Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 379 4to

Hungurvaka og Þorláks saga helga ; Ísland, 28. apríl 1654

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-13r)
Hungurvaka
Titill í handriti

Hér byrjar Hungurvöku

Upphaf

Bækling þenna kalla ég Hungurvöku …

Niðurlag

… og þolinmæði bæði við óhlýðna menn og rangláta.

Skrifaraklausa

Anno 1654, 28. aprilis.

Efnisorð
2 (14r-77v)
Þorláks saga helga
Titill í handriti

Hér hefur sögu af hinum heilaga Þorláki biskupi.

Upphaf

Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Anacletus páfi …

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 77 blöð + i (178-180 mm x 145-147 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerkt 1-154, af Jóni Sigurðssyni.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 140 null x 105 null.
  • Línufjöldi er ca 26-27.
  • Leturflötur er afmarkaður þannig að lítil göt hafa verið stungin efst og neðst á innri og ytri spássíu blaða og litlaus lína dregin með oddhvössum hlut á milli gata (sbr. t.d. á blaði 44r).
  • Griporð eru víðast hvar.
  • v á spássíu blaðs 11r til marks um vísu í textanum.
  • Kaflaskil eru tvisvar auðkennd með rauðri fyrirsögn (sjá blöð 20v og 70v); tvær fyrirsagnir eru með grænum lit (sjá 60v-61r).

Skrifarar og skrift

Með hendi Brynjólfs Jónssonar á Efstalandi, textaskrift.

Skreytingar

  • Upphafsstafir eru í bleklit, rauðu og grænu (sjá t.d. blöð 1r, 32v-33r og 37v-38r).

  • Tvær rauðritaðar fyrirsagnir eru annars vegar á blaði 20v og hins vegar á blaði 70v; tvær fyrirsagnir eru með grænum lit (sjá 60v-61r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Ártöl á spássíum (sjá t.d. blöð 6r, og 21r).

Band

Band frá því í júlí 1978(190 mm x 175 mm x 51 mm). Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga, leður á hornum og kili. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Liggur í öskju með eldra bandi.

Band (188 mm x 146 mm x 35 mm) frá átjándu öld eða upphafi þeirrar nítjándu. Pappaspjöld klædd pergametni, leður á kili. Saurblöð fylgja bandinu.

Fylgigögn

Fimm seðlar (fremst og milli blaða 54v-55r og 65v-66r) með hendi Árna Magnússonar:

  • 1) Seðill (176 mm x 147 mm) með upplýsingum um eigendur handritsins: Þorlákur Skúlason á þessa með réttu. 1654 Jón Jónsson á bókina og vel að henni kominn því Guðbrandur Þorláksson gaf honum hana. Pétur Bjarnason á bókina með réttu, og er vel að kominn, anno 1683. Þessa bók hefur undirskrifuðum til eignar fengið sá ættgöfugi höfðingi Pétur Bjarnason anno domini 1688. Guðbrandur Björnsson verte. [m00eia.] Léð hefur virðulegur Guðbrandur Björnsson Helga Ólafssyni þessa bók í umskiptum fyrir aðra sögubók, anno 1688. Til merkis Helgi Ólafsson með eigin hendi (er síðan var prestur að Stað í Hrútafirði). Þessa bók á ég undirskrifaður og hefur mér til eignar fengið Guðbrandur Björnsson á því ári 1688. Magnús Benediktsson.
  • 2) Seðill (143 mm x 138 mm) með upplýsingum um feril: Þessi Hungurvaka stóð aftan við Þorláks sögu, áður en ég lét bókina á ný innbinda. Hún sýnist að hafa verið skrifuð eftir góðu exemplare, og hjálpar vel til að restituera mörg insanabilia loca, so rangt sem hún sjálf er rituð. Verte bókina hefur fyrrum átt herra Þorlákur Skúlason, og er hún rituð 1654. Þessa Hungurvöku þarf ég aldrei aftur að skoða. Ég hefi accurat copiu þar af.
  • 3) Annar seðill með upplýsingum um eignarhald handritsins.
  • 4) Athugagrein Árna við efni á blaði 55r.
  • 5) Athugagrein Árna við efni á blaði 65v-66r.
  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.
  • Á fremra kápuspjald verso hafa verið límdar úrklippur úr eldra bandi. Þar á meðal er skinnpjatla sem á stendur Þorlákur Skúlason á bók þessa með réttu. 1684.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið er skrifað á Íslandi 28. apríl 1654.
  • Hungurvaka stóð upprunalega aftanvið Þorláks sögu og lét Árni Magnússon taka nákvæmt afrit af henni (sjá seðil).

Ferill

Árni Magnússon skrifaði upp nöfn fyrri eigenda af gamla titilblaðinu og þar kemur fram að handritið hefur verið í eigu Þorláks Skúlasonar biskups 1654, Guðbrands Þorlákssonar, Jóns Jónssonar á Hólum 1675, Péturs Bjarnasonar 1683, Guðbrands Björnssonar 1688 (hann lánaði Helga Ólafssyni) og Magnúsar Benediktssonar 1688 (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. maí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • VH skráði handritið 20. mars 2009,
  •  GI skráði 6. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 29. mars 1887, Katalog I> bls. 593-594 (nr. 1131).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í júlí 1978. Fyrra band og hylki fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Haukur Þorgeirsson, Teresa Dröfn Njarðvík
Titill: The Last Eddas on vellum, Scripta Islandica
Umfang: 68
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Nordæla, Athuganir um nokkur handrit Egils sögu
Umfang: s. 110-148
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Höfundur: Fahn, Susanne Miriam, Gottskálk Jensson
Titill: The forgotten poem : a latin panegyric for saint Þorlákr in AM 382 4to, Gripla
Umfang: 21
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Titill: Rit Handritastofnunar Íslands, Laurentius saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Árni Björnsson
Umfang: 3
Titill: , Biskupa sögur II
Ritstjóri / Útgefandi: Ásdís Egilsdóttir
Umfang: 16
Lýsigögn
×

Lýsigögn