Rímur af Hrólfi Sturlaugssyni. Kveðnar árið 1833. (1r)
Pappír.
Skrifari hefur hlaupið yfir opnuna 74v-75r og gerir grein fyrir því á blaði 74v.
Saurblaðið er hluti viðgerðartvinns, áfast blaði 7.
Upprunaleg blaðmerking engin en blaðsíðumerking 1-220 (1r-111v) seinni tíma viðbót; seðill merktur 80 þó ekki með í þeirri merkingu.
Tíunda hvert blað var merkt við blaðtalningu.
Einn dálkur.
Leturflötur er 140-150 mm x 85-95 mm.
Línufjöldi 21-24.
Griporð.Á örfáum blöðum handritsins er fjólublátt pár eða smáblettir og hefur slíkur litur smitast í gegn á blöð 74r og 75v frá blöðum 74v og 75r.
Á blaði 103 er smágat.
Textablokkin er laus frá bandinu.
Lítils háttar er rifið af blöðum 109-111 svo að kemur ögn niður á texta.
Fremra spjaldblað að mestu laust frá spjaldi.
Á blöðum 1v, 74v-75r og 111v er ýmislegt pár, m.a. nafn höfundar og nöfn eigenda handritsins, kveðskapur og teikningar af fuglum og fleiri dýrum.
Á blaði 45v: „Rímur af Göngu Hrólfi“ skrifað fjólubláum lit á efri spássíu.
Á fremra spjaldblaði 1v og aftara spjaldblaði 1r er ýmislegt pár, sumt með fjólubláum lit, annað með bleklit og enn annað skrifað með blýanti.
Textablokkin er laus frá skinnbandi.
Eigendur handrits: Jóhann E. Einarsson (74v), Jóhann Jóhannsson (74v og 111v).
Nöfn í handriti: E. Ólafsson (2r), Jakob Þorsteinsson á Bergsstöðum (fremra spjaldblað 1v og blað 111v).
Viðgert í janúar 1985 af Kristjönu Kristjánsdóttur.