Skráningarfærsla handrits

Þjóðskjalasafn XVII K/27,2; Alþingi 0000-004b

Graduale eða Antiphonarium

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 ( 1r-1v )
Graduale eða Antiphonarium
Athugasemd

Inniheldur m.a. Beatae virginis fecundat viscera vis

Brot

Latínubrotið er í brotinu neðst á blaðinu og er notað til þess að styrkja kant blaðsins, en þvengurinn hefur að mestu rifnað af og innsiglið með. Latínubrotinu hefur verið snúið um 90° svo hæðarjaðarinn er samsíða breidd pappírsbréfsins. Ræman er sjálf brotin í tvennt, svo einungis litlir fletir eru sýnilegir.

1.1 (1r)
Latínubrot í uppábroti
Athugasemd

Inniheldur m.a. Beatae virginis fecundat viscera vis

1.2 (1v)
2.1 (1r)
Íslenskt fornbréf
Upphaf

... Það [...] ég [...] eldri [...] að ég hafi verið á Hálsi í Fnjóskadal ...

Niðurlag

var þann 2 dag Januarii Anno 1609 á Hálsi í Fnjóskadal.

Athugasemd

Bl. 1r er merkt „88“ með smárri tölu skrifaðri með blýanti.

Efnisorð
2.2 (1v)
Athugasemd

Á bl. 1v stendur annað hvort „Steinn eldri Sigbjörnsson“ eða „Steinn eldri Sigfússon“ og „Lit:c“.

Lýsing á handriti

Blaðefni
                                    

Skinn.

Íslenska fornbréfið er pappír.

                                
Blaðfjöldi
2 brot . Latínubrotið er 145 mm x 28 mm. Fornbréfið er 165 mm x 1164 mm.
Umbrot
                                    

Eindálka. 8-9 línur á latínublaði.

Íslenska fornbréfið er 15 línur.

                                    

Leturflötur fornbréfsins er 102 mm x 140 mm.  

                                                                    
Ástand
Latínubrot er mikið skert og erfitt að sjá það þar sem brett hefur verið upp á bréfið og því lokað með þveng. Nær ógjörningur að sjá innra brotið. Skinnið sjálft er þó í góðu ásigkomulagi og blek er dökkt og skýrt. Bréfið sjálft er einnig í góðu ásigkomulagi. Brotið er af vinstra horni á nótnablaði. Spássía blaðsins er 27-35mm, ekki ósvipað og á 4a. Mögulega sama handrit og 4a.
Skrifarar og skrift

Tvær hendur. Mögulega sama hönd sem ritaði bréfin í 4a og 4b.

Skreytingar

Rautt dregið í upphafsstafi.

Rauðir nótnastrengir.

Nótur
Nótur fyrir ofan hverja línu.
Innsigli

Innsigliþvengur úr skinni. Ræman og hnúturinn þar sem skinnið hefur verið hnýtt er varðveitt, en ekki innsiglið sjálft.

Uppruni og ferill

Uppruni
Tímasett til 1609.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
                                    

SHH skráði 6. ágúst 2021.

                                                                    
Lýsigögn
×

Lýsigögn