Skráningarfærsla handrits
AM 149 fol.
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Gísla saga Súrssonar; NO, 1690-1697
Innihald
Gísla saga Súrssonar
„Saga af Gísla Súrssyni.“
„Það er upphaf á sögu þessi að Haraldur hinn hárfagri réð fyrir Noregi …“
„… og víðara bjó hann á Mýrunum og eru menn frá honum komnir. “
„Er ei fleira frá honum sagt í þessi sögu og lýkur hér nú sögu Gísla Súrssonar.“
Í forriti handritsins hefur verið stór eyða; um það vitna auð blöð inni í handritinu ( sjá blöð 7r-11r).
Lýsing á handriti
- Upprunaleg blaðsíðumerking: 1-95.
- Síðari tíma tölusetning blaða með rauðum lit: 1-48.
- Kver I: 1r-8v, 4 tvinn.
- Kver II: 9r-16v, 4 tvinn.
- Kver III: 17r-24v, 4 tvinn.
- Kver IV: 25r-32v, 4 tvinn.
- Kver V: 33r-40v, 4 tvinn.
- Kver VI: 41r-48v, 4 tvinn.
- Á þó nokkrum stöðum er strikað undir orð eða setningar með rauðum lit (sjá blöð 6r, 12v, 16r, 26, 28v og á fleiri stöðum).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 260 mm x 145 mm.
- Línufjöldi er ca 29-30.
- Innri og ytri spássíur eru afmarkaðar.
- Vísuorð eru sér um línu.
- Með hendi Ásgeirs Jónssonar; fljótaskrift.
- Þormóður Torfason hefur ritað nafn sitt og orðskvið efst á blað 1.
Band (326 mm x 205 mm x 15 mm)
Bókfell er á kili, pappírsklæðning á spjöldum.
Spjöld og kjölur í eldra bandi eru klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
- Seðill(116 mm x 110 mm) (á fremra saurblaði rektó) með hendi Árna Magnússonar: „Frá sálugs Assessor Thormod Torvesons nke 1720.“
Uppruni og ferill
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I, bls. 104, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.
Uppskrift eftir skinnhandriti sem var í Konungsbókhlöðu (sbr. AM 435 b fol., blað 6v). Í því handriti voru auk Gísla sögu: Fóstbræðra saga, Þorsteins saga Síðu-Hallssonar og Hrafns saga Sveinbjarnarsonar. Skyld handrit Gísla sögu eru: AM 761 b 4to, AM 482 4to og NKS 1181 fol. og AM 556 a 4to.
AM 149 fol. var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, blöð 6v-7r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. apríl 1974.
Aðrar upplýsingar
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. nóvember 1885 Katalog I; bls. 104 (nr. 178), DKÞ skráði 27. september 2001, VH skráði samkvæmt TEIP5 reglum 25. nóvember 2008; yfirfór í september 2009; lagfærði í nóvember 2010.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, gerðar af Jóhönnu Ólafsdóttur eftir filmu frá Det kongelige Bibliotek í Kaupmannahöfn.
- Renegatíf filma frá Kaupmannahöfn á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 457).