Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 567 XXVI 4to

Grega saga ; Ísland, 1390

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Grega saga
Upphaf

… og þar skal sjá mær sem þér lífið gaf …

Niðurlag

… veikja Jötuninn ooooooooooooooooooooooooo þvíað hvergi …

Notaskrá

Opuscula 1960 Is. 201-206.

Athugasemd

Brot.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
1 blað (185 mm x 145 mm).
Tölusetning blaða

Blaðið er ómerkt en þó kunna að vera leifar af rauðri blaðmerkingu.

Kveraskipan

Stakt blað.

Umbrot

  • Tvídálka.
  • Leturflötur er ca 160 mm x 115-120 mm.
  • Línufjöldi er 38.
  • Gatað fyrir línum.
  • Eyða fyrir upphafsstaf í fremra dálki blaðs 1r.

Ástand

  • Skriftin er máð, einkum á versósíðu.
  • Efri horn skorin af og vantar örlítið af efstu línu textans.
  • Blaðið ber þess merki að hafa verið notað utan um þunna bók. Kjölur bókarinnar hefur verið þversum fyrir miðju blaði.
  • Göt eftir saum á neðri spássíu og þversum fyrir miðju blaði.

Skrifarar og skrift

Með hendi Magnúsar Þórhallssonar, árléttiskrift.

Band

Band frá mars 1959 (246 mm x 199 mm). Pappakápa með línkili, límt á móttak. Í öskju ásamt öðrum AM 567 4to-brotum.

Fylgigögn

  • Fimm fastir seðlar fremst, fjórir með hendi Árna Magnússonar og einn auður. Seðlarnir eru merktir 1-5 og seðlar 4-5 einnig a-b með rauðu bleki.
    • (151 mm x 92 mm) Þetta eru fragmenta úr Fabulosis Islandorum Historiis.
    • (150 mm x 104 mm) Þetta eru fragmenta úr lygisögum íslenskum.
    • (150 mm x 104 mm) Auður seðill.
    • (200 mm x 159 mm) Úr fabula einni, sem ég enn nú ekki fyrir mig kem hver að sé.
    • (164 mm x 106 mm) G[rega] ættaður úr Bretlandi fer að leita að bróður sínum. Hjálpar leoni frá flugdreka, og fylgir það honum síðan. Hjlpar sveini einum.
  • Tveir lausir seðlar með teikningum Morten Grønbechs af ástandi blaðsins og hvernig það hefur verið notað sem band fylgdu við afhendingu.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu AM 567 4to-brotanna liggur í öskju með brotunum.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1390 ( Stefán Karlsson 1970s. 287 ). Kålund tímasetti til síðari hluta 14. aldar ( Katalog I 1889:728 ).
  • Handritsbrotin í AM 567 I-XXVI 4to eru kölluð Fabulosæ Islandorum Historiæ á seðli með hendi Árna Magnússonar sem fylgir XXVI.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. mars 1992.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P5 26. maí 2009 og síðar.

ÞS færði inn grunnupplýsingar 21. nóvember 2002.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. október 1887 ( Katalog I 1889:721-729 (nr. 1415) ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert í Kaupmannahöfn í mars 1959, límt á móttak í pappakápu. Brotin AM 567 I-XXVI 4to eru saman í öskju, utan VI sem sér í spjöldum.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, keyptar af Arne Mann Nielsen í janúar 1978.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Fragment af en ellers ukendt Grega saga
Umfang: s. 201-206
Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Småstykker 3. Til fragmentet af Grega saga,
Umfang: s. 283-284
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Um Vatnshyrnu,
Umfang: s. 279-303
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: The localisation and dating of medieval Icelandic manuscripts, Saga book
Umfang: 25
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Tímarit Háskóla Íslands, Á afmæli Flateyjarbókar
Umfang: 1
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 567 XXVI 4to
  • Efnisorð
  • Riddarasögur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Grega saga

Lýsigögn