„Schedæ Ara prests fróða“
Byggt á AM 113 a fol.
„Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala“
„Ketilbjörn landnámsmaður … “
„… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.“
„Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga“
„Ingvi Tyrkjakonungur …“
„… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.“
Síðari tíma blaðmerking, 1-7.
3 kver:
Ein hönd, skrifari er óþekktur; kansellískrift.
Pappaband frá 1772-1780 (294 mm x 200 mm x 4 mm). Safnmark og titill eru á fremra kápuspjaldi; blár safnmarksmiði á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og Árni Magnússon taldi það runnið frá AM 113 a fol. og því B-gerðar. Það er tímasett ca 1650-1686, en í Katalog I , bls. 76, til síðari hluta 17. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið frá Grími Einarssyni árið 1701 en hafði fengið það áður frá Íslandi árið 1686 og sent til baka 1687 eða 1688 til Einars Eyjólfssonar föður Gríms (sbr. seðil).
Árið 1730 var það hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1971.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.