Skráningarfærsla handrits

AM 185 fol.

Dínus saga drambláta ; Ísland, 1625-1672

Innihald

(1r-30v)
Dínus saga drambláta
Titill í handriti

Hér byrjast Saga Af Dínusi drambláta

Vensl

Afritað í AM 184 fol.

Skrifaraklausa

Geymi vor Guð allra Amen.

Baktitill

... Og lýkur svo sögu Dýnus hins drambláta sonar Tholemei konungs, og hinnar fögru Philotemie.

Athugasemd

Óheil.

Bl. 5-6 auð, skotið inn síðar til að gefa til kynna stóra eyðu í textanum. Kålund ályktar út frá AM 184 fol., sem hann telur skrifað eftir þessu, að eyðan hafi ekki verið í handritinu upprunalega ( Katalog I, bls. 155).

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Mótmerki 1: Skjaldarmerki í arnarlíki með kórónu og bókstöfum AS (IS5000-02-0185_3v), bl. 1-4, 7, 19-20. Stærð: 76 x 52 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 49 mm.

    Aðalmerki 1: Tveir turnar með fjórum egglaga gluggum ásamt lindifuru (IS5000-02-0185_8r), bl. 8-12. Stærð: 94 x 59 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 50 mm.

    Notað frá 1625 til 1672.
  • Aðalmerki 2: Dárahöfuð með 5 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir (IS5000-02-0185_30r), bl. 16-1822-2325?2730. Stærð: 124 x 75 mm,

    Ekkert mótmerki.

    Notað frá 1625 til 1672.

Blaðfjöldi
i + 30 + i blað (290-297 mm x 184-188 mm). Auð blöð: 5-6.
Tölusetning blaða

Blaðmerking með svörtu bleki 1-30, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

5 kver:

  • I: spjaldblað og fremri saurblöð (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-10 (5 tvinn: 1+10, 2+9, 3+8, 4+7, 5+6)
  • III: bl. 11-20 (5 tvinn: 1+20, 12+19, 13+18, 14+17, 15+16)
  • IV: bl. 21-30 (5 tvinn: 21+30, 22+29, 23+28, 24+27, 25+26)
  • V: aftara saurblað og spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 250 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er 26-27.
  • Leturflötur afmarkaður, annað hvort með broti eða þurroddi.
  • Eyður fyrir upphafsstafi (3-6 línur).
  • Lok sögu enda í totu.
  • Griporð (bl. 10v, 20v).
Ástand
  • Blettótt.
  • Blöð eru viðkvæm, sérstaklega við kjöl (viðgerð).
  • Skorið af efri spássíu, texti smá skertur.
  • Saumgöt við kjöl.
  • Vantar sennilega í handritið á milli bl. 4 og 7.
Skrifarar og skrift

Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Fyrirsagnir og fyrsta lína texta skrifað í stærra letri.

Leifar af rauðum lit á blaðbrúnum, sem smitast á spássíur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Spássíugreinar og undirstrikanir í texta.
  • Á neðri spássíu á bl. 4v, Árni Magnússon hefur skrifað: hier vantar 2 blöd.
  • Bl. 5-6 innskotsblöð.
Band

  • Band frá 1982.
  • Spjöld eru klædd fínofnum striga.

Pappaband frá tíma bókavarðarins Jens Jacob Weber, um 1771-1780. Titill og safnmark eru skrifuð á bókarkápu, tveir límmiðar á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (159 mm x 105 mm)með hendi Árna Magnússonar: Úr bók Þorbjargar Vigfúsdóttur, er kom til mín frá séra Þórði Jónssyni. Á versó-síðu: Gundlingiana skrifað með annarri hönd, en krassað yfir.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi sennilega í Villingaholti, af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 155, en virkt skriftartímabil Jóns var ca 1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 13 fol., AM 34 2 fol., AM 113 b fol. og AM 155 fol.

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorbjargar Vigfúsdóttur en Árni Magnússon fékk hana frá sr. Þórði Jónssyni, frænda hennar, (sbr. seðil).

Loth 1960, Editiones AM A5, lxii-lxiii Jón Helgason 1970, Opuscula IV, 354-355.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. október 1982.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I, bls. 155 (nr. 286). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. janúar 1886. DKÞ skráði 17. apríl 2001. ÞÓS skráði 29. júní 2020. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 29. maí 2023. MJG fór yfir skráningu með gögnum frá BS, 13. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Myndað 1982.

Lagfært og bundið 1982. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Om perg. fol. nr 8 og AM 304 4to,
Umfang: s. 1-24
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Småstykker 1-5
Umfang: s. 350-363
Titill: Dínus saga drambláta, Riddarasögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn