„Schedæ Ara prests fröða“
Eintak af A-gerð, runnið frá AM 113 b fol.
„[Í]slendingabók gjörða ég fyrst biskupum vorum …“
„… eg heitir [!] Ari.“
Árni Magnússon bar saman við AM 113 e fol., sem hann taldi vera afrit af þessu handriti (sbr. seðil í AM 113 d fol.).
„Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala.“
„Ketilbjörn landnámsmaður ...“
„... Ketils er nú er biskuð að Hólum næstur Jóhanni.“
„Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga.“
„Ingvi Tyrkjakonungur ...“
„... föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.“
Með hendi Páls Ketilssonar á Staðastað, kansellíbrotaskrift.
Bókahnútur á eftir athugasemdum á bl. 18r.
Sum griporð smá skreytt með tveimur línum.
Band frá árunum 1772−1780 (198 mm x 162 mm x 5 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Árni Magnússon fékk bókina sem handritið tilheyrði frá Guðmundi Þorleifssyni í Brokey. Guðmundur hafði fengið hana frá Páli Jónssyni á Skarði (sbr. seðil).
Árið 1730 var það hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1971.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.