„Rímur af Dínusi hinum drambláta kveðnar af Guðmundi Bergþórssyni.“
„Nökkvinn grés úr nausti fíls…“
17 rímur.
Pappír.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 192.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 7. september 2018.