Bl. 2r autt. Mynd af Agli Skallagrímssyni á bl. 2v.
Inniheldur Höfuðlausn og 1. erindi Sonartorreks.
„Saga af Gunnlauge orms tungu og skälld|hrafne Iſlendingumm “
„Þättur af Brandkroſsa ok wmm wppruna | Droplaugar sona“
„Þattur af Stuf syne Þördar kattar“
„Bergbu þättur“
„Draums witran“
Bl. 79r autt. Mynd af Gretti Ásmundarsyni á bl. 79v.
„Sagann af Gretter sterka | Aaſmundarſyne Og Hanns foredrum“
„Sagann af Þorde Hredu“
Mynd af Guðmundi Eyjólfssyni á bl. 143v.
„Þättur Aff Þörſteine Forvitnna“
„Saga Aff Widſkiptumm Gudmundar | hinns ijka ok þeirra Suarfdæla“
„Saga Gunnars Þydrannda Bana“
„Saga Aff Þörſteine Hvyta“
„Þättur Aff Eigle Sijdu Hällz Sijne“
„Arons Saga Heriölffs Sonar“
„Sagann Aff Þörgijlz Þördarſyne, kólludumm orrubeinns föſtra“
„Sagann Aff Þörgeyre Hävarſsyne ok Þormöde Kolbrunar skällde“
„Sagann Aff Hävarde Isfirding“
„Þättur Af Þörſteine fröda Auſt|firdſkumm manne“
„Þättur Aff Þörſteine Austfirding“
„Draums witran“
„Saga af Hrafne sueinbiarnarſyne vestyrdin|ge, ſem Sturla hinn fröde, lætur fylgia Islendinga søgun|umm myklu“
„Þaattur af Aulkoffra“
„Þaattur af Þorsteine Vxafoot“
„Þáttr af Hreiðari enum heimska“
„Þaattur Af Sneglu Halla“
Í handritinu var einnig Njáls saga sem nú er í NKS 1220 fol. og er með hendi Magnúsar Ketilssonar, en hann hefur einnig skrifað titil Njáls sögu (sem nú er yfirstrikaður) aftast í efnisyfirlit á bl. 1v og texta við myndirnar af Agli og Guðmundi Eyjólfssyni (sbr. Agnete Loth, Opuscula III , bls. 93-94).
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Flagg með bókstöfum ICO // Ekkert mótmerki ( 2 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Par (kona og karl) // Ekkert mótmerki ( 4 , 6 , 12 , 15 , 40 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir // Ekkert mótmerki ( 8 , 10-11 , 16 , 20 , 23 , 26-27 , 30 , 35 , 38 , 43 , 47 , 55-58 ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki, skipt niður í fjóra hluta ásamt kórónu // Ekkert mótmerki ( 22 , 33 ).
Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Hjarta í tvöföldum hring, stakir bókstafir // Ekkert mótmerki ( 32 ).
Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki 1 ( 36 , 53 , 59 ) // Mótmerki: Fangamark MM með Hermes krossi ( 41 , 54 , 60 ).
Vatnsmerki 7. Aðalmerki: Fangamark CHVORK, flagg Hermans orf og ártal 1670 fyrir neðan // Ekkert mótmerki ( 48-49 ).
Vatnsmerki 8. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni í kringlóttum tvöföldum ramma, kóróna/lilja efst? // Ekkert mótmerki ( 63 , 67? , 68-69 , 289-291? , 292 , 297-298 , 301 , 302 ).
Vatnsmerki 9. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir og stafur // Ekkert mótmerki ( 71-74 , 84-87 , 89-91 , 95 , 99 , 101 , 102-103 , 106 , 108 , 110-113 , 115 , 117 , 120-123 , 129-131 , 135 , 141 ).
Vatnsmerki 10. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir og stafur // Ekkert mótmerki ( 79 ).
Vatnsmerki 11. Aðalmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki 2 // Ekkert mótmerki ( 137 , 140 ).
Vatnsmerki 12. Aðalmerki: Dárahöfuð 4, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 148-150 , 155-158 , 163-170 , 179-182 , 184-186 , 192 , 195 , 197-200 , 202 , 207-209 , 213-214 , 218-220 , 222-223 , 225 , 227 , 230-231 , 234-235 , 239 , 242-243 , 245-249 , 255 , 257 , 259 , 261 , 263 , 268-272 , 274-276 , 282-284 , 288 ) // Mótmerki: Flagg með bókstöfum ICO ( 144-146 , 147 , 151-154 , 159-162 , 171-178 , 183 , 187-189 , 191 , 193-194 , 196 , 201 , 203-206 , 210-212 , 215-217 , 220-221 , 224 , 226 , 228-229 , 232-233 , 236-238 , 240-241 , 244 , 250-254 , 256 , 258 , 260 , 262 , 264-267 , 277-281 , 285-287 ).
Vatnsmerki 13. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam, kóróna með fjaðraskúf // Ekkert mótmerki ( 307-308 , 311-312? , 317 ).
Vatnsmerki 14. Aðalmerki: Dárahöfuð 5?, með litlum bjöllum á kraga og 3 meðalstórir hringir // Ekkert mótmerki ( 315 ).
Spássíugreinar sumar skertar vegna afskurðar.
Ýmsar hendur.
Þrjár heilsíðumyndir af sagnahetjum:
Titilsíða með rauðum, bláum og svörtum lit í titli og litskrúðugum ramma með fléttuborða.
Litaðir upphafsstafir í upphafi margra sagna.
Skrautstafir í mörgum kaflaupphöfum.
Bókahnútur við bókarlok (samsvarandi skreytingu á titilsíðu).
Athugasemdir með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík á neðri spássíum o.fl. spássíugreinar.
Band frá 1770. Skinnband með tréspjöldum.
Lýsing Jóns Sigurðssonar fylgir.
Skrifað á tímabilinu 1670-1682 fyrir Magnús Jónsson í Vigur, að mestu af Magnúsi Þórólfssyni en að hluta til af Þórði Jónssyni á Skarði (1670) og Strandseli (1672) og Jóni Þórðarsyni (1680 og 1681).
Samkvæmt Katalog I (bls. 318) segir í gamalli skrá, (hørende til det ældste additament-katalog) að handritið sé komið úr dánarbúi Árna Magnússonar (opleveret fra Magnæi ſtervboe). Því má vera að Árni hafi haft handritið að láni en að því hafi verið skilað aftur til Íslands eftir lát hans (sbr. Annette Hasle, Hrafns saga Sveinbjarnarsonar. B-redaktionen. Editiones Arnamagnæanæ B, 25 , bls. XXV).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. júní 1996.
Viðgert í fjórða sinn í júní 1992 til mars 1994. Tekið úr bandi og sett aftur í sama band. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerðum og myndun ásamt boghistorie eftir Morten Grønbech og myndum um arkaskiptingu. Einnig fylgdi kartonumslag með efni og blöðum úr bandi ásamt lýsingu Jóns Sigurðssonar.