„Bréf“
Sama hönd er á fyrri hluta þessa handrits og GKS 3270 4to, AM 420 a 4to, og sumum vísunum í Egils sögu Möðruvallabókar.
„Magnús meður Guðs miskunn Noregs konungur …“
„… og um öll iv marka …“
Vantar aftan af, endar í 21. kafla Þjófabálks. Milli bl. 92-93 er einnig eyða. Bl. 92 endar í 12. kafla Farmannalaga: nema hann vilji á byr. Bl. 93 hefst í 25. kafla Farmannalaga: d[rag]a skipinu til fiskjar.
I. bl. 1r-38r: Óþekktur skrifari, textaskrift.
II. bl. 38v-98v: Óþekktur skrifari, textaskrift.
Handritið er allt lýst með litdregnum upphafsstöfum. Sams konar upphafsstafi er að finna í öðru Jónsbókarhandriti frá sama tíma og með sömu hendi, GKS 3270 4to, og mjög svipaðir upphafsstafir eru einnig í Stjórnarhandritinu AM 226 fol. og Flateyjarbók, GKS 1005 fol., sem Magnús Þórhallsson lýsti (sbr. Guðbjörg Kristjánsdóttir 1993 , bls. 25-26).
Stór sögustafur í mynd dreka er á einum stað:
Upphafsstafir skreyttir með pennaflúri (3-5 inndregnar línur) og margir með myndum af dýrum og kynjaskepnum ýmis konar og/eða laufteinungsskrauti, eru í upphafi annarra bálka:
Minni pennaflúraðir upphafsstafir (yfirleitt 2 inndregnar línur), einlitir með flúri í öðrum lit, eru í upphafi kafla. Flúrið er víða mjög máð.
Rauðritaðar fyrirsagnir eru alls staðar við upphaf bálka og kafla.
Línufyllingar í rauðum lit eru gjarnan aftan við rauðritaðar fyrirsagnir.
Víða er strikað eða dregið með rauðum lit í stafi og orð til áherslu.
Rauður litur hefur verið borinn á blaðkanta eftir að skorið var af þeim við band.
Nótur á neðri spássíum á bl. 85v-86r.
Á aftara pappírssaurblað fremst hefur Jón Eiríksson konferensráð skráð upplýsingar um aldur textans og uppruna, en einnig er hér athugasemd um feril handritsins.
Á neðri hluta bl. 98v hefur Jón Eiríksson skrifað athugasemd um það hversu mikið vantar í handritið.
Band frá því í september 1980 (252 mm x 223 mm x 48 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Ljósbrúnt geitarskinn á kili og hornum Saumað á móttök. Ný saurblöð fremst og aftast, innan við þau eru eldri saurblöð.
Blöð voru fjarlægð úr gömlu bandi og eru nú varðveitt í Acc 48k og Acc 48 l.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1350 (sbr. Stefán Karlsson 1967:27 ), en Kålund tímasetti til ca 1300 ( Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter 1900:69 ).
Björn Jónsson gyllir átti handritið á 14. öld, en hann fékk það frá móðurbróður sínum Jóni Sveinssyni Hvammi er bjó í Hvammi í Hvammssveit (hann dó 1355) (sjá bl. 91v). Árið 1774 barst það síðan til Kaupmannahafnar (sjá aftara saurblað fremst). Det kongelige bibliotek keypti handritið á uppboði hjá bókaverslun Hegelunds árið 1786.
Á spássíum á bl. 46v og 49v er nafnið Magnús (Árnason).
Á spássíu á bl. 57v er nafnið Sigríður (Sigurðardóttir?).
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 5. desember 1980.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1980. Eldra band fylgir í öskju sem nú er orðin handritinu of lítil.