Skráningarfærsla handrits
AM 465 4to
Skoða myndirSögubók; Íslandi, 1650-1699
![[Glyph image provided by the ENRICH Project via manuscriptorium.com] LATIN SMALL LETTER O WITH CURL](/images/glyphs/e7d3.png)
[Special character shown similar to its original form.]
Innihald
„Hér byrjast Njáls saga“
„Mörður hét maður er kallaður var gígja …“
„… Son Brennu-Flosa var Kolbeinn er ágætastur maður hefur verið í þeirri ætt. “
„Og ljúkum vér þar Brennu-Njáls sögu etc.“
Texti vísna neðarlega á blaði 132v vinstra megin, hefur skaddast þar sem horn blaðsins hefur rifnað af.
„Dróttkveðin vísa“
„… Líti lýða sveitir …“
„… vellærður.“
Í þessari vísu er Sæmundur fróði nefndur höfundur sögunnar. Sjá einnig vísu á blaði 133r.
„Áttmælt“
„Gunnar greitt eg meina …“
„… kýf með stáli hreina.“
Vísa um persónur sögunnar.
Aftan við er fangamark: „HÞ.S.“.
„… ofan tár …“
„… með hlyrnis ljósi góðu“
Vísa með mannsnafni á rúnaletri.
Vísan er óheil. Sjá seðil Árna Magnússonar þar sem hann reynir að endurgera textann.
„… laxa leið …“
„… með hlyrnis ljósi góðu.“
Vísa með mannsnafni á rúnaletri.
Vísan er óheil. Sjá seðil Árna Magnússonar þar sem hann reynir að endurgera textann.
„Lesi bið eg lundur stáls …“
„… á Odda stóð.“
Hér er Sæmundur fróði nefndur höfundur sögunnar. Sjá einnig vísu á blaði 132v þar sem segir sömuleiðis að Sæmundur sé höfundur sögunnar.
Vísan var óheil en Árni Magnússon hefur reynt að endurgera texta vísunnar á pappírsbút sem límdur hefur verið á blaðið.
Lýsing á handriti
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-264; 265 hefur verið bætt við blaðsíðutalið síðar.
Sautján kver.
- Kver I: blöð 1-9, 4 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver II: blöð 10-17, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 18-25, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 26-33, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 34-41, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 42-49, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 50-57, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 58-65, 4 tvinn.
- Kver IX: blöð 66-73, 4 tvinn.
- Kver X: blöð 74-81, 4 tvinn.
- Kver XI: blöð 82-89, 4 tvinn.
- Kver XII: blöð 90-93, 2 tvinn.
- Kver XIII: blöð 94-101, 4 tvinn.
- Kver XIV: blöð 102-109, 4 tvinn.
- Kver XV: blöð 110-117, 4 tvinn.
- Kver XVI: blöð 118-125, 4 tvinn.
- Kver XVII: blöð 126-133, 4 tvinn.
- Ytra horn að neðan af blaði 132 er rifið burt og 1., 3. og 4. vísa eru þar með óheilar. Árni Magnússon reyndi að endurgera textann á innlímdum seðli og sömuleiðis vísu á blaðbút sem límdur er á blað 133r.
- Þegar handritið var sett í núverandi band hefur verið skorið af blöðunum; til þess að skerða ekki spássíugreinar er skorið upp í spássíur í kringum viðkomandi greinar og blaðbúturinn í sinni upphaflegu stærð brotinn inn á blaðið. Þetta má sjá á blöðum 10, 11, 32, 34, 39, 73, 82, 92.
- Á blaði 133v er einkum krot, nöfn (t.d. „Jón Guðmundsdóttir“) og þess háttar.
Band (217 mm x 160 mm x 30 mm) er frá 1911-1913. Spjöld eru klædd brúnyrjóttum pappír, kjölur er klæddur bókfelli. Blár safnmarksmiði er á kili.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti.
Tveir seðlar (við fremsta saurblað) með hendi Árna Magnússonar.
- 1) Seðill (147 mm x 124 mm) með upplýsingum um feril handrits: „Þessa Nials sogu feck eg 1714. i Januario i Kaupenhafn af Monsr Bussens, enn hann hefde hana þä nÿlega feinged af eingum göum vin þar, sem ecki villdi sitt heiti vita läta, enn Bussens sagde, ad sä hinn same eckert fleira þess slags hefde. Mig minner Bussens sagdi mier laungu sidar, ad þesse godur vinr hefde vered Andreas Stud“
- 2) Seðill (192 mm x 147 mm) með endurgerð Árna á vísunum á blaði: „
lyti lyda sveitar
lundar stals og sprundein
halda hyrra valdra
hiarta pryde biarta
ord, verk, athofn styrkua
attalauser vel þrottir
hvad frïdur Sæmundur fradi
færdi i sogu vellerdur.
Ulfens leifar asom tär T ur
eirninn skipaskreyte madr
recka glede og rodullinn klär ä söl
ritad mannsins hvite. laxa leid ös
lä vid ræfur mödu hnikar beid ïs
med hlyrnis liosa gordu söl
“ (sjá blað 132v.).
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 651. Það var áður í sömu bók og Ragnars saga loðbrókar í AM 282 4to.
Árni Magnússon fékk handritið 1714 hjá Bussæus í Kaupmannahöfn, en hann fékk það hjá Andreas Stud (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. apríl 1975.
Aðrar upplýsingar
VH skráði handritið 6. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 13. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. maí 1887.Katalog I; bls. 651-652 (nr. 1237).
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1911-1913.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Jón Þorkelsson | „Islandske håndskrifter i England og Skotland“, Arkiv för nordisk filologi | 1892; 8 (Ny följd 4): s. 199-237 | |
Ludger Zeevaert | „Eine deutsche zusammefassung von Njáls saga im manuskript Rostock Mss. philol. 78/2“, Scripta Islandica | 2018; 69: s. 99-139 |