„Þáttur af Ormi Stórólfssyni“
„Hængur hét maður son Ketils Naumdæla …“
„… hélt vel sína trú,“
og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað frá 1626 til 1646.Handritið er blaðmerkt síðar 1-8.
4 kver:
Með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift (bl. 8 viðbót með annarri hendi, fljótaskrift).
Band frá 1772-1780 (300 mm x 190 mm x 5 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Fastur seðill (74 mm x 176 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Orms þáttur Stórólfssonar.“
Fastur seðill (166 mm x 107 mm) fremst með hendiÁrna Magnússonar: „Úr bók með hendi Jóns Gissurssonar (eldri en 1646) er ég fékk af séra Högna Ámundasyne.“
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Högna Ámundasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júní 1974.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.