Skráningarfærsla handrits

AM 710 k 4to

Magnúsarkvæði Eyjajarls

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-18v)
Magnúsarkvæði Eyjajarls
Athugasemd

Skrifað eftir kálfskinnsblöðum í 4to í eigu Þórðar Steindórssonar(sjá saurblað).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
18 blöð.
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (205 mm x 158 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þessi Magnúsdiktur Eyjajarls er ritaður úr kálfskinnsbók in 4to minori, sem ég fékk hjá Halldóri Bjarnasyni í Breiðadal í Önundarfirði.

Uppruni og ferill

Uppruni

Með hendi Árna Magnússonar og tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog II , bls. 125.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 710 4to, Þeſse papisk Qvæde ſkrifud ä sinne Bladſidu med hende Jons Olafs ſonar biriaſt ſo: Jöfur gefi upphaf, Pétur er páfi Drottins, Drottinn gef þú mér mátt, Postulann skulum vér prísa leita (um S.P.), Prísa vildi ég prúðan dikt (um S. Jakob), Fljóðið ekki finna má (um S. Mariu), Dýrðarfullur Drottinn, Hlýði allir ýtar snjallir óði mínum, Faðir vor Kristur í friðinum hæsta með hendi Jóns Sigurðssonar og einnig rifrildi af Katrínar kvæði með hendi Jóns Ólafssonar, Rósa byrjast Faðir og Son á hæstum hæðum, skrifuð á aðra hverja blaðsíðu með hendi Árna Magnússonar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. maí 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 125 (nr. 1768). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 24. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn