Skráningarfærsla handrits

Lbs 4945 8vo

Rímur af Remundi Rígarðssyni ; Ísland, 1800-1899

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Rímur af Remundi Rígarðssyni
Titill í handriti

Rímur af Remundi Rígarðssyni

Upphaf

Hófleg skemmtan hrindir þögn / hratt sem myrkir birta …

Niðurlag

… með því fel ég menn og sprund / mildri drottins hendi.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
68 blöð (165 mm x 114 mm)
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Víða skreyttir upphafsstafir.

Bókahnútur á blaði 68v sem að dýr hefur verið formað í.

Band

Innbundið.

Skinnband.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland á 19. öld.
Ferill

Hulda Björk Þorkelsdóttir bókavörður bókasafns Reykjanesbæjar sendi 28. febrúar 2005 kassa með handritum úr safninu áður Bæjar- og Héraðsbókasafnið í Keflavík. Samskiptin voru að tilhlutan Þórunnar Sigurðardóttur en handritin áttu ekki lengur neitt hlutverk í safninu. Í handritin hefur verið stimplað Bæjar- og héraðsbókasafnið Keflavík auk aðfangaárs sem er 1990 jafnframt hefur verið er skrifað inn aðfanganúmer á titlsíðu. Handritin eru öll innbundin, kjalmerkt og á þau hefur verið settur strikamiði.

Nöfn í handriti: Stefán Díómedesson, Björn Bjarnason Huppahlíð og Jóhann Jónsson.

Í band handritsins hafa á sínum tíma verið notuð sendibréf, að framan eru tvö sendibréf en ekki er hægt að greina hver sendi eða til hvers bréfin voru, annað þeirra er skrifað í Reykjavík 1813. Aftast í handritinu er síðan að finna tvö bréf send sr. Gunnlaugi Gunnlaugssyni á Melsstað, annað skrifað 1808 á Ásgeirsvöllum og hitt er ritað af Th. Tómassyni.

Sjá Lbs 5632-5635 4to og Lbs 4938-4949 8vo.

Sett á safnmark í september 2015.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir skráði 3. september 2015 ; úr óprentaðri handritaskrá.
Viðgerðarsaga

24. ágúst 2015 voru handritin sett til forvarðar til þess að fjarlægja kjalmiða og lím.

Lýsigögn
×

Lýsigögn