Skráningarfærsla handrits
AM 38 8vo
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Jónsbók og réttarbætur; Ísland, 1578
![[Glyph image provided by the ENRICH Project via manuscriptorium.com] LATIN SMALL LETTER O WITH CURL](/images/glyphs/e7d3.png)
[Special character shown similar to its original form.]
Innihald
Jónsbók
Það vantar framan og aftan af handritinu og innan úr því. Eyður eru í texta á eftir blöðum 4 og 20.
Þingfararbálkur
Kristindómsþáttur
Kóngaerfðir
„Nú af því að landsfólkið á mikla lýðskyldu að veita …“
Kóngsþegnskilda
„Í nafni vors herra …“
Mannhelgi
„Það er fyrst í mannhelgi vorri …“
Kvennagiftingar
„Faðir og móðir skulu ráða giftingum dætra sinna …“
Erfðatal
„Sú er hin fyrsta …“
Arftökur
„Ef maður verður fyrir þeirri villu að hann …“
Framfærslubálkur
„Hver maður á fram að færa föður sinn og móður …“
Landabrigðabálkur
Landsleigubálkur
„Ef umboðsmaður kóngs …“
Rekabálkur
Kaupabálkur
Farmannalög
„Farmannalög“
„Sú er lögleg fartekja en engin önnur …“
Titill í handriti er seinni tíma viðbót.
Þjófabálkur
„Það er þessu næst …“
„Er þessi bók enduð þann 17. dag aprilis, anno 157 og 8. Guð styrki þann sem á. Amen, amen.“
Skrifaraklausan er á blaði 118v.
Réttarbætur
„Sektir í landslagabók“
„Þessar eru sektir í landslagabók …“
Óheilar.
Lýsing á handriti
Síðari tíma blaðmerking 1-127.
Sautján kver.
- Kver I: blöð 1-4, 2 tvinn.
- Kver II: blöð 5-12, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 13-20, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 20bis, 21-27, 4 tvinn.
- Blaðleifar af glötuðu blaði eru fyrir framan blað 21r.
- Kver V: blöð 28-35, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 36-43, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 44-51, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 52-59, 4 tvinn.
- Kver IX: blöð 60-65, 3 tvinn
- Kver X: blöð 66-73, 4 tvinn
- Kver XI: blöð 74-81, 4 tvinn.
- Kver XII: blöð 82-89, 4 tvinn.
- Kver XIII: blöð 90-97, 4 tvinn.
- Kver XIV: blöð 98-103, 3 tvinn.
- Kver XV: blöð 104-112, 4 tvinn.
- Kver XVI: blöð 113-119, 4 tvinn.
- Kver XVII: blöð 120-126, 3 tvinn + 1 stakt blað.
- Blöð vantar í handritið. Eyður eru í texta á eftir blöðum 4 og 20.
- Texti á bl. 1v-2v er lítillega skertur.
- Morknað hefur af hornum blaða 1r-3v og kvarnast hefur úr leðri kápuspjalda aðallega því aftara. Leður kápunnar er orðið lúið.
- Blöð eru bæði blettótt og skítug (sjá t.d. blöð 65v-66r) og göt eru víða (sjá t.d. blöð 97r-104).
- Fyrri hluti handritsins er skrifaður á uppskafning úr gamalli Jónsbók (sjá t.d. blað 26v) og síðustu arkirnar á uppskafning úr latneskri messusöngsbók (sjá t.d. blöð 120r-126v).
- Víða má greina leifar af eldri texta (sbr. bl. 104r-119v).
- Á eftir blaði 20 (20bis) er hluti af blaði sem rifið hefur verið úr handritinu.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 115-125 mm x 85-90 mm.
- Línufjöldi er ca 20-26.
Leifar af skreyttum upphafsstöfum eldri texta (t.d. á blöðum 99r og 102r-102v.
Leifar af rauðum undirstrikunum úr eldri texta o.fl. (blöð 98r-119v)
Nótnaskrift á bókfelli í bandi.
Titlar á bl. 6r, 47r, 85r og 92v eru síðari tíma viðbót.
Band (160 mm x 110 mm x 55 mm): Kápuspjöld úr tré og kjölur eru klædd skinni. Mynstur er þrykkt á kápuspjöld. Að innanverðu voru spjöldin klædd með bókfelli með nótnaskrift úr latnesku helgisiðahandriti. Bókfellið hefur verið losað frá þannig að nóturnar beggja vegna fá notið sín.
- Laus seðill (142 mm x 147 mm)með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril „Valgardur i Borgarhollte, fyrir laungu daudur. Asbiorn Valgardzson Jon Þorsteinsson. er i litlo 4to. Nockur sidurstu orkin ritud uppä uppskafning ur latinska messusaungsbok. [nockud af þvi fyrir faranda er ritad uppä uppskafning ur gamalli godri Jonsbok.] endud 1578. stendur aptana. er ecki med þeim verstu þr er i papiskann oll. 1711 i majo keypti eg bokina og er hun nu min. “.
- Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.
Uppruni og ferill
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1578 (sjá bl. 118v).
- Árni Magnússon keypti handritið í maí 1711.
- Fangamarkið IÞS er rist í spennu á bandinu.
- Á seðli Árna Magnússonar eru þrjú nöfn sem hugsanlega eru nöfn fyrri eigenda: Valgarður í Borgarholti, Ásbjörn Valgarðsson, Jón Þorsteinsson.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. mars 1989.
Aðrar upplýsingar
Viðgert í Kaupmannahöfn í nóvember 1988.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
„Et brudstykke af Kongespejlet: Med bemærkninger om indholdet af AM 668,4°“, | ed. Hans Bekker-Nielsen | s. 105-112 | |
Erik Eggen | The Sequences of the Archbishopric of Nidarós I: Text, | 1968; XXI | |
Bent Chr. Jacobsen | „Sektir Jónsbókar“, Gripla | 1990; 7: s. 179-185 | |
Már Jónsson | Árni Magnússon : ævisaga |