Skráningarfærsla handrits
AM 263 fol.
Skoða myndirMáldagabók; Ísland, 1598
Innihald
Máldagabók
Safn eldri og yngri máldaga fyrir hluta af kirkjunum í Skálholtsbiskupsdæmi. Á spássíum eru víða upplýsingar um máldagana.
Lýsing á handriti
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki 1: hjarta með þremur blómum, fangamark BG og kross umvafinn snáki IS5000-02-0263_39v // Ekkert mótmerki ( 3 , 7 , 19 , 25 , 29 , 35-39 , 43 , 47 , 51-53 , 59 , 63-65 , 85 , 89 , 95 , 101 , 107 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki 2: hjarta með þremur blómum, stafur umvafinn snáki og fangamark BG // Ekkert mótmerki ( 31 , 33 , 57 , 69 , 73 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki 3: hjarta með þremur blómum, stafur umvafinn snáki og fangamark BG // Ekkert mótmerki ( 77 , 81 , 97 ).
Blaðsíðumerkt 1-107.
Blöðin fremst og aftast stökk og að hluta til fúin.
- Skrifað á eftirtaldar síður sem upprunalega voru auðar: 43-48, 56, 60, 67-68, 77-78, 81-82 og 89-90.
- Á mörgum stöðum athugasemdir og aðrar viðbætur með hendi Odds Einarssonar Skálholtsbiskups, þ.á.m. uppkast að samningi sem dagsettur er 19. ágúst 1598, á bls. 48.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
- Seðill 1 (195 mm x 119 mm): „Þessa bók hefi ég fengið frá Bæ í Flóa.“
- Seðill 2 (167 mm x 100 mm): „Forte prius scriptura erat xli. pro xii. vel forte xxxx. primo pro xxx. primo. forte M ccc xl. primo.“
Uppruni og ferill
Skrifað 1598 (sjá Katalog I, bls. 239).
Árni Magnússon fékk handritið frá Bæ í Flóa (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. desember 1974.
Aðrar upplýsingar
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1968.
Ljósmyndir gerðar eftir filmu frá því fyrir 1968, af bls. 1-8 og 101-108, sem hafa skaddast í viðgerð(?).
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Ljósmyndir af bls. 1-8 og 101-108 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (fylgdu frá Kaupmannahöfn).
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Íslenzkt fornbréfasafn I. 834-1264 | |||
Einar G. Pétursson | „Kirknaeignir á fjalllendi“, Hulin pláss : ritgerðasafn, | 2011; 79: s. 316-329 | |
Einar G. Pétursson | „Um eignir kirkna og kirkjustaða á heiðum, afdölum og eyjum“, Hulin pláss : ritgerðasafn, | 2011; 79: s. 287-312 | |
Haraldur Bernharðsson | „Gás, gæs og Gásir, Gásar : brot úr hljóðsögu og beygingarsögu“, Orð og tunga | 2006; 8: s. 59-91 | |
Jonna Louis-Jensen | „Nogle ævintýri“, | s. 263-277 | |
Orri Vésteinsson | „Upphaf máldagabóka og stjórnsýslu biskupa“, Gripla | 2008; 23: s. 93-131 | |
Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal | Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II |