Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM 106 fol.

Landnáma og ýmiss samtíningur ; Island, 1644-1651

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

1 (1r-35v (bls. 1-70))
Landnámabók
Rubrik

Landnáma

Bemærkning

Þórðarbók.

Texti á blöðum 6r-6v (í vinstra horni efst) er örlítið skertur.

Tekstklasse
1.1 (1r (bls. 1))
Formáli
Incipit

Í aldarfarsbók þeirri er Beda prestur heilagi gjörði …

Explicit

… að í þann tíma var farið í milli landanna.

Tekstklasse
1.2 (1r-2v (bls. 1-4))
Hér hefur upp Landnámabók Íslandsbyggðar
Rubrik

Hér hefur upp Landnámabók Íslandsbyggðar

Incipit

Á þeim tíma er Ísland fannst og byggðist af Noregi …

Explicit

… og fann hann þar karla.

Tekstklasse
1.3 (2v-11r (bls. 4-21))
Hér hefjast upp landnám í Sunnlendingafjórðungi er nú má þykja með mestum blóma og umvexti til virðingar alls vors lands, fyrir Guðs gæslu og hinu æðstu höfðingja er nú gæta með honum þessarar landsbyggðar; og í þeim fjórðungi byggja og byggt hafa bæði lærðir og leikir; þar með og fyrir landskosta sakir.
Rubrik

Hér hefjast upp landnám í Sunnlendingafjórðungi er nú má þykja með mestum blóma og umvexti til virðingar alls vors lands, fyrir Guðs gæslu og hinu æðstu höfðingja er nú gæta með honum þessarar landsbyggðar; og í þeim fjórðungi byggja og byggt hafa bæði lærðir og leikir; þar með og fyrir landskosta sakir.

Incipit

Austfirðingafjórðungur byggðist fyrst á Íslandi …

Explicit

… og var kallaður Hrólfur að Ballará.

Tekstklasse
1.4 (11r-22v (bls. 21-44))
Hér hefjast upp landnám í Vestfirðingafjórðungi er flest stórmenni hefur byggðan.
Rubrik

Hér hefjast upp landnám í Vestfirðingafjórðungi er flest stórmenni hefur byggðan.

Incipit

Maður hét Kalman, suðureyskur að ætt …

Explicit

… En þá eru[sic] bændur voru taldir á Íslandi þá voru DCCCC bónda í þessum fjórðungi.

Tekstklasse
1.5 (22v-31r (bls. 44-61))
Hér hefjast upp Landnám í Norðlendingafjórðungi er fjöbyggðastur hefur verið af öllu Íslandi og er engi stærri ættbogi en sá eð frá þeim mönnum er kominn er þar hafa byggt. Hafa þar og flestar sögur gjörst og stærstar í þeim héruðum og ei eldist það enn á vorum dögum þótt vér eldumst og landið hrörni að sínum kostum. Nú væri af slíkum hlutum í skyldasta kyni að vita hið sanna um landabyggðir og að reka fornar ættartölur frá þeim mönnum er þann fjórðung hafa byggt.
Rubrik

Hér hefjast upp Landnám í Norðlendingafjórðungi er fjöbyggðastur hefur verið af öllu Íslandi og er engi stærri ættbogi en sá eð frá þeim mönnum er kominn er þar hafa byggt. Hafa þar og flestar sögur gjörst og stærstar í þeim héruðum og ei eldist það enn á vorum dögum þótt vér eldumst og landið hrörni að sínum kostum. Nú væri af slíkum hlutum í skyldasta kyni að vita hið sanna um landabyggðir og að reka fornar ættartölur frá þeim mönnum er þann fjórðung hafa byggt.

Incipit

Gunnsteinn meinfretur son Álfs …

Explicit

… En þá er talið var bændaval á Íslandi, voru þar MCC bændur.

Tekstklasse
1.6 (31r-36r (bls. 61-71))
Þessir menn hafa land numið í Austfirðingafjórðungi er nú munu taldir vera og segir hvað að hendi (og fer hvað af hendi sem önnur bókm.) frá Langanesi suður til fjórðungamóts á Sólheimasand og er sögn manna þessi fjórðungur lands hafi fyrst albyggður verið.
Rubrik

Þessir menn hafa land numið í Austfirðingafjórðungi er nú munu taldir vera og segir hvað að hendi (og fer hvað af hendi sem önnur bókm.) frá Langanesi suður til fjórðungamóts á Sólheimasand og er sögn manna þessi fjórðungur lands hafi fyrst albyggður verið.

Incipit

Gunnólfur kroppa hét maður son Þóris Hauknefs hersis …

Explicit

… enda eru svo allar vitrar þjóðir að vita vilja upphaf sinna landsbyggða eða hvers hvergi til hefjast eða kynslóðir.

Bibliografi

Finnur Jónsson 1921, Landnámabók Melabók AM 106, 112 fol. s. xxxiv;

Hannes Finnsson 1774, Landnámabók;

Jakob Benediktsson 1958, Skarðsárbók, Landnámabók Björns Jónssonar á Skarðsá, Rit handritastofnunar Íslands 1 s. xxii-xxiv, xxv-xxxii, xxxiii, xxxiv, xxxv, xxxvi, xxxvii, xxxix, xi ff…;

Jakob Benediktsson 1974, Landnámabók, Íslenzk handrit III s. x, xviii, xx, xxii, xxiii (eng. overs.: p. xxvi, xxxviii, xxxviii, xxxix, xl, xli);

Þorgeir Guðmundsson og Þorsteinn Helgason 1829, Íslendinga sögur I.

Tekstklasse
2 (36r-37r (bls. 71-73))
Samtíningur
Bemærkning

Stutt umfjöllun um Úlfljót, elstu lög Íslands og þing; lögsögumannatal.

Tekstklasse
2.1 (36r-36v (bls. 71-72))
Ingen titel
Incipit

Úlfljótur hét maður …

Explicit

… Þorgeir ljósvetningagoði var þá lögsögumaður.

Bemærkning

Úr Landnámutextanum, Crymogæu Arngríms lærða og öðrum heimildum.

Tekstklasse
2.2 (36v-37r (bls. 72-73))
Annáll
Incipit

Hér segir hverjir lögsögumenn hafa verið á Íslandi og hvað lengi hver hefur lögsögu haft eftir Landnámu …

Bemærkning

Lögsögumannatal að árinu 1275, sem virðist hafa verið í AM 445 b 4to, framhald úr Crymogæu og úr Konungsannál Endar árið 1292 án niðurlags (neðst á blaði 37r).

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki 1: dárahöfuð með 5 meðalstórum bjöllum á kraga, 3 litlir hringir (IS5000-02-0106_p4), bl. 2, 4, 6, 10, 16. Stærð: 106 x 65 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 75 mm.

    Aðalmerki 1 (par) (IS5000-02-0106_p29), bl. 15. Stærð: 99 x 57 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 69 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað frá 1644 til 1651.

  • Aðalmerki 2: skjaldarmerki með sverðlilju. Svo virðist einnig vera fangamark WR fyrir neðan en það er þó nokkuð óljóst (IS5000-02-0106_p49), bl. 18, 34, 36. Stærð: 129 x 66 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 74 mm.

    Mótmerki 2: Fangamark PH (IS5000-02-0106_73),  bl. 33, 35, 37. Stærð: 25 x 16 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 26 mm.

    Notað frá 1644 til 1651.

Antal blade
iii + 37 + i blöð (312 mm x 205 mm). Nokkrar línur eru auðar neðst á blaði 35v og blað 37v er autt.
Foliering

  • Eldri blaðsíðumerking 3-73 (vantar blaðsíðumerkingu á sum blöð, sbr. 1, 2, 21, 23, 27, 39, 43, 49, 54, 62, 69).
  • Blöð eru ekki blaðmerkt.

Lægfordeling

8 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn og eitt brot af tvinni: spjaldblað+fremra saurblað 1, fylgigögn 1)
  • II: bl. 1-6 (3 tvinn: 1+6, 2+5, 3+4)
  • III: bl. 7-10 (tvö blöð + 3 tvinn: 7, 8, 9+10)
  • IV: bl. 11-14 (2 tvinn: 11+14, 12+13)
  • V: bl. 15-24 (tvö blöð + 6 tvinn: 15, 16, 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • VI: bl. 25-32 (4 tvinn: 25+32, 26+31, 27+30, 28+29)
  • VII: bl. 33-37 (3 tvinn + eitt blað: 33+36, 34+35, 37)
  • VIII: spjaldblað - aftara saurblað 1 (1 tvinn)

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 272 mm x 157 mm.
  • Línufjöldi er ca 47-50.

Tilstand

  • Blöðin eru stökk og slitin en gömul viðgerð er á mörgum þeirra, sbr. t.d. blað 1.
  • Ræmur af tveimur blöðum eru á milli saurblaðs og blaðs 1r.

Skrifttype

  • Helgi Grímsson skrifar blöð 1-10 og 15-16 sem eru innskotsblöð (sbr. Jakob Benediktsson: 1974 s. xxxix ).

Udsmykning

  • Titill og fyrsta lína textans eru með stærra letri en meginmálið (sjá blöð 1r og 1v). Það á einnig við þar sem skil verða í efni eða kaflaskipti (sbr. t.d. blað 31r).

  • Skrautstafir og pennaskreytingar (sbr. t.d. blöð 10v, 12v og 14v).

Tilføjelser

  • Blöð 1-10 og 15-16 (sbr. Jakob Benediktsson 1974, s. xxxix).
  • Spássíugreinar með athugasemdum og/eða tilvísunum til annarra Landnámugerða (sbr. t.d. blöð 10v-11r).

Indbinding

Band er frá 1975 (320 mm x 240 mm x 17 mm).

  • Spjöld eru klædd fínofnum stiga. Grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Band (320 mm x 217 mm x 17 mm) frá 1700-1730.

  • Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli.

Vedlagt materiale

  • Seðill með hendi Árna Magnússonar er á milli saurblaðs úr nýja bandinu og blaðleifa úr gamla bandinu. (167 mm x 105 mm): Þessa Landnámu hefi ég fengið af séra Þórði Jónssyni á Staðarstað.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu.

Seðill og handrit eru ljósprentuð í Landnámabók. Ljósprentun handrita. Útgefandi Jakob Benediktsson. Íslenzk handrit III. Reykjavík 1974. Seðillinn er gefinn út og útskýrður á bls. xxi

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett á tímabilinu ca 1644-1651, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 71. Það er samsteypa Þórðar Jónssonar í Hítardal úr Skarðsárbók (AM 104 fol.) og Melabók (AM 445 b 4to), kallað Þórðarbók. Handritið hefur að mestu leyti sömu efnisskipan og Melabók. Varðveist hefur brot úr Þórðarbók undir safnmarkinu AM 112 fol. sem skrifað er af sama skrifara. Það varðveitir texta sambærilegan og á blöðum 1-10 og 15-16. Ekki eru til fleiri handrit af þessari gerð Landnámu.

Proveniens

Árni Magnússon fékk bókina frá sr. Þórði Jónssyni á Staðastað, dóttursyni Þórðar í Hítardal (sbr. seðil).

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. janúar 1976.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. oktober 1885 Katalog I; bls. 71-72 (nr. 125). DKÞ grunnskráði 15. november 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 29. januar 2009; lagfærði í november 2010. ÞÓS skráði vatnsmerki 4. juni 2020. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 26. maj 2023.

Bevaringshistorie

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí 1975. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.

Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730.

Gömul viðgerð, einkum á blaði 1.

Billeder

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Ljósprent í Landnámabók. Íslenzk Handrit, Series in folio III (1974).

Bibliografi

Titel: Antiquités Russes
Redaktør: Rafn, C. C.
Titel: Fornsögur: Vatnsdælasaga, Hallfreðar saga, Flóamanna saga
Redaktør: Guðbrandur Vigfússon, Möbius, Theodor
Forfatter: Scott, Forrest S.
Titel: Eyrbyggja saga. The vellum tradition,
Omfang: 18
Forfatter: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titel: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Forfatter: Hreinn Benediktsson
Titel: Linguistic studies, historical and comparative
Titel: , Eyrbyggja saga
Redaktør: Einar Ól. Sveinsson, Matthías Þórðarson
Omfang: IV
Titel: Íslenzk Handrit, Series in folio, Landnámabók
Redaktør: Jakob Benediktsson
Omfang: III
Titel: Íslendínga sögur: udgivne efter gamle Haandskrifter
Redaktør: Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab
Omfang: I-IV
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Forfatter: Males, Mikael
Titel: Egill och Kormákr - tradering och nydikting,
Omfang: 1
Forfatter: Bjarni Einarsson
Titel: , Litterære forudsætninger for Egils saga
Omfang: VIII
Titel: STUAGNL, Íslendinga sögur, Hávarðar saga Ísfirðings
Redaktør: Björn K. Þórólfsson, Gísli Brynjúlfsson
Omfang: XV
Forfatter: Stefán Karlsson
Titel: Um Vatnshyrnu,
Omfang: s. 279-303
Forfatter: Sveinbjörn Rafnsson
Titel: Gripla, Um kristniboðsþættina
Omfang: II
Forfatter: Ármann Jakobsson
Titel: Hvað á að gera við Landnámu?, Gripla
Omfang: 26
[Metadata]
×

[Metadata]