Athugasemdir og minnisgreinar um olíumálverk af Brynjólfi Sveinssyni Skálholtsbiskupi. Sú mynd var á heimili Sveinbjarnar Egilssonar rektors og konu hans Helgu Benediktsdóttur á Bessastöðum. Óvíst er hvað varð um myndina eftir að fjölskyldan fluttist frá Bessastöðum að Eyvindarstöðum. Hér eru athugasemdir og minnisgreinar um málverkið frá Jóni Þorkelssyni þjóðskjalaverði, Páli Melsteð sagnfræðingi og börnum þeirra Sveinbjarnar og Helgu, Benedikt, Agli og Þuríði. Efst við athugasemdir Egils um málverkið kemur fram að þær séu teknar upp úr skýrslu til Torfhildar Hólm og eru þær ekki með hendi Egils. Þar fyrir neðan hefur verið skrifað með blýanti að blöðin séu komin frá Jóni Borgfirðingi. Blöðin með athugasemdum Egils eru líklega með hendi Jóns Þorkelssonar, en gætu verið með hendi Jóns Borgfirðings.
Pappír.
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
Þuríður Sveinbjarnardóttir Kúld
Óinnbundið.
Gjöf frá Guðbrandi Jónssyni. Úr fórum föður hans, dr. Jóns Þorkelssonar.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 434.
Kjartan Atli Ísleifsson frumskráði 26. febrúar 2024.