„Sagan af Hrafnkeli goða, syni Hallfreðs landnámsmanns“
„Það var á dögum Haralds konungs hins hárfagra, Halfdanarsonar hins svarta …“
„… áttu þeir goðorðið saman og þóttu miklir menn fyrir sér og lýkur hér frá Hrafnkeli að segja.“
Með hendi Ásgeirs Jónssonar; kansellískrift.
Pappaband (319 null x 206 null x 6 null) er frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.
Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 110, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.
Handritið er uppskrift eftir pappírshandriti sem var í eigu Þormóðs Torfasonar (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).
Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr.AM 435 b 4to, blað 6v-7r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. desember 1993.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. desember 1885, Katalog I; bls. 110 (nr. 190), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 2. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Viðgert af Mette Jacobsen í október-nóvember 1993.
Viðgert af Birgitte Dall í mars 1974.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.