Meðal efnis er Berserkjakviða, skrifuð á Bjarnastöðum 5. og 6. maí 1864, Geðfró, hugsanlega með hendi Margrétar Ólafsdóttur, Karl og kerling, kvæði af Alexander blinda eignað Guðmundi Bergþórssyni, Samhendur hégómlegar og Veronikukvæði. Ennfremur Draumvísa Rögnvalds Jónssonar í Lambanesi í Fljótum, sem honum þótti Eggert Jónsson kveða, ritað 10. maí 1878 og Formannavísur úr Selvogi 1868 með sömu hendi og Berserkjakviða, aftan við stendur Jón Jónsson með villuletri.
Pappír.
Lbs 3968-3973 8vo gjöf frá syni ritara Braga frá Hoftúnum í Staðarsveit, árin 1968-1970, sumt afhent af Þóri Kr. Þórðarsyni prófessor.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 5. bindi, bls. 227.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 15. október 2020.