Hér eru m.a. varðveitt kvæði eftir Jón Guðmundsson lærða. Bl. 8-9 sködduð að neðan. Bl. 10v upprunalega autt.
Bl. 10v-11r auð.
Úr: Rímum af Víglundi og Ketilríð, Rímum af Nikulási leikara, Rímum af Hálfdani Brönufóstra (Brönurímum gömlu), Kaupmannarímum, Saknaðarrímu og Rímum af Úlfi Uggasyni. Efri hlutinn á bl. 14 rifinn burt. Bl. 58-59 eru geymd sér (sjá varðveislusögu).
Bl. 7-9 mjög sködduð.
Brot.
Óheilt og illa farið.
Blöðin eru mjög óhrein.
I. 1-149: Óþekktur skrifari.
II. 150-157: Óþekktur skrifari.
Jón Sigurðsson hefur skrifað utan á kápu í eldra bandi.
Í öskju.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog II 1892:418.
Hildibrandur Jónsson átti bókina (bl. 5r).
Jón Guðmundsson átti bókina árið 1680 (bl. 25v).
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 9. júlí 1979.
GI skráði 21. júní 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 418.