Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 e alfa fol.

Sögubók ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6v)
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Þáttur Orms Stórólfssonar

Upphaf

Ketill hængur hét maður son Þorkels naumdæla …

Niðurlag

… og hélt vel trú sína.

Baktitill

Og lýkur hér söguþætti þessum frá Ormi Stórólfssyni.

Athugasemd

Raka- eða vatnsskemmdir skerða texta í efstu línu blaðs 5r.

2 (6v)
Kjalnesinga saga
Athugasemd

Hér er aðeins upphaf sögunnar og yfir það hefur verið krassað.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með bjálkum, fjaðraskúfi og kóróna efst // Ekkert mótmerki ( 1-2 , 4 ).

Blaðfjöldi
6 blöð (302 mm x 195 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerkt er með svörtu bleki 1-6.

Kveraskipan

Eitt kver.

  • Kver I: blöð 1-6, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 270 mm x 155-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 39-41.
  • Vísað er í vísur á spássíu Vísur (sjá t.d. blað 4r).
  • Griporð (sjá t.d. blöð 1r-2v).

Ástand

  • Krassað er yfir upphaf sögu á blaði 6v.
  • Blöð eru víða blettótt og skítug (sbr. blöð 3v-4r).
  • Blek er sums staðar máð eða skemmt vegna raka og texti því ekki sem læsilegastur (sbr. blað 5r).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur.
  • Fljótaskrift.

  • Vísur eru skrifaðar með kansellískrift (sjá t.d. blöð 4r og 4v).

Skreytingar

  • Titill sögunnar og fyrsta lína textans eru með stærra letri en meginmálið og stafir blekfylltir (sjá blað 1r).

  • Stór blek- og pennaskreyttur skrautstafur er upphafsstafur á blaði 1r.

  • Griporð (sjá t.d. blöð 1r-2v) eru afmörkuð með látlausu pennaflúri.

Band

Pappaband frá árunum 1772-1780 (318 mm x 200 mm x 4 mm). Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 133. Það var áður hluti af stærri bók.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞÓS skráði 24. júní 2020. VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 8. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010,

DKÞ grunnskráði 31. október 2001,

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1885 í Katalog I; bls. 133 (nr. 226).

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn