„Hér hefur sögu af Hrafni og Gunnlaugi ormstungu eftir fyrirsögn Ara prests hins fróða Þorgilssonar.“
„Þorsteinn hét m(!)maður, hann var Egilsson, Skallagrímssonar, Kvöldúlfssonar, hersir yfir Noregi …“
„… og þótti öllum mikið fráfall Helgu sem von var að. “
Og lýkur hér nú sögu Gunnlaugs ormstungu.
„Þorgils Arason sagði svo fyrir griðum eftir áeggjan Snorra goða á Helgafelli.“
„Það er upphaf griða mála vorra …“
„… sá er rýfur réttartryggðir en hylli sá er heldur, höfum heilir sæst en Guð sé við oss altíð sáttur.“
Hluti sögunnar: Tryggðamál (Griðamál).
„Hér hefur sögu af Vallna-Ljót. Kapituli 1.“
„Sigurður hét maður, hann var son Karls hins rauða …“
„… og þótti Vallna-Ljótur hinn mesti höfðingi en Guðmundur hélt virðingu sinni allt til dauðadags. Og lýkur hér þessari frásögu.“
„Söguþáttur af Illuga Gríðarfóstra. Kapituli 1.“
„Kóngur var réður fyrir Danmörk er Hringur hét …“
„… hann væri hinn mesti kappi og mundi honum trúr sem sér og skildu…“
Einungis fyrsti kapituli sögunnar og upphaf annars; strikað hefur verið yfir upphafið (sjá blað 23v).
5 kver:
Að mestu með hendi Páls Sveinssonar (blöð 1r-16r), kansellíkrift.
Blöð 17r-23v eru annaðhvort með hendi Páls Sveinssonar eða Kolbeins Hannessonar (sbr. AM 435 b 4to, blöð 7v og 9r (útg. bls. 72)), kansellískrift.
Band frá 1976 (288 null x 230 null x 11 null). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Handritið er sennilega skrifað á Íslandi á 17. öld af fyrrnefndum skrifurum Páli Sveinssyni í Flóa og e.t.v. einnig Kolbeini Hannessyni (sbr. Katalog I , bls. 110 og AM 435 b 4to, blað 7v og 9r (útg. bls. 72)).
Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 6 fol., AM 10 fol., AM 143 fol. og AM 193 d fol. og að auki tvö handrit sem nú eru glötuð, Háttalykil Lofts ríka með hendi Páls Sveinssonar og Droplaugarsona sögu með hendi Guðmundar Guðmundssonar (sbr. AM 435 b 4to, blað 7v og 9r (útg. bls. 72 og leiðréttingar)).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVI í safni Þormóðs Torfasonar. Allar sögurnar í bókinni ásamt fleirum (sjá AM 147 fol.) komu til Þormóðar árið 1685 með kaupmanninum á Eyrarbakka, Andrese Laridtssyne Beck , frá sr. Torfa Jónssyni í Gaulverjabæ, nema tvær fyrstu og sú síðast talda sem kom til hans frá Árna Magnússyni. Árni tók bókina í sundur árið 1720 (sbr. AM 435 b 4to, blað 9r-10 (útg. bls. 72-73)).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir.