Athuganir Árna og útreikningar samkvæmt gömlum rímtalsreglum.
Blaðmerkingar með rauðu bleki, ekki með hendi Árna Magnússonar, en gætu verið frá lokum 19. aldar.
Ein hönd.
Spjöld og kjöldur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).
Skrifað af Árna Magnússyni og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 232.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. apríl 1978.