Skráningarfærsla handrits
AM 604 d 4to
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Rímnabók; Ísland, 1540-1560
Innihald
Hrings rímur og Tryggva
Fyrirsögn á spássíu: „xj. rimur fra hring ok trygva“.
Á efri helmingi bls. 1 hefur skriftin verið skafin burt.
Sigurðar rímur þögla
Fyrirsögn á spássíu: „sigurdar rimur þogla“.
Fjórtán rímur.
Óheilar. Aftan við bls. 52, sem endar með 12. vísu 13. rímu, vantar eitt blað.
Ormars rímur (gömlu)
Fyrirsögn á spássíu: „Ormars imur fiorar“.
Þjófarímur Rímur af Ill, Verra og Verst
Fyrirsögn á spássíu: „rímur iiij. af jll. verri ok vest“. Fyrirsögn á bls. 67: „iij. þiofa ri[ma]“.
Lýsing á handriti
Blaðsíðumerking.
Skrift skafin burt á efri helmingi bls. 1.
Band frá 1977.
Fastur seðill (78 mm x 147 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Hrings og Tryggva rímur p. 1-28. Sigurðar þögla rímur p. 29-54, defect. Ormars rímur p. 55-61. Þjófa [rímur] (ills verre, versti) p. 61-72.“
Uppruni og ferill
Tímasett til c1550 (sbr. ONPRegistre, bls. 457), en til fyrri hluta 16. aldar í Katalog II, bls. 5. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 604 a-c og e-h 4to.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli. Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1978.
Aðrar upplýsingar
Tekið eftir Katalog II, bls. 7-8 (nr. 1530). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 29. ágúst 2003.
Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.
Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Ljósprent í Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XI (1938).