„Þorſteins Magnuſſonar | Diſſertatio | moti Alþingis ſamþycktenne 1632. | um eydſlu fiar firi ömaga“
Titillinn er frá Árna Magnússyni.
Titill handrits er á saurblaði með hendi Árna Magnússonar.
Einn seðill (172 mm x 113 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Frá Gísla Guðmundssyni á Rauðalæk, til eignar, ut puto, ef ég vil.“ Einnig stendur á 2. saurblaði með hendi Árna Magnússonar: „Þorsteins Magnússonar dissertatio móti Alþingissamþykktinni 1632 um eyðslu fjár fyrir ómaga.“
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 501.
Árni Magnússon fékk handritið frá Gísla Guðmundssyni á Rauðalæk (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. ágúst 1973.