„Rímur af Birni Hítdælakappa. 1ta ríma“
„Langar mig við ljóðadís …“
Tólf rímur, ortar 1856 fyrir Engilráð Stefánsdóttur (sjá nánar Rímnatal 1966: 82).
Seinni tíma tölusetning blaða með blýanti: 1-56. Blað 56v er upprunalega autt; nú þakið pennaprufum.
Sjö kver.
Sennilega með hendi höfundar Eiríks Pálssonar; sprettskrift / snarhönd.
Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 29r og 39r).
Band (158-170 mm x 108-110 mm x 10 mm) er saumað í svarbrúna leðurkápu sem áður hefur verið utan um spjöld á annarri og aðeins minni bók. Strikun og hamrað mynstur má greina í kápunni.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 101, 102, 103, 104, 105 og 106.
Handritið var skrifað á Íslandi og ef hér er um eiginhandarrit höfundar að ræða þá voru rímurnar ortar 1856 (sbr. Rímnatal 1966: 82).
VH skráði í september 2010.