„Dýrafræði lesin fyrir af skólakennara Benedikt Gröndal 1876-77“
Pappír.
Bókin er úr dánarbúi foreldra Steinþórs V. Guðmundssonar. Óvíst er um uppruna bókarinnar en hún var innan um ýmis námsgögn frá Hvanneyri. Faðir Steinþórs, Guðmundur Vernharðsson stundaði nám að Hvanneyri á 3. áratug síðustu aldar og allnokkru síðar við Kennaraskólann. Steinþór telur að bókin hafi jafnvel komið úr eigu föður Guðmundar, Vernharðs Einarssonar við Ísafjarðardjúp (1870–1937) en hann var búfræðingur frá Ólafsdalsskóla.
Frá Fanneyju Jónasdóttur og Steinþóri V. Guðmundssyni, um hendur Rósu Þorsteinsdóttur á Árnastofnun, afhent 24. janúar 2020.