Blaðsíðumerking.
Pennaflúraðir upphafsstafir.
Teikning af dreka á neðri spássíu bls. 9.
Band frá 1977.
Fastur seðill (50 mm x 136 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Reinalds rímur p. 1-6. Andra rímur p. 6-31. Landrés rímur p. 31-32.“
Tímasett til c1550 (sbr. ONPRegistre , bls. 457), en til fyrri hluta 16. aldar í Katalog II , bls. 5. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 604 a og c-h 4to.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli. Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. apríl 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 6-7 (nr. 1528). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 28. ágúst 2003.
Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.
Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.