„Einn lítill bæklingur af fáum biskupum sem verið hafa á Íslandi þeim fyrstu, og hvörninn Skálholt var fyrst byggt og þar settur biskupsstóll og af hverjum það var tilsett og hvenær.“
„Bækling þennan kalla eg Hungurvöku …“
„… og þolinmæði við óhlýðna menn og rangláta.“
„Sagan af Þorláki biskupi helga“
„Þann tíma er stýrði Guðs kristni Anacletus páfi …“
„… gimstein fyrir Guði og mikils ráðandi.“
„Frásögn hin sérligasta af Páli Jónssyni Skálholtsbiskupi og fleirum öðrum biskupum“
„Páll var son Jóns hins göfigasta manns Loptssonar …“
„… gleðji almáttigur Guð hann í sífellu í eilífri dýrð. Amen.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, ýmist með rauðu bleki, svörtu eða blýanti.
Þrjú kver.
Með hendi séra Jóns Ólafssonar á Rauðasandi (Lambavatni), kansellískrift, nokkuð fornleg.
Band frá árunum 1772-1780 (303 mm x 200 mm x 9 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
fastur seðill (195 mm x 149 mm)með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril límdur á spjaldblað fremst: „Hungurvaka. Þorláks biskups saga hins helga. Páls saga biskups. Úr bók frá Birni Péturssyni (Gísla Árnasyni) aftan við Grágás, Hákonarbók etc.“
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 170. Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil).
Árni Magnússon fékk handritið úr bók frá Birni Péturssyni (eða Gísla Árnasyni) (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. apríl 1985.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.