Með liggur brot úr bænabók með hendi frá ca. 1700.
Hér eru kvæði til síra Jóns Konráðssonar og brúðkaupskvæði til síra Björns Magnússonar á Grenjaðarstöðum.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls.158-159.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 14. nóvember 2017.