Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 163 f fol.

Sögubók ; Ísland, 1675-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Víglundar saga
Athugasemd

Niðurlag sögunnar sem krassað hefur verið yfir. Það er ill- eða ólæsilegt.

2 (1v-7v)
Króka-Refs saga
Titill í handriti

Hér skrifast saga af Króka-Ref

Upphaf

Á dögum Hákonar Aðalsteinsfóstra …

Niðurlag

… og er margt göfugra manna frá honum komið.

Baktitill

Og lúkum vér þar sögu Króka-Refs hins íslenska.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam (2, 6) Skjaldarmerki Amsterdam // Mótmerki: Fangamark (3-5).

Blaðfjöldi
9 blöð (294 mm x 190 mm), þar með talin blöð 1bis og 7bis eru auð.
Tölusetning blaða

  • Síðari tíma blaðmerking með svörtu bleki 1-7. Blað 1bis er merkt með rauðu bleki, 1 a. Blað 7bis er ómerkt.

Kveraskipan

Eitt kver:

  • fremra spjald - titilblað (3 blöð: spjaldblað, AM seðill, titilblað)
  • I: bl. 1-7 (1 tvinn + 1 blað: 1+7, 2+5, 3+4, 6).
  • aftara saurblað - aftara spjald (2 blöð)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 245 mm x 150 mm.
  • Línufjöldi er ca 43-47.
  • Síðutitlar ná yfir opnu (sjá t.d. á blöðum 2v-3r), Króka (á blaði 2v) og Refur (á blaði 3r).
  • Griporð er á blaði 5r.

Ástand

  • Krassað er yfir niðurlag sögu á blaði 1r.

Skrifarar og skrift

Skreytingar

  • Stór skrautstafur er upphafsstafur texta á blaði 1v.

  • Bókahnútur er á blaði 1r og við lok sögunnar á blaði 7v.

  • Titill sögu og síðutitlar eru með stærra og settara letri en almennt er á texta (sjá blað 1v og blöð 2v-3r).

  • Griporð á blaði 5r er afmarkað með pennaflúri.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Blöð 1bis (1a)) og 7bis eru hlutar tvíblöðungs sem verið hefur umslag. Á blaði 1bis er titill sögunnar með hendi Árna Magnússonar: Króka-Refs-Saga.
  • Safnmark og upplýsingar um eldri skráningu er skrifað með hendi Kålunds á fremra band verso.

Band

Pappaband frá árunum 1772-1780 (299 mm x 195 mm x 5 mm). Framan á kápu eru titill sögunnar og safnmark skráð. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Seðill (150 mm x 110 mm) á fremra saurblaði rektó er með hendi ritara Árna Magnússonar, e.t.v. Vigfúsar Jóhannssonar: Úr bók er ég fékk af séra Guðmundi á Helgafelli, er með hendi Þórðar Þórðarsonar, þá hann var ungur.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi á yngri árum Þórðar Þórðarsonar, (sbr. seðil) og tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 128. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 159 fol., AM 163 g fol., AM 163 s fol. og líklega AM 164 e fol.

Ferill

Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Guðmundi Jónssyni á Helgafelli (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

EM uppfærði kveraskipan 1. ágúst 2025.

ÞÓS skráði 22. júní 2020.

VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 18. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.

DKÞ grunnskráði 2. október 2001.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. desember 1885 í Katalog I;bls. 128 (nr. 208).

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: The manuscripts of Hrólfs saga kraka,
Umfang: XXIV
Titill: Hálfs saga ok Hálfsrekka,
Ritstjóri / Útgefandi: Seelow, Hubert
Umfang: 20
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn