Rímur af Úlfi Uggasyni, kveðnar af og Otúel sterka eftir Guðmund Bergþórsson , skrifaðar í febrúar 1901, af Halldór Steinmann.
„1. ríma“
„Suðra skeið um sagnar mið …“
„… hljóða sending, náðist varla.“
„Skrifaðar í Hraukbæ 22. og 23. febr. 1901 af Halldór Steinmann.“
Skrifaraklausan er á blaði 28v.
Sex rímur; (sjá nánar: Rímnatal 1966: 481-482). Blað 1v er autt.
„Rímur af Otúel sterka, kveðnar af Guðmundi Bergþórssyni“
„Máls upptökin myndast þar …“
„… oss vor blessi faðir.“
Átta rímur; ortar 1681 (sjá nánar: Rímnatal 1966: 374-375).
„Ríma af Álfhildi konungsdóttur“
„Er það sögu upphafið …“
„… oss vor blessi faðir.“
Fjörutíu og átta erindi (mansöng vantar); samkvæmt Rímnatali mun hafa verið um 60 erindi, ort um 1857 (sjá nánar: Rímnatal 1966: 18-19). Tvö ónúmeruð lokaerindi. Hefst annað svo: Ártal þekkja allir menn … og hitt svo: Svona bíði braga skrá …
„Ríma af Litla-dreng eftir sama“
„Landi svella svölu á …“
„… fánýt litla ríma.“
Fimmtíu og níu erindi (mansöng vantar); samkvæmt Rímnatali eru í rímunni 78 erindi, ort 1856 (sjá nánar: Rímnatal 1966: 333).
„Ríma af sjóhrakningi Jóns Ólafssonar úr Leiru árið 1836 (eftir sama)“
„Efnis látum upphaf þá …“
„… guðleg þrenning hæða.“
Sextíu og eitt erindi; samkvæmt Rímnatali eru í rímunni 56 erindi, ort 1836 (sjá nánar: Rímnatal 1966: 249-250).
„Friðrik Barbarósa“
„Keisari nokkur mætur mann …“
„… þá er endað þetta litla kvæði.“
Tólf erindi (sjá nánar: http://ordab30.lexis.hi.is/bragi/ljodasafn.)
„Ríma af Hróaldi“
„Lukkan mér ei lánast snjöll …“
„… heim í naustið þagnar.“
Þrettán erindi. Blað 80v er autt.
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-159 (bls. 1-4 eru ótölusettar og bls. 1 og 160 (blöð 1v og 80v) eru auðar og ótölusettar); blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-80.
Tvö kver.
Með hendi Halldórs Steinmanns Þorsteinssonar; skriftin er snarhönd, nöfn og oft fyrsta lína rímu eru með snarhönd og / eða kansellískrift.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu, eru með stærra og settara letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 54v-55r og 77v).
Skrautbekkur umlykur titilsíðu (sjá blað 1r) og sumar fyrirsagnir (sjá blað 29r).
Skrautræma eða skrautbekkur er á milli rímna.
Band (161 mm x 100 mm x 10 mm): Tvær glósubækur; í hvorri eru 40 blöð saumuð í tvær stífar pappakápur; kápurnar eru festar saman með fjórum bréfaklemmum.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 102, 103, 104, 105 og 106.
Handritið var skrifað í Hraukbæ 1901 (sbr. blað 28v).
VH skráði í september 2010.