„Söguþáttur af Ormi Stórólfssyni“
„Hængur hét maður son Ketils Naumdæla …“
„… og hélt vel trú sína“
og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-26.
Þrjú kver.
Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.
Fyrirsögn með stærra letri og upphafsstafir í nafni pennaflúraðir.
Upphafsstafur (H) feitletraður og pennaflúraður (bl. 1r). Aðrir upphafsstafir kafla feitletraðir.
Band frá árunum 1772-1780 (215 mm x 170 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 698.
Samkvæmt AM 477 fol. átti Harðar saga líka að tilheyra þessu handriti en hana vantar nú.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. nóvember 1977.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.