Skráningarfærsla handrits
AM 939 4to
Skoða myndirGrettis saga ásamt tveimur vísum um Kjartan og Bolla; Ísland, 1700-1725
Grettla
Innihald
Tvær vísur um Kjartan og Bolla
Enginn titill
„Vitri kóngur Kjartan…“
Enginn titill
„Brellinn virtist Bolli…“
„Saga af Gretti Ásmundssyni“
„Ásmundur hét maður og var kallaður hærulangur …“
„… og ljúkum vér svo sögu Grettis Ásmundssonar.“
Sagan er án Önundar þáttar tréfóts.
Íslenska
Lýsing á handriti
Blaðsíðumerking 1-157; upprunaleg merking er til og með bls. 49. Eftir bls. 49 eru númer skrifuð með blýanti og einungis á rektó-hlið blaða, sbr. 51, 53, 55 …157; bls. 159 er ómerkt.
Tíu kver.
- Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24; 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 25-32; 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-40; 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41-48; 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 49-56; 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 57-64; 4 tvinn.
- Kver IX: blöð 65-72; 4 tvinn.
- Kver X: blöð 73-80; 4 tvinn.
- Skrifari er óþekktur, fljótaskrift.
Gamalt pappaband (212 mm x 171 mm x 13 mm).
Það er fest með skinnþvengjum; endurbundið í júní 1984. Blár safnmarksmiði á kili.
Tveir seðlar fylgja handritinu:
- Á fyrri seðli sem staðsettur er á milli annars saurblaðs (160 mm x 99 mm) og síðari seðils eru tvær vísur um Kjartan og Bolla (sjá efni 1.1 og 1.2).
- Á síðari seðli (101 mm x 146 mm) fremst eru athugasemdir um samanburð afskriftarinnar við annað handrit, dagsett í Skálholti 18-31. ágúst 1730„Nota Þetta exemplar af Grettis Sógu a ad lesast saman vid eitt fide dignus Apographum er þad virdtest vera er þat er skrifad eptir; er þesse Sedill festur framan vid bokina til minnis þar um, item ad se ecke metera (?) inter conferendum sem med vilia hefur her og þar vered bokstafat ad imitationem veterum, e.g. þar t stendur fyrer d. eitt r efter consonam pro hodierno sed pravo ur; engi pro aunvir og so framgeivs. hellst er adgiætandi hvar ord kann ad vanta, og allra hellst hvar visuord þarf ad leidretta. Skalhollte A 17-31 Aug. 1730. [með bláu bleki] þar sem þetta merke // er a Spatiunne er þad tejkn til ad eitthvad er misskrifat [var?] vantar i þeirre linu sem þad stendur hia, ellegar þar er greiner um. en vid [000000000] þad merker malshatt [000]ega malsgrein edur fornyrdir er vanaligt (?)“.
Aftast í handriti er innskotsblað:
- Á blaðinu er tafla hugsanlega úr prentuðu riti með upplýsingum á latínu. Blaðið er ekki heilt og texti þess hefur skerst vegna afskurðar við hægri jaðar; sömuleiðis vantar ofan af blaðinu.
Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II, bls. 270.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. júlí 1985.
Aðrar upplýsingar
Viðgert og bundið í gamla bandið í Kaupmannahöfn í júní 1984.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Guðvarður Már Gunnlaugsson | „"Grettir vondum vættum, veitti hel og þreytti". Grettir Ásmundarson og vinsældir Grettis sögu“, | 2000; 11: s. 37-78 |