Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Þjms 141

Sequentiarium

Athugasemd
Brot. Pétur í fjötrum (1/8); Ummyndun Krists (5/8); Himnaför Maríu (15/8). Tíðasöngur 1.-15. ágúst.
Tungumál textans
latína

Innihald

1 ( 1r-2v )
Sequentiarium
1.1 (1r)
Upphaf

... almam. Cui digna nos cum illis resonemus ...

Niðurlag

... Regnantem iure cum sanctis in eternum.

Athugasemd

Pétur í fjötrum: Seq Nunc luce alma (byrjar ekki á byrjun) (sjá. AH 37:276)

1.2 (1v)
Upphaf

... [pari]es effecta orbis regina ...

Niðurlag

... suscipe nostra hac die preca[ta] ...

Athugasemd

Ummyndun Krists: Seq Fulget mundo (brot) (sjá. AH 53:85)

1.3 (2r)
Upphaf

... Quae forma dignitas humanae ...

Niðurlag

... obstupescunt qui hec ...

Athugasemd

Himnaför Maríu: Seq Aurea virga prime (upph.) (sjá. AH 7:107; AH 53:106a)

1.4 (2v)
Upphaf

... Aurea virga prime matris eve ...

Niðurlag

... Celsus nuntiat angelus nova ...

Athugasemd

Seq Aurea virga prime (áfrh.; lýkur ekki fyllilega)

Lýsing á handriti

Blaðefni

Skinn.

Blaðfjöldi
Tvinn (2 blöð). (149 mm x 127-130 mm).
Umbrot

Eindálka. 8 línur á síðu.

Leturflötur er 96-98 mm x 85-88 mm.

Ástand
Skorið hefur verið ofan af broti, og einnig ofan af efri hornum. Skinnið er nokkuð óslétt og dökkt en blek er skýrt. Smáir, ljósir blettir eru á dreif um skinnið. Smá för eftir saumgöt á efri og neðri jaðri. Neðri spássía er afar breið, 53mm á hæð, sem bendir til þess að ekki hafi verið sparað til verksins. Hefur verið haft í band. Bl. 1v og bl. 2r hafa snúið út. Á milli bl. 1v og bl. 2r vantar líklega blað.
Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Stór upphafsstafur, mögulega gulur, með rauðu flúri.

Rauðir upphafsstafir.

Nótur eru á ljósum nótnastrengjum, sem hafa verið gerðir með því að draga för á skinnið.

Nótur
Nótur yfir hverri línu.

Uppruni og ferill

Uppruni
Tímasett til 13. aldar.
Ferill
Komið til Þjóðminjasafns 30. júlí 1864 frá Páli Pálssyni stúdent. Þjóðminjasafn afhenti Stofnun Árna Magnússonar til varðveislu 11. maí 2011

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

SHH skráði 16. júlí 2021.

Lýsigögn
×

Lýsigögn