Nokkrar Íslendingasögur eftir gömlum handritum skrifaðar MDCCLXVII. Endurbætt er bókin 1877 af J.J.S. (1r).
„Fornaldar mjög of fyrnist / frægð og drenglyndis nægðir …“
„Hér 00000 sögu af Kormáki“
„Haraldur kóngur hinn hárfagri réði fyrir …“
„… Þorgils réð fyrir liðinu og var lengi í víkingu.“
„Skrifuð á Flateyju þann 13. febrúarii 1767.“
og lýkur hér þá þessari sögu af Kormáki.
„Oddi Ófeigssyni og Bandamönnum“
„Ófeigur hét maður er bjó í Miðfirði …“
„… hélst vinátta þeirra feðga með góðri frændsemi meðan þeir lifðu báðir.“
Og lýkur hér svo sögunni af Oddi Ófeigssyni og þeim Bandamönnum.
„Vatnsdæla“
„Maður er nefndur Ketill …“
„… að hann var rétttrúaður maður og elskaði Guð.“
Og endum vér þar Vatnsdæla sögu.
„Laxdæla“
„Ketill flatnefur hét maður son Bjarnar bunu …“
„… en þó hefði vel mátt í stórar frásögur færa.“
Og lyktar hér svo Laxdælu.
„Eyrbyggja“
„Maður er nefndur Ketill …“
„… fyr neðan kirkjuna.“
„IX. janúarii MDCCLXIX.“
Og lýkur hér nú sögu Þórnesinga […] og Álftfirðinga.
„Njála“
„Mörður hét maður er kallaður var Gýgja …“
„… Allir vildu fylgja honum og sigla þeir nú suður …“
Vantar aftan af. Textinn endar í 149. kafla (158. kafla miðað við útgáfu Hins íslenzka fornritafélags).
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Bl. 1-10, 77-83, 88, 92-93, 98-99, 116 með hendi J.J.S., sem kann að vera Jóhannes Jónsson á Smyrlhóli, snarhönd.
Bl. 75-76 með annarri hendi, snarhönd.
Nýlegt band (304 mm x 196 mm x 55 mm).
Pappaspjöld klædd ljósu skinni sem fest er með skinnþvengjum.
Saumað með hamptaumi.
Saurblöð tilheyra bandi.
Seðill m.h. Jóns Samsonarsonar með tilgátu um skrifara liggur með handritinu.
Rifrildi úr blaði (103 mm x 40 mm) með textabroti liggur með handritinu.
Handritið var skrifað á Íslandi 1767-1769.
Glötuð eða skemmd blöð skrifuð upp af J.J.S. 1877.
Frá erfingjum Jóns M. Samsonarsonar.
Á frímerktu umslagi sem lá í öskju með handritinu stendur með hendi Jóns Samsonarsonar: „Sendandi. Guðm Baldvinss Hamraendu [svo]“. Neðan við stendur með hendi Einars G. Péturssonar: „Jón Sam. segist hafa fengið hdr. að gjöf eftir lestur um Snóksdalskirkju“ og svo hefur Einar bætt við: „Guðmundur dró það úr altari Snóksdalskirkju“ og segist hann hafa haft það eftir Jóni. Guðmundur var fæddur 1906. Umslagið hefur verið póstlagt í Búðardal 5. maí (?) 1977.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu 1. október 2014.
ÞS skráði í mars 2019.