biskupinum tilskrifuðu með Vilhjálmi Jóhannssyni um bygging á jörðum biskupsins sem Bjarni hefur umboð yfir. Meðtekið 3. júní 1658.
Rubrik

Inntak úr bréfi Bjarna Oddssonar biskupinum tilskrifuðu með Vilhjálmi Jóhannssyni um bygging á jörðum biskupsins sem Bjarni hefur umboð yfir. Meðtekið 3. júní 1658.

Ansvarlig

Brevskriver : Bjarni Oddsson

Bemærkning

Bréf Bjarna Oddssonar til Brynjólfs biskups þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um þær jarðir biskups sem Bjarni hefur umboð yfir, m.a. um ábúendur, landskuld, húsaeflingu, reka, tíundir og lögskil. Þetta eru jarðirnar Fagranes, Bakki, Rauðabjörg og Hámundarstaðir. Einnig skrifar Bjarni til biskups að hann hafi sent Katrínu Erlendsdóttur alvarlegt bréf þar sem hann biður hana að greiða skuld sína við biskup, alls átta hundruð, en þó ekki minna en sex hundruð. Bréfið er ódags. Afrit dags. í Skálholti 4. júní 1658.

182 (146r-147r)
Sáttargjörð millum Björns Guðmundssonar að Flagbjarnarholti og Vigfúsar Jónssonar að Heysholti.
Rubrik

Sáttargjörð millum Björns Guðmundssonar að Flagbjarnarholti og Vigfúsar Jónssonar að Heysholti.

Bibliografi

Bréfið er prentað í bókinni Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Sjá Jón Helgason (útg.). Úr bréfabókum Brynjólfs Sveinssonar. Safn Fræðafélagsins um Ísland og Íslendinga XII, bls. 113-114. Kaupmannahöfn: Hið íslenzka fræðafélag, 1942.

Bemærkning

Sáttargjörð milli þeirra Björns Guðmundssonar og Vigfúsar Jónssonar, en Brynjólfur biskup boðaði þá á sinn fund í Skálholt til að leysa ágreining þann og ósætti sem staðið hafði þeirra á milli undanfarin ár. Fyrr höfðu þeir sæst á Skarðsþingi 12. maí 1655 en öll þeirra samskipti farið á verri veg síðan. Til þessarar sáttagjörðar voru einnig boðaðir til góðra ráða sr. Sigurður Torfason dómkirkjuprestur, sr. Jón Jónsson að Fellsmúla, Páll Árnason heyrari, Ásmundur Brynjólfsson og Hannes Bjarnason hreppsstjórar, Bjarni Jónsson, Gissur Gíslason og Sæmundur Ásmundsson. Náðust nú fullar sættir milli deiluaðila í dómkirkjunni í Skálholti og "trulofade hvor öðrum fride og gridum, christelegum vinskap og kiærleika til orda og verka". (Sjá bréf nr. 122,123 og 176). Dags. í Skálholti 7. júní 1658.

183 (147r)
Skikkunarseðill biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar um þrjá ómaga frá Hospitalinu aftur suður í Garð.
Rubrik

Skikkunarseðill biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar um þrjá ómaga frá Hospitalinu aftur suður í Garð.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Finni Jónssyni forstöðumanni spítalans á Klausturhólum og tjáir honum að vegna bágs ástands spítalans skulu þrír ómagar, vanfærir, aftur fluttir í sína sveit, Garð. Þetta mun gert verða á kostnað spítalans og í Garði munu þeir settir undir forsjón og umhyggju hreppsstjóranna í Garði. Dags. í Skálholti 17. júní 1658.

Tekstklasse
184 (147r-147v)
Skikkun biskupsins á vanfærum Klausturhóla hospitals ómaga einum suður á Kjalarness hrepp.
Rubrik

Skikkun biskupsins á vanfærum Klausturhóla hospitals ómaga einum suður á Kjalarness hrepp.

Bemærkning

Brynjólfur biskup skrifar Finni Jónssyni forstöðumanni spítalans á Klausturhólum og tjáir honum að vegna bágs ástands spítalans skuli Jón Þórarinsson, vanfær ómagi, aftur fluttur í sinn hrepp, Kjalarness hrepp, en Jón hafði dvalið á Klausturhólum í nokkur ár. Þetta verður gert á kostnað spítalans og í Kjalarness hreppi verður hann settur undir forsjá og umhyggju hreppsstjóranna á staðnum. Dags. í Skálholti 17. júní 1658.

Tekstklasse
185 (147v)
Meðkenning Orms í Eyjum uppá meðtekna 2 ríkisdali í landskuld af Stóra Steinsvaðs parti, af biskupsins hálfu.
Rubrik

Meðkenning Orms í Eyjum uppá meðtekna 2 ríkisdali í landskuld af Stóra Steinsvaðs parti, af biskupsins hálfu.

Bemærkning

Ormur Vigfússon staðfestir að hann hafi meðtekið tvo ríkisdali frá Jóni Ásmundssyni í landskuld af jörðinni Stóra Steinsvaði. Dags. í Eyjum 7. júní 1658. Afrit dags. í Skálholti 18. júní 1658.

Tekstklasse
186 (147v-148r)
Qvittantia Jóns Ingimundarsonar biskupinum útgefin fyrir andvirði fimm hundruð í Votmúla.
Rubrik

Qvittantia Jóns Ingimundarsonar biskupinum útgefin fyrir andvirði fimm hundruð í Votmúla.

Bemærkning

Jón Ingimundarson staðfestir að hann hafi meðtekið fulla greiðslu vegna kaupa Brynjólfs biskups á fimm hundraða hlut í jörðinni Votmúla í Sandvíkurhreppi. Dags. á Eyrarbakka 20. mars 1658. Afrit dags. í Skálholti 18. júní 1658.

Tekstklasse
187 (148r-148v)
Í rekaskiptunum millum dómkirkjunnar og Staðarkirkju nú í vor 1658.
Rubrik

Í rekaskiptunum millum dómkirkjunnar og Staðarkirkju nú í vor 1658.

Bemærkning

Registur sr. Rafns Ólafssonar um hlut dómkirkjunnar í Skálholti í reka sem skiptist milli hennar og Grindavíkurstaðar kirkju á öllu Reykjanesi, úr Flóabásum og vestur undir Valanúpa. Dómkirkjan fékk í sinn hlut 25 tré og staura, stóra og smáa. Dags. 19. apríl 1658. Afrit dags. í Skálholti 18. júní 1658.

188 (148v-149r)
Samþykki séra Eyjólfs Bjarnasonar uppá biskupsins kaup á sjö hundruðum í Rauðabergi í Hornafirði, við Gissur Bjarnason.
Rubrik

Samþykki séra Eyjólfs Bjarnasonar uppá biskupsins kaup á sjö hundruðum í Rauðabergi í Hornafirði, við Gissur Bjarnason.

Ansvarlig

Brevskriver : Eyjólfur Bjarnason

Bemærkning

Sr. Eyjólfur Bjarnason samþykkir kaup Brynjólfs biskups á sjö hundraða hlut í jörðinni Rauðabergi í Hornafirði, en biskup keypti þennan hlut af bróður sr. Eyjólfs, Gissuri Bjarnasyni. Sr. Eyjólfur virðist hafa átt forkaupsrétt á þessum jarðarparti en vildi ekki standa í vegi fyrir kaupum biskups. Bréfið er svar við bréfi sem sr. Eyjólfur meðtók frá Brynjólfi biskup 4. maí 1657. Dags. 17. maí 1657. Afrit dags. í Skálholti 22. júní 1658.

Tekstklasse
189 (149v)
Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar uppá 50 og 3 1/2 ríkisdal meðtekna af Benedikt Halldórssyni vegna lögmannsins herra Árna Oddssonar í umskiptum.
Rubrik

Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar uppá 50 og 3 1/2 ríkisdal meðtekna af Benedikt Halldórssyni vegna lögmannsins herra Árna Oddssonar í umskiptum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hann hefur þegið 50 og 3 1/2 ríkisdal frá Árna Oddssyni lögmanni vegna tuttugu vætta smjörs sem Árni meðtók í Heyness umboði haustið 1657. Benedikt Halldórsson, sýslumaður í Hegranesþingi, greiðir skuldina fyrir hönd Árna. Dags. á Þingvöllum 29. júní 1658.

Tekstklasse
190 (150r-150v)
Bréf fyrir Torfastöðum í Skálholtstungu, séra Þórði Þorleifssyni útgefið.
Rubrik

Bréf fyrir Torfastöðum í Skálholtstungu, séra Þórði Þorleifssyni útgefið.

Bemærkning

Staðfestingarbréf Brynjólfs biskups til sr. Þórðar Þorleifssonar þess efnis að hann hafi löglega verið kallaður til embættis sem prestur að Torfastöðum í Bræðratungu- og Haukadals kirkjusóknum frá þessum fardögum. Í bréfinu er einnig að finna rökstuðning biskups fyrir því að Torfastaðir hafi jafnan heyrt undir Skálholtsdómkirkju og Skálholtsbiskup og vísar hann í ýmsar heimildir þar að lútandi, m.a. í Hungurvöku. Vígslubréf sr. Þórðar er í AM 270 fol., nr. 93. Dags. í Skálholti 28. maí 1658.

Tekstklasse
191 (151r-152v)
Fjalls afhending með innistæðunni húsunum og þeim ásauð sem Bjarni Eiríksson sjálfur keypti.
Rubrik

Fjalls afhending með innistæðunni húsunum og þeim ásauð sem Bjarni Eiríksson sjálfur keypti.

Bemærkning

Brynjólfur biskup afhendir Bjarna Eiríkssyni sýslumanni í Skálholti yfirlit yfir kúgildiseign jarðarinnar Fjalls á Skeiðum. Einnig fylgir með nákvæm lýsing á húsakosti jarðarinnar. Dags. á Skeiðum 27. maí 1658.

Tekstklasse
192 (153r-154r)
Reikningur Gunnars Þorsteinssonar staðinn biskupinum af meðferð á Fjalls búi.
Rubrik

Reikningur Gunnars Þorsteinssonar staðinn biskupinum af meðferð á Fjalls búi.

Bemærkning

Greinargerð sem Gunnar Þorsteinsson tók saman fyrir Brynjólf biskup um búfjáreign jarðarinnar Fjalls á Skeiðum, en Gunnar tók við umsjón á búinu í fardögum árið 1657. Dags. í Skálholti 30. maí 1658.

Tekstklasse
193 (154v-155r)
Útskrift af gjörningi Bjarna Oddssonar við Bjarna Eiríksson um Ás í Fellum í Fljótsdals héraði í sjálfrar sinnar kirkjusókn.
Rubrik

Útskrift af gjörningi Bjarna Oddssonar við Bjarna Eiríksson um Ás í Fellum í Fljótsdals héraði í sjálfrar sinnar kirkjusókn.

Ansvarlig

Brevskriver : Bjarni Oddsson

Modtager : Bjarni Eiríksson

Bemærkning

Bréf sem Bjarni Oddsson, sýslumaður á Burstafelli, sendi Bjarna Eiríkssyni, sýslumanni í Skálholti. Þar tilkynnir Bjarni Oddsson að hann afhendi Bjarna Eiríkssyni, fyrir hönd dóttur sinnar, Sigríðar Bjarnadóttur, alla jörðina Ás í Fellum í Fljótsdal, en Sigríður var eiginkona Bjarna Eiríkssonar. Afsalar hann sér öllu forræði yfir jörðinni í hendur Sigríðar og hennar erfingja, en jörðin reiknaðist 30 hundruð að dýrleika. Í staðinn lét Bjarni Eiríksson, fyrir hönd konu sinnar, jörðina Höfn eða Fagranes, hvor um sig 12 hundruð að dýrleika. Einnig 12 hundruð í fastaeign sem Bjarni Oddsson gaf dóttur sinni á giftingardegi hennar, sjö hundruð í fastaeign sem Bjarni Eiríksson átti hjá tengdaföður sínum og jörðina Teig í Hofskirkjusókn, átta hundruð að dýrleika. Þessi gjörningur var háður því skilyrði að Pétur, sonur Bjarna Oddssonar, samþykkti hann, en Bjarni hafði áður gefið Pétri jörðina Ás. Bjarna Oddssyni sýnist þó víst að þessi gjörningur muni verða Pétri til gagns og hagnaðar. (Sjá einnig bréf nr. 101). Dags. að Hofi í Vopnafirði 18. ágúst 1650. Afrit dags. í Skálholti 24. júní 1658.

Tekstklasse
194 (155v-156v)
Forlykunar gjörningur millum biskupsins og séra Sigurðar Árnasonar um skipti og býtti þeirra í millum vegna Jóns Jónssonar biskupsins próventumanns.
Rubrik

Forlykunar gjörningur millum biskupsins og séra Sigurðar Árnasonar um skipti og býtti þeirra í millum vegna Jóns Jónssonar biskupsins próventumanns.

Bemærkning

Staðfesting fjögurra votta um að þeir voru viðstaddir er Brynjólfur biskup og sr. Sigurður Árnason prestur á Skorrastað gerðu með sér samkomulag um skipti og býtti vegna Jóns Jónssonar, próventumanns biskups. Hér er fyrst og fremst um að ræða erfðaskiptamál milli Jóns Jónssonar og Guðrúnar systur hans, en Guðrún var eiginkona sr. Sigurðar. Dags. í Skálholti 25. júní 1658.

Tekstklasse
195 (156v)
Meðkenning séra Sigurðar Árnasonar uppá 8 ríkisdali sem biskupinn honum lánar, til lausnar á 2 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðra ábyrgðar peninga.
Rubrik

Meðkenning séra Sigurðar Árnasonar uppá 8 ríkisdali sem biskupinn honum lánar, til lausnar á 2 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðra ábyrgðar peninga.

Bemærkning

Sr. Sigurður Árnason prestur á Skorrastað staðfestir að Brynjólfur biskup hafi lánað honum átta ríkisdali til lausnargjalds á þeim sex hundruð fríðum sem hann af Skorrastaðarkirkju nú leysir. Dags. í Skálholti 25. júní 1658.

Tekstklasse
196 (156v-157r)
Meðkenning biskupsins uppá 16 ríkisdali meðtekna af séra Sigurði á Skorrastað, og lofun uppá viðbætur á átta ríkisdali þar til, fyrir lausn á 6 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðum peningum.
Rubrik

Meðkenning biskupsins uppá 16 ríkisdali meðtekna af séra Sigurði á Skorrastað, og lofun uppá viðbætur á átta ríkisdali þar til, fyrir lausn á 6 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðum peningum.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hafa meðtekið sextán ríkisdali frá sr. Sigurði Árnasyni á Skorrastað og lofar um leið að lána honum átta ríkisdali til viðbótar til lausnar á fjórum málnytukúgildum og tvö hundruð færleikum, sem teljast 600 fríð af Skorradalskirkju fríðum ábyrgðar peningum. Dags. í Skálholti 25. júní 1658.

Tekstklasse
197 (157r-157v)
Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar vegna Margrétar Halldórsdóttur við Tómas Björnsson um eftirstöður á útgreiðslum fyrir Saurbæjar andvirði í Hörgárdal.
Rubrik

Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar vegna Margrétar Halldórsdóttur við Tómas Björnsson um eftirstöður á útgreiðslum fyrir Saurbæjar andvirði í Hörgárdal.

Bemærkning

Samningur Brynjólfs biskups við Tómas Björnsson um innheimtu á hlut Margrétar Halldórsdóttur í jörðinni Saurbæ í Hörgárdal. Bar Margréti að svara því hvað eftir stóð af andvirði Saurbæjar hjá sér og öðrum erfingjum Halldórs heitins Ólafssonar lögmanns. Foreldrar Tómasar, þau Björn Arnbjarnarson og Guðrún Halldórsdóttir, höfðu selt Halldóri heitnum jörðina. Ef eitthvað kynni að standa ógoldið af hluta Margrétar Halldórsdóttur af jarðarverðinu þá lofaði Brynjólfur biskup að gjalda það Tómasi og sættust þeir á að biskup greiddi honum 4 ríkisdali, sem biskup gerði í votta viðurvist á alþingi. Dags. á Þingvöllum 29. júní 1658.

Tekstklasse
198 (158r-158v)
Bréfleg afhending Gautastaða í Fljótum af Benedikt Pálssyni.
Rubrik

Bréfleg afhending Gautastaða í Fljótum af Benedikt Pálssyni.

Bemærkning

Benedikt Pálsson afhendir Jóni Þorvaldssyni jörðina Gautastaði í Fljótum með fimm málnytukúgildum, landskuldar hundraði og sex innistæðukúgildum sem jörðinni fylgdu. Dags. á Möðruvöllum í Hörgárdal 10. júní 1658.

Tekstklasse
199 (158v-159r)
Afhending Jóns Þorvaldssonar fyrir Gautastöðum í Fljótum biskupinum í vald.
Rubrik

Afhending Jóns Þorvaldssonar fyrir Gautastöðum í Fljótum biskupinum í vald.

Bemærkning

Staðfesting á að Jón Þorvaldsson hafi afhent Brynjólfi biskup jörðina Gautastaði í Fljótum til eignar og frjáls forræðis. Biskup biður Jón að gera grein fyrir og nafnkenna landamerki jarðarinnar eins og þau hafa verið haldin og sendi honum bréf þess efnis sem fyrst. Dags. í Skálholti 27. júní 1658.

Tekstklasse
200 (159r-159v)
Tíundarreikningur Stepháns Einarssonar úr Skaftafells sýslu.
Rubrik

Tíundarreikningur Stepháns Einarssonar úr Skaftafells sýslu.

Bemærkning

Reikningur Stepháns Einarssonar til Brynjólfs biskups yfir biskupstíundir í Skaftafellssýslu sem gjaldast áttu vorið 1658. Dags. í Skálholti 28. júní 1658.

Tekstklasse
201 (160r-160v)
Kaupbréf biskupsins fyrir 12 hundruðum í Hvammi í Kjós af Jóni Brynjólfssyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir 12 hundruðum í Hvammi í Kjós af Jóni Brynjólfssyni.

Bemærkning

Kaupbréf Brynjólfs biskups fyrir 12 hundraða hlut í jörðinni Hvammi í Kjós af Jóni Brynjólfssyni, vottað af fimm mönnum á Þingvöllum. Greiddi biskup Jóni eitt hundrað ríkisdali fyrir fimmtungshlut í jörðinni. Biskup keypti einnig þrjú innistæðukúgildi af Jóni og greiddi fyrir þrettán ríkisdali. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1658.

Tekstklasse
202 (160v-161r)
Vottur og merki til að 4 ærgildi hafi goldist af Hvamms parti í Kjós.
Rubrik

Vottur og merki til að 4 ærgildi hafi goldist af Hvamms parti í Kjós.

Bemærkning

Sönnun þess að fimmtungs- eða tólf hundraða hlut í jörðinni Hvammi í Kjós fylgi þrjár kýr og eitt ásauðar kúgildi. Í bréfinu er vísað í gamlan reikning Þórðar Árnasonar frá árinu 1620 því til staðfestingar. (Sjá bréf nr. 200). Dags. á Þingvöllum 30. júní 1658.

Tekstklasse
203 (161r)
Umboðsbréf Þorleifs Magnússonar fyrir biskupstíund í Barðastrandarsýslu af biskupinum útgefið.
Rubrik

Umboðsbréf Þorleifs Magnússonar fyrir biskupstíund í Barðastrandarsýslu af biskupinum útgefið.

Bemærkning

Brynjólfur biskup veitir Þorleifi Magnússyni umboð til að annast innheimtu biskupstíundar í Barðastrandarsýslu og heimild til að sækja til laga og sekta þá sem ekki standa í skilum. Þessi samningur um umboð Þorleifs lýtur öllum sömu skilmálum, afgjaldi og greiðslum eins og samningur biskups við forvera Þorleifs, Guðmund heitinn Jónsson. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1658.

204 (161r-161v)
Qvittantia útgefin Málfríði Árnadóttur um biskupstíunda meðferð hennar sáluga manns Guðmundar Jónssonar.
Rubrik

Qvittantia útgefin Málfríði Árnadóttur um biskupstíunda meðferð hennar sáluga manns Guðmundar Jónssonar.

Bemærkning

Brynjólfur biskup staðfestir að hann hafi meðtekið 24 ríkisdali frá Málfríði Árnadóttur sem voru eftirstöðvar af innheimtum biskupstíundum Guðmundar heitins Jónssonar í Barðastrandarsýslu, en Guðmundur var eiginmaður Málfríðar. Lýsir Brynjólfur biskup yfir að Málfríður og hennar erfingjar séu nú kvittir og ákærulausir fyrir honum og hans erfingjum. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1658.

Tekstklasse
205 (161v-162v)
Forlykun á andvirði hálfs Bæjar í Lóni með 11 hundruðum í Mýrartungu í Króksfirði við séra Þórð Jónsson af biskupinum. Item kaup fyrir 5 hundruð í Skinney.
Rubrik

Forlykun á andvirði hálfs Bæjar í Lóni með 11 hundruðum í Mýrartungu í Króksfirði við séra Þórð Jónsson af biskupinum. Item kaup fyrir 5 hundruð í Skinney.

Bemærkning

Kaupbréf þar sem Brynjólfur biskup selur sr. Þórði Jónssyni alla jörðina Mýrartungu í Króksfirði, alls 16 hundruð að dýrleika. Á móti selur sr. Þórður biskupi helmingshlut í jörðinni Bæ í Lóni, 15 hundruð að dýrleika. Einnig kaupir biskup helmingshlut í jörðinni Skinney í Hornafirði af sr. Þórði. Dags. á Þingvöllum 30. júní 1658.

Tekstklasse
206 (162v-163r)
Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Norðfirði á Ströndum vestur og 60 sauða vetrarbeit í Óss jörðu.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Norðfirði á Ströndum vestur og 60 sauða vetrarbeit í Óss jörðu.

Bemærkning

Yfirlýsing fjögurra manna um að þeir hafi verið vottar að jarðakaupagjörningi þar sem Brynjólfur biskup kaupir hálfa jörðina Norðfjörð í Trékyllisvík af Pétri Þórðarsyni, fjögur hundruð að dýrleika. Einnig seldi Pétur honum 60 sauða vetrarbeit í Óss jörðu í Skilmannahreppi með hússtöðu, heygarðsstöðu og heyslætti fyrir 20 hesta árlega. Fyrir það skyldi ábúanda eða eiganda Óss greiðast 10 álnir árlega. Biskup greiddi Pétri 32 ríkisdali fyrir hálfan Norðfjörð en fyrir fjárbeitarítakið greiddust 20 ríkisdalir. Sjá bréf nr. 174. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1658.

Tekstklasse
207 (163v-164r)
Forlykun biskupsins við Guðmund Jónsson á andvirði 8 hundraðs hálfs Svarfhóls í Svínadal með 10 hundruðum í Skaga.
Rubrik

Forlykun biskupsins við Guðmund Jónsson á andvirði 8 hundraðs hálfs Svarfhóls í Svínadal með 10 hundruðum í Skaga.

Bemærkning

Yfirlýsing fjögurra votta um að þeir hafi verið viðstaddir jarðaskiptagjörning þar sem Brynjólfur biskup seldi Guðmundi Jónssyni 10 hundruð í jörðinni Skipaskaga á Akranesi. Á móti keypti biskup hálfa jörðina Svarfhól í Svínadal af Guðmundi Jónssyni, alls átta hundruð að dýrleika. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1658.

Tekstklasse
208 (164r-164v)
Kaupbréf biskupsins fyrir hálfri Gröf í Skilmannahreppi af Benedikt Halldórssyni.
Rubrik

Kaupbréf biskupsins fyrir hálfri Gröf í Skilmannahreppi af Benedikt Halldórssyni.

Bemærkning

Staðfesting fimm votta um að þeir voru viðstaddir jarðaskiptasamning þar sem Brynjólfur biskup seldi Benedikt Halldórssyni, Jórunni Henriksdóttur og þeirra erfingjum, alla jörðina Gautastaði í Fljótum, 20 hundruð að dýrleika. Á móti seldu þau Brynjólfi biskup hálfa jörðina Gröf í Skilmannahreppi, alls 12 hundruð að dýrleika. Þar að auki greiddu þau 30 ríkisdali í milli sem Benedikt lofaði að afhenda biskupi með góðum hentugleikum. Dags. á Þingvöllum 1. júlí 1658.

Tekstklasse
209 (165r-165v)
Húsaskoðun á Búastöðum í Vopnafirði.
Rubrik

Húsaskoðun á Búastöðum í Vopnafirði.

Bemærkning

Ítarleg lýsing á húsakosti á jörðinni Búastöðum í Vopnafirði. Einnig er landamerkjum jarðarinnar lýst af nákvæmni eftir tilsögn Halls Björnssonar. Þetta bréf barst í Skálholt innan í bréfi Hjalta Jónssonar, sjá næsta bréf, nr. 209. Dags. í Vopnafirði 29. mars 1658. Afrit dags. í Skálholti 5. júlí 1658.

210 (166r-166v)
Trjáreikningur af reka jörðum biskupsins í Vopnafirði svo látandi til Skálholts sendur af Hjalta Jónssyni sem eftirfylgir.
Rubrik

Trjáreikningur af reka jörðum biskupsins í Vopnafirði svo látandi til Skálholts sendur af Hjalta Jónssyni sem eftirfylgir.

Ansvarlig

Brevskriver : Hjalti Jónsson

Bemærkning

Yfirlit yfir tré og viði sem rekið hafði á land á jörðum Brynjólfs biskups í Vopnafirði, tekið saman af Hjalta Jónssyni lögréttumanni, umboðsmanni jarða Brynjólfs biskups á Austfjörðum. Þau tré sem rak á land á Núpssandi hafði Hjalti m.a. hugsað sér að nýta til endurbóta á baðstofunni á Búastöðum í Vopnafirði og til byggingar bænhúss á sama stað. Dags. í Vopnafirði 10. júní 1658. Afrit dags. í Skálholti 5. júlí 1658.

211 (167r-174r)
Registur þeirra bréfa og gjörninga sem þessi bók hefur inni að halda og byrjast hún fyrst á alþingi anno 1657 og nær fram yfir annað alþingi anno 1658 - 5. júlí. Hér eru og innfærð fáein bréf og gjörning sem á fyrirfarandi árum gjörst hafa og eru þau flestöll að þessa árs documentis hnígandi.
Rubrik

Registur þeirra bréfa og gjörninga sem þessi bók hefur inni að halda og byrjast hún fyrst á alþingi anno 1657 og nær fram yfir annað alþingi anno 1658 - 5. júlí. Hér eru og innfærð fáein bréf og gjörning sem á fyrirfarandi árum gjörst hafa og eru þau flestöll að þessa árs documentis hnígandi.

Bemærkning

Atriðisorðaskrá bókarinnar.

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir // Ekkert mótmerki ( 1 , 6-9 , 12 , 13-15 , 17 , 19 , 21 , 24-25 , 27 , 29 , 31 , 34-35 , 37-38 , 41 , 44-46 , 47-48 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir ( 54-55 , 56-58 , 68-72 , 78-82 , 93 , 94-97 ) // Mótmerki: Fangamark PD ( 59-63 , 73-77 , 83-92 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki með hornum // Ekkert mótmerki ( 65 ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Fangamark PI? Ps? // Ekkert mótmerki ( 67 , 159 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð 4, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 98 ).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Dárahöfuð 5, með 7 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 100 , 102-104 , 108 , 115 , 117 , 119 , 121 , 123 , 126 , 128 , 131 , 133-134 , 136 , 138-140 , 144-146 ) // Mótmerki: Fangamark GM ( 105-107 , 109-110 , 116 , 118 , 120 , 122 , 127 , 129-130 , 132 , 135 , 137 , 141-143 , 147-149 ).

Vatnsmerki 7. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 4 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 64 , 111 , 173-174 ) // Mótmerki: Fangamark BD ( 112 , 164 ).

Vatnsmerki 8. Aðalmerki: Dárahöfuð 6, með 5 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir // Ekkert mótmerki ( 124 , 150 , 154-156 , 158? , 162-163 , 165 , 167-168 , 171 ).

Antal blade
174 blöð (329 mm x 216 mm).
Foliering

  • Blaðsíðumerking, ekki upprunaleg.
  • Efnisnúmerun við hliðina á blaðsíðumerkingunni.

Layout

Tilstand

Vantar í bókina á mörgum stöðum.

Tilføjelser

Fangamark eiganda á bl. 1 (titilblaði).

Indbinding

Historie og herkomst

Herkomst

Þetta bindi er skrifað á árunum 1657-1658.

Proveniens

Á titilblaði eru upphafsstafirnir HT:, en það mun vera fangamark Halldórs sonar sr. Torfa Jónssonar í Gaulverjabæ, sem var aðalerfingi Brynjólfs biskups (sbr. Jón Helgason, Úr bréfabókum Bryjólfs biskups Sveinssonar , bls. VII).

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. september 1975.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

Tekið eftir Katalog I , bls. 242-243 (nr. 426). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í januar 1886. DKÞ skráði 3. juli 2002. ÞÓS skráði 6. juli 2020.

Bevaringshistorie

Lagfært af Birgitte Dall í júlí 1975.

Billeder

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Bibliografi

Forfatter: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titel: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Forfatter: Haraldur Bernharðsson
Titel: Þykkja og þykja. Hljóðbeygingarvíxl einfölduð, Gripla
Omfang: 15
Forfatter: Jón Helgason
Titel: Bókasafn Brynjólfs biskups, Árbók 1946 (Landsbókasafn Íslands)
Omfang: 3-4
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Forfatter: Overgaard, Mariane
Titel: , AM 124 8vo: En islandsk schwank-samling
Omfang: s. 268-317
[Metadata]
×
Indhold
×
  1. Bréfabók Brynjólfs biskups Sveinssonar X
    1. Efnisyfirlit
  2. Citatia til Alþingis prestastefnu.
  3. Sendibréf til biskupsins herra Gísla Þorlákssonar.
  4. Kvittun herra Árna Oddssonar lögmanns fyrir 20 vættum smjörs.
  5. Samþykki biskupsins upp á kosning séra Árna Loftssonar af Dýrfirðingum.
  6. Commendatia séra Böðvars Sturlusonar prófastinum séra Vigfúsi Árnasyni tilskrifuð.
  7. Kaupbréf fyrir hálfum Bæ í Lóni.
  8. Sala á þremur hundruðum í Króki í Holtum við Sigurð Jónsson fyrir 30 ríkisdali.
  9. Kvittantia fyrir þriggja ára afgjaldi af Gautastöðum Jóni Þorvaldssyni til handa.
  10. Biskupstíunda reikningur af Barðastrandarsýslu anno 1657 og kvittun Gvöndar Jónssonar.
  11. Kaupbréf séra Þórðar Jónssonar fyrir hálfum Bæ í Lóni af Gvöndi Björnssyni.
  12. Samþykki Guðrúnar Marteinsdóttur upp á sölu síns bónda Guðmundar á hálfum Bæ.
  13. Kaupbréf fyrir hálfum Saurstöðum í Jökulsárhlíð í Austfjörðum og Kirkjubæjarsókn af séra Jóni Daðasyni.
  14. Eignarráð biskupinum gefin yfir hálfum Svarfhóli í Svínadal.
  15. Skikkunarbréf biskupsins á niðursetning séra Árna Loftssonar í Dýrafjarðarþing.
  16. Reikningur Þorvarðs Magnússonar í Skaga 1657.
  17. Biskupsins hlutir á Akranesi 1657.
  18. Vígslubréf séra Sigurðar Jónssonar til Ögurs og Eyrar sókna.
  19. Meðkenning Daða Jónssonar upp á sitt framfæri hjá biskupinum.
  20. Afbeiðni biskupsins við Orm Vigfússon á hórdóms straffi Oddu í Klausturhólum.
  21. Bón Ingveldar Jónsdóttur felld til biskupsins að afturkalla sinn son úr Austfjörðum.
  22. Lögfesta jarða biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Bakka og Hafnar á Ströndum.
  23. Skoðun jarðarinnar Bakka á Ströndum.
  24. Skoðuð og skrifuð hús í Höfn á Ströndum.
  25. Skoðuð og uppskrifuð hús á Hámundarstöðum í Vopnafirði.
  26. Skoðuð húsin á Ytra-Núpi í Vopnafirði.
  27. Skoðuð og uppskrifuð hús á Ásbrandsstöðum.
  28. Skoðuð og uppskrifuð hús á Svínabakka í Vopnafirði.
  29. Skoðuð og uppskrifuð hús á Skjaldtingsstöðum.
  30. Skoðuð og uppskrifuð hús í Syðri-Vík.
  31. Skoðuð og uppskrifuð hús jarðarinnar Vindfullu.
  32. Kaup fyrir fimm hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.
  33. Meðkenning biskupsins upp á ábýli Ólafar Sigurðardóttur á þriðjungi af Eyvindarstöðum.
  34. Eyvindarstaðir 6 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.
  35. Böðvarsdalur með þýfi 18 hundruð.
  36. Heima í Böðvarsdal húsin sem eftir fylgja.
  37. Egilsstaðir 16 hundruð. Húsin þar svo standandi sem eftir fylgir.
  38. Forlíkun milli biskupsins og Jóhanns Vilhjálmssonar á afgjaldi og húsabót Egilsstaða.
  39. Reikningur Jóhanns Vilhjálmssonar á Vindfells afgjöldum.
  40. Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir Fremri-Hlíð í Vopnafirði.
  41. Reikningur millum Ólafs Jónssonar á Ásbrandsstöðum og Björns Snæbjörnssonar.
  42. Kvittantia útgefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni af Birni Snæbjarnarsyni.
  43. Reikningur Ólafs Jónssonar að Ásbrandsstöðum á viðum.
  44. Kvittantia Ólafi Jónssyni útgefin af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.
  45. Kaupbréf Bjarna Oddssonar fyrir Ytri-Hlíð í Vopnafirði.
  46. Fremri-Hlíð í Vopnafirði 6 hundruð að dýrleika hús svo standandi.
  47. Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.
  48. Hús á Þorbrandsstöðum skoðuð og uppskrifuð sem eftir fylgir.
  49. Umboð útgefið af biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni Ólafi Jónssyni að Ásbrandsstöðum.
  50. Kaupbréf biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar fyrir sjö hundruðum í Búastöðum í Vopnafirði.
  51. Bygging á Höfn á Ströndum Halli Björnssyni.
  52. Kaupbréf fyrir Birnufelli sex hundruð.
  53. Meðkenning Bjarna Oddssonar biskupinum útgefin upp á átta hundruð og áttatíu álnir.
  54. Afskiptisbréf Péturs Bjarnasonar móts við önnur sín samborin systkin.
  55. Kaup biskupsins á Teigi í Vopnafirði.
  56. Lýsing biskupsins á Svínabakka kaupi, áheyrenda móður Ólafs, Salans.
  57. Meðkenning um lofun séra Guðmundar Ketilssonar að selja biskupinum Ljósaland í Vopnafirði.
  58. Lofun Ólafar Sigurðardóttur á Vindfullu að selja biskupinum fyrstum manna aftur Fossgerði.
  59. Fullmakt Bjarna Oddssonar upp á nokkrar biskupsins jarðir fyrir austan.
  60. Kaupbréf biskupsins fyrir Strandhöfn.
  61. Ráðstöfun biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar við sinn umboðsmann Hjalta Jónsson.
  62. Reikningur Jóns Jónssonar á Dvergasteini.
  63. Lofun Sigurðar Árnasonar á Hrappstöðum í Vopnafirði biskupinum til handa.
  64. Reikningur séra Sigurðar Árnasonar á afgift tveggja jarðarparta biskupsins.
  65. Vitnisburður Árna Ketilssonar.
  66. Reikningur Hjalta Jónssonar og biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar.
  67. Reikningur biskupstíundanna.
  68. Kaupbréf biskupsins fyrir þremur hundruðum í Ketilsstöðum.
  69. Umboðsbréf Hjalta Jónssonar yfir jörðum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar í Austfjörðum.
  70. Eignarráð Hjalta Jónssonar yfir hálfum Dísarstöðum og fimm hundruð í Eyrarteigi af biskupi.
  71. Samþykki Sigurðar Bjarnasonar upp á Syðri-Kleifar og Skálanes kaup biskupinum gefið.
  72. Kaupbréf fyrir fremri Kleif í Breiðdal og Skálanesi í Seyðarfirði.
  73. Samþykki Valgerðar Hjörleifsdóttur upp á sölu síns sonar Eiríks Bjarnasonar á Fremri-Kleif í Breiðdal fyrir hálfan Bæ í Lóni.
  74. Reikningur séra Jóns Bjarnasonar á hospítalsins fiski.
  75. Meðkenning séra Torfa Jónssonar um meðtekna eitt hundrað stórt ríkisdala af Þorleifi Árnasyni.
  76. Afgjalds summa af Mýrartungu sem Þórður meðtekið hefur Pétursson.
  77. Kvittun séra Jóns Bjarnasonar í Bjarnanesi fyrir Bjarnaness umboðs afgjalda meðferð.
  78. Memorial að minnast við Pétur Þórðarson vegna Björns Magnússonar í Bolungarvík um jarðaskipti.
  79. Útskrift af sendibréfi séra Sigurði Torfasyni tilskrifuðu um ofurstans vilja og hans burtför frá Görðum.
  80. Vitnisburður Árna Rögnvaldssonar.
  81. Kvittantia Styr Torfasonar upp á andvirði fyrir þrjú hundruð í Ytra-Súlunesi í Melasveit.
  82. Skiptareikningur Árna Pálssonar við biskupinn M. Brynjólf Sveinsson.
  83. Vígslubréf Péturs Rafnssonar ásamt hans veitingu fyrir Stöðvarstað.
  84. Grein úr bréfi Halli á Búastöðum tilskrifuðu.
  85. Inntak úr bréfi biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar Sigurði Bjarnasyni tilskrifuðu.
  86. Inntak úr bréfi biskupsins Bjarna Oddssyni tilskrifuðu.
  87. Meðkenning séra Péturs Rafnssonar upp á meðtekna 33 ríkisdali.
  88. Trjáreikningur biskupsins í Hafnarfirði.
  89. Kaupbréf fyrir fjórum hundruðum í Bæ í Lóni af Jóni í Oddgeirshólum fyrir 32 ríkisdali.
  90. Meðkenning Jóns Jónssonar.
  91. Álnarreytur eftir Ásmund heitinn Brynjólfsson.
  92. Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar af rökum og ástæðum sem hann hefur átt við Bjarna Oddsson frá anno 1654.
  93. Vitnisburður séra Halldórs Jónssonar frá Reykholti.
  94. Vorreikningur á biskupsins jörðum í Borgafirði.
  95. Reikningur millum biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og Sigurðar Pálssonar.
  96. Vígslubréf Magnúsar Jónssonar.
  97. Þorlákshafnarreka trjáreikningur.
  98. Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar upp á meðtekna 30 ríkisdali fyrir þrjú hundruð í Króki.
  99. Grein úr bréfi séra Jóni Pálssyni tilskrifuðu af biskupinum .
  100. Trjáreikningur í Herdísarvík, uppskrifaður af Sigmundi Jónssyni.
  101. Afhending skrúðans í Skálholti.
  102. Úr Bréfi Bjarna Eiríkssonar.
  103. Vígslubréf Snjólfs Einarssonar.
  104. Vígslubréf Péturs Ámundasonar.
  105. Kvittantia Halldórs Sigfússonar.
  106. Kvittun Magnúsar Þorsteinssonar fyrir Skammbeinsstaða umboðsreikning.
  107. Ráðsmanns umboðsbréf.
  108. (engin fyrirsögn)
  109. Vígslubréf Árna Halldórssonar.
  110. Biskupstíunda reikningur af Árnessýslu anno 1657.
  111. Kvittun Jóns á Hömrum upp á biskupstíunda reiknings og greiðslu af Árnessýslu.
  112. Kvittantia Jóns Jónssonar á Hömrum fyrir Hamraumboðs meðferð.
  113. Meðkenning Jóns Jónssonar á Hömrum upp á þrjú kúgildi.
  114. Byggingarráðabréf Björns Þorvaldssonar á Vindási í Landi.
  115. Reiðingsskurðarleyfi útgefið Birni Þorvaldssyni að skera upp á 15 hesta á Hreiðri í Holtum.
  116. Húsaskoðun Reynis á Akranesi.
  117. Húsaskoðun Skammbeinsstaða.
  118. Kvittantia biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar og séra Guðmundar Bjarnasonar.
  119. Mýrartungu í Króksfirði úttekt af séra Gunnlaugi Snorrasyni.
  120. Lýsing séra Guðmundar Bjarnasonar upp á Mýrartungu landamerki ítakalaus.
  121. Útvalning séra Jóhanns Jónssonar af Sæbóls sóknarmönnum.
  122. Ráðsmanns umboðsbréf Jóni Jónssyni á Hömrum útgefið.
  123. Framburður Vigfúsa Jónssonar að Heysholti upp á Björn Guðmundsson um misþyrming nokkra.
  124. Áminningarbréf biskupsins sent séra Jóni á Fellsmúla til að lesa yfir Birni Guðmundssyni.
  125. Gjörningur millum biskupsins M. Sveinssonar og Jóns Jónssonar smiðs um skuldir Jóns.
  126. Hæderlig och höylerdi Mand M. Bryndholffur Biskobff for Sönden offer Islannd bekommet.
  127. Skagareikningur Þorvarðs Magnússonar anno 1656.
  128. Hlutir biskupsins á Akranesi útteknir á krossmessu 1658.
  129. Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi (coperadur) Anno 1656.
  130. Reikningur Páls Kristjánssonar í Hólmi Anno 1658.
  131. Inntak úr sendibréfi Biskupsins til Sigurðar Jónssonar sýslumanns.
  132. Umboðsbréf Þorvarðs Magnússonar yfir Heyness umboði og sjóarútveg og skipaútgjörð á Akranesi.
  133. Heimildar og eignarráð yfir Sandi í Kjós gefin biskupinum M. Brynjólfi Sveinssyni.
  134. Hospítalsins að Hallbjarnareyri byggingarbréf.
  135. Útskrit úr bréfi lögmannsins herra Árna Oddssonar séra Þorsteini í Holti tilskrifuðu.
  136. Annað bréf lögmannsins herra Árna Oddssonar um sama efni útskrifað.
  137. Biskupsins bréf Bjarna Odssyni tilskrifað um eignarjarðir biskupsins.
  138. Reikningur millum biskupsins og þeirra bræðra á Indriðastöðum um skuldaskipti.
  139. Útgjaldaskikkun af biskupsins landskyldum í Borgarfirði og Akranesi 1658.
  140. Tillag Torfa Helgasonar af biskupinum.
  141. Bón Teits í Höfn að sér útvegist í kaupstaðnum.
  142. Kaupgjald séra Halldórs Jónssonar fyrir sinn kvót á prestkaupi móts við séra Sigurð Torfason.
  143. Landskyldargjald Jóns í Innstavogi.
  144. Innstavogs lögfesta.
  145. Kaupgjald Þorvarðs Magnússonar.
  146. Löggjöf Hans Þórðarsonar Pétri Þórðarsyni gefin.
  147. Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Guðmundi Jónssyni.
  148. Húsaskoðun og virðing á Reyni á Akranesi.
  149. Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Svarfhól í Svínadal af Sigurði Árnasyni.
  150. Kaupbréf biskupsins fyrir 60 sauða beit í Óss jörðu og tveggja báta stöðu í Innra-Hólms landi.
  151. Gjafabréf fyrir fjárbeitar ítaki í Ósi, og tveggja báta frígöngu í Innra-Hólms landi.
  152. Kaupbréf biskupsins fyrir Höfða á Akranesi.
  153. Memorial upp á biskupsins skuld við Einar Illugason .
  154. Afhending biskupsins vegna Einars Illugasonar, séra Einari til handa, á fjórum ríkisdölum.
  155. Kaupbréf þeirra feðga Þórðar Guðmundssonar og Gísla Þórðarsonar.
  156. Meðkenning Ingibjargar Jónsdóttur.
  157. Bréfseðill sr. Gríms Bergsveinssonar tilskrifaður Illuga Vigfússyni um móa til láns frá Höfða handa Oddi í Galmarsvík.
  158. Álnareytur eftir Valda heitinn Guðlaugsson.
  159. Capellánsbréf útgefið af sr. Þorláki á Helgafelli.
  160. Kaupbréf biskupsins fyrir Sandi í Kjós af sr. Þorláki Bjarnasyni.
  161. Kaupbréf biskupsins fyrir Gautastöðum í Fljótum af Árna Pálssyni.
  162. Viðgjörning Jóns Jónssonar smiðs við biskupinn. Numero 119.
  163. Vígslu og commendatíubréf Jóns Guðmundssonar.
  164. Selur biskupinn Bjarna Eiríkssyni 1 kúgildi með partinum í Rauðabergi.
  165. Inntak úr bréfi Guðmundar Jónssonar um heimild tveggja kúgilda með Svarfhóli í Svínadal sem hann biskupnum til eignar fékk.
  166. Kúgilda afhending með Höfða á Akranesi.
  167. Skipaness kúgilda afhending.
  168. Hús á Höfða á Akranesi skoðuð og uppskrifuð.
  169. Þriðjungaskipti á 30 hundruðum í Skaga á Akranesi.
  170. Meðkenning Péturs Þórðarsonar uppá meðtekna tvo ríkisdali af Daða Halldórssyni útskrifuð.
  171. Meðkenning Niculásar Illugasonar uppá meðtekna 6 ríkisdali og voð vaðmáls af Daða Halldórssyni.
  172. Meðkenning Einars Illugasonar uppá meðtekna 4 ríkisdali vegna biskupsins af Daða Halldórssyni.
  173. Meðkenning Torfa Helgasonar uppá meðteknar 8 álnir vaðmáls af Daða Halldórssyni frá biskupinum sendar.
  174. Skikkunarseðill séra Þórðar í Hítardal Guðmundi Árnasyni útgefinn uppá meðtöku 80 álna landskuldar af jarðarparti þeim sem séra Þórður á hjá biskupinum, meðfylgjandi qvittantiu.
  175. Bréf fyrir eitt hundrað fjárbeitar ítaki í Óss jörð í Skilmannahreppi með fjárhússtöðu, fjármannsveru, heygarði og heyslætti á 40 hesta árlega.
  176. Meðkenning Einars Guttormssonar uppá meðtekna 10 ríkisdali af biskupinum vegna Péturs Þórðarsonar.
  177. Citatiubréf Björns Guðmundssonar og Vigfúsar Jónssonar fyrir biskupinn.
  178. Prestkaup séra Sigurðar Torfasonar móts við séra Halldór Jónsson.
  179. Locatz kaup Páls Árnasonar.
  180. Skólameistara kaup Gísla Einarssonar goldið. Reikningur skólameistarans Gísla Einarssonar.
  181. Inntak úr bréfi Bjarna Oddssonar biskupinum tilskrifuðu með Vilhjálmi Jóhannssyni um bygging á jörðum biskupsins sem Bjarni hefur umboð yfir. Meðtekið 3. júní 1658.
  182. Sáttargjörð millum Björns Guðmundssonar að Flagbjarnarholti og Vigfúsar Jónssonar að Heysholti.
  183. Skikkunarseðill biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar um þrjá ómaga frá Hospitalinu aftur suður í Garð.
  184. Skikkun biskupsins á vanfærum Klausturhóla hospitals ómaga einum suður á Kjalarness hrepp.
  185. Meðkenning Orms í Eyjum uppá meðtekna 2 ríkisdali í landskuld af Stóra Steinsvaðs parti, af biskupsins hálfu.
  186. Qvittantia Jóns Ingimundarsonar biskupinum útgefin fyrir andvirði fimm hundruð í Votmúla.
  187. Í rekaskiptunum millum dómkirkjunnar og Staðarkirkju nú í vor 1658.
  188. Samþykki séra Eyjólfs Bjarnasonar uppá biskupsins kaup á sjö hundruðum í Rauðabergi í Hornafirði, við Gissur Bjarnason.
  189. Meðkenning biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar uppá 50 og 3 1/2 ríkisdal meðtekna af Benedikt Halldórssyni vegna lögmannsins herra Árna Oddssonar í umskiptum.
  190. Bréf fyrir Torfastöðum í Skálholtstungu, séra Þórði Þorleifssyni útgefið.
  191. Fjalls afhending með innistæðunni húsunum og þeim ásauð sem Bjarni Eiríksson sjálfur keypti.
  192. Reikningur Gunnars Þorsteinssonar staðinn biskupinum af meðferð á Fjalls búi.
  193. Útskrift af gjörningi Bjarna Oddssonar við Bjarna Eiríksson um Ás í Fellum í Fljótsdals héraði í sjálfrar sinnar kirkjusókn.
  194. Forlykunar gjörningur millum biskupsins og séra Sigurðar Árnasonar um skipti og býtti þeirra í millum vegna Jóns Jónssonar biskupsins próventumanns.
  195. Meðkenning séra Sigurðar Árnasonar uppá 8 ríkisdali sem biskupinn honum lánar, til lausnar á 2 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðra ábyrgðar peninga.
  196. Meðkenning biskupsins uppá 16 ríkisdali meðtekna af séra Sigurði á Skorrastað, og lofun uppá viðbætur á átta ríkisdali þar til, fyrir lausn á 6 hundruðum Skorrastaðarkirkju fríðum peningum.
  197. Reikningur biskupsins M. Brynjólfs Sveinssonar vegna Margrétar Halldórsdóttur við Tómas Björnsson um eftirstöður á útgreiðslum fyrir Saurbæjar andvirði í Hörgárdal.
  198. Bréfleg afhending Gautastaða í Fljótum af Benedikt Pálssyni.
  199. Afhending Jóns Þorvaldssonar fyrir Gautastöðum í Fljótum biskupinum í vald.
  200. Tíundarreikningur Stepháns Einarssonar úr Skaftafells sýslu.
  201. Kaupbréf biskupsins fyrir 12 hundruðum í Hvammi í Kjós af Jóni Brynjólfssyni.
  202. Vottur og merki til að 4 ærgildi hafi goldist af Hvamms parti í Kjós.
  203. Umboðsbréf Þorleifs Magnússonar fyrir biskupstíund í Barðastrandarsýslu af biskupinum útgefið.
  204. Qvittantia útgefin Málfríði Árnadóttur um biskupstíunda meðferð hennar sáluga manns Guðmundar Jónssonar.
  205. Forlykun á andvirði hálfs Bæjar í Lóni með 11 hundruðum í Mýrartungu í Króksfirði við séra Þórð Jónsson af biskupinum. Item kaup fyrir 5 hundruð í Skinney.
  206. Kaupbréf biskupsins fyrir hálfum Norðfirði á Ströndum vestur og 60 sauða vetrarbeit í Óss jörðu.
  207. Forlykun biskupsins við Guðmund Jónsson á andvirði 8 hundraðs hálfs Svarfhóls í Svínadal með 10 hundruðum í Skaga.
  208. Kaupbréf biskupsins fyrir hálfri Gröf í Skilmannahreppi af Benedikt Halldórssyni.
  209. Húsaskoðun á Búastöðum í Vopnafirði.
  210. Trjáreikningur af reka jörðum biskupsins í Vopnafirði svo látandi til Skálholts sendur af Hjalta Jónssyni sem eftirfylgir.
  211. Registur þeirra bréfa og gjörninga sem þessi bók hefur inni að halda og byrjast hún fyrst á alþingi anno 1657 og nær fram yfir annað alþingi anno 1658 - 5. júlí. Hér eru og innfærð fáein bréf og gjörning sem á fyrirfarandi árum gjörst hafa og eru þau flestöll að þessa árs documentis hnígandi.

[Metadata]