Skráningarfærsla handrits

SÁM 134

Sögubók ; Ísland

Titilsíða

Fornaldarsögur Norðurlands að nýju uppskrifaðar árið MDCCCLXXXVII (1r).

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1v)
Efnisyfirlit
Titill í handriti

Innihald bókarinnar

2 (2r-29v)
Huldar saga hinnar miklu
Titill í handriti

Sagan af Huld drottningu hinni ríku

Upphaf

Svo er sagt að áður hetjan fékk Sæland af Gylfa …

Niðurlag

… sjö hundruð vetur frá því Huld var á dögum.

Skrifaraklausa

Hvítadal 18. janúar 1888.

Baktitill

Endar þannig sagan af Huld, Hálga og dætrum þeirra Þorgerði og Yrpu.

Athugasemd

Á eftir titli: Nokkuð betri en algenga sagan þó ekki áreiðanlig sem varla er við að búast um svo fornt rit.

Sama saga er einnig til með hendi Guðbrands í SÁM 46, SÁM 65, SÁM 156 og Lbs 4392 4to. SÁM 65 er elst þessara fjögurra handrita en sami texti er í prentaðri útgáfu sem Skúli Thoroddsen gaf út 1909.

2.1 (29v-v)
Um Huldar sögu hinna miklu
Athugasemd

Á eftir sögunni (bl. 29v) er umfjöllun skrifara um hana, m.a. um sannfræði sögunnar.

Greint frá efni hvers kafla sögunnar á bl. 30r-v.

Efnisorð
3 (31r-32v)
Ættartala Egils Skallagrímssonar
Titill í handriti

Ættartala Egils Skallagrímssonar svo langt talin fram í forneskju sem jeg ætla að mögulegt sé, og síðan frá Agli til þeirra manna sem nú lifa

Athugasemd

Ættartalan endar á skrifara, Guðbrandi Sturlaugssyni.

Efnisorð
4 (33r-v)
Ættartala Snorra Sturlusonar
Titill í handriti

Ætt Snorra lögmanns ins fróða …

Efnisorð
5 (34r-133v)
Halldórs þáttur Snorrasonar
Titill í handriti

Saga af Halldóri Snorrasyni og ýmsum mönnum er vóru uppi á sama tíma sem hann í Noregi

Upphaf

Það var á dögum Haraldar Sigurðarsonar …

Niðurlag

… Til Halldórs Snorrasonar geta margir menn talið ætt sína.

Skrifaraklausa

Enduð þriðjudaginn fyrstan í einmánuði, Hvítadal 22. mars 1887. Guðbrandur Sturlaugsson

5.1 (134r-136v)
Ættartala Halldórs Snorrasonar
Titill í handriti

Föðurætt Halldórs Snorrasonar

Skrifaraklausa

Hvítadal 26. mars 1887. Guðbrandur Sturlaugsson

Efnisorð
6 (137r-140v)
Gunnarskvæði
Titill í handriti

Gunnarskvæði kveðið af séra Gunnari Pálssyni í Hjarðarholti er deyði á Reykhólum hjá Ara bónda Jónssyni árið 1791, 77 ára

Upphaf

Getið er um góðan mann / Gunnar einn í Njálu …

Viðlag

Fögur er nú Fljótshlíð …

Niðurlag

… helst því aftur heim réð / en hvergi frá.

Athugasemd

Bl. 141 autt.

7 (142r-176r)
Reimars saga og Fals sterka
Titill í handriti

Sagan af Reimari kóngi og Fal hinum sterka

Upphaf

Vígbald hefur konungur heitið …

Niðurlag

… fleira í letur fært af þeim

Skrifaraklausa

Hvítadal 30. janúar 1887

Baktitill

og endar þannig sagan af Reimari keisara og Fal hinum sterka, fóstbróður hans

7.1 (176r-178v)
Ættartölur fornmanna
Titill í handriti

Fornmannaætt til þeirra manna sem nú lifa talin frá Fornjóti

Efnisorð
8 (179r-213r)
Hellismanna saga
Titill í handriti

Hellismannasaga skrifuð eftir afar gömlu handriti svo nákvæmliga sem hægt var nema böndin uppleyst á Höfða í Dýrafirði í október og nóvember 1881 af Sighvati Grímssyni en þessi saga er skrifuð eftir eiginhandarriti Sighvats.

Upphaf

Kalman og Kýlan hétu bræður tveir í Suðureyjum …

Niðurlag

… var hann kallaður Hrólfur að Ballará

Baktitill

og lýkur hér Hellismannasögu.

Athugasemd

Undir stendur (bl. 213r): Nú er búið að prenta sögu þessa í Ameríku og leggja fræðimennirnir á hana þungan dóm og segja hana samda af Gísla Konráðssyni. Jeg læt hvorn ráða sinni meiningu um það, þó jeg ætli að sagan sé eldri. En satt er það að vísurnar eru sumar ekki góðar, líklega úr lagi færðar. G.S.

8.1 (179r-v)
Formáli fyrir Hellismannasögu
Titill í handriti

Formáli

Upphaf

Hellismannasaga hefir aldrei verið gefin út …

Skrifaraklausa

24 - 11 - 81 Sighvatur Grímsson

Efnisorð
9 (213v)
Rask
Titill í handriti

R. Kr. Rask 1787 - 1832 - 1887

Upphaf

Þú komst þegar Fróni reið allra mest á …

Athugasemd

Nafn skáldins er skrifað undir kvæðinu.

Þrjú erindi.

Efnisorð
10 (214r)
Lausavísa
Höfundur
Upphaf

Mín er lyst í ferðum fyrst …

Baktitill

Jón biskup Arason kvað

Athugasemd

Án fyrirsagnar.

Ein vísa.

Efnisorð
11 (214r)
Lausavísa
Upphaf

Bjarni bjó til húfu …

Baktitill

Gunnar prófastur Pálsson kvað.

Athugasemd

Án fyrirsagnar.

Ein vísa.

Efnisorð
12 (214v)
Lausavísa
Upphaf

Steinunn heitir stoltar kvendi …

Baktitill

Þorleifur lögmaður Pálsson kvað

Efnisorð
13 (214v)
Lausavísa
Höfundur
Upphaf

Sendir voru sextán menn …

Baktitill

Jón biskup Arason kvað

Efnisorð
14 (214v)
Lausavísa
Höfundur
Upphaf

Oddvitinn var ekki frekur …

Baktitill

Hinn sami

Efnisorð
15 (215r-220v)
Ölkofra þáttur
Titill í handriti

Ölkofra þáttur

Upphaf

Þórhallur hét maður, hann bjó í Bláskógum …

Niðurlag

… og hélst það meðan þeir lifðu

Baktitill

og lýkur þar sögu Ölkofra.

16 (221r-234r)
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Titill í handriti

Sagan af Gunnari Keldugnúpsfífli

Upphaf

Þorgrímur hét maður, hann bjó þar sem nú heitir á Hörgslandi …

Niðurlag

… og þóttu það allt vera miklir menn fyrir sér

Baktitill

og lýkur þar þessari sögu.

16.1 (234r)
Athugagrein
Upphaf

Þessi saga er hin vitlausasta af öllum Íslendinga sögum …

Skrifaraklausa

Guðbrandur Sturlaugsson.

Efnisorð
17 (234v)
Ættartölur frá Skjalda-Birni
Titill í handriti

Frá Skjalda-Birni til Vatnsfirðinga

Upphaf

1 Skjalda Björn hét maður …

Efnisorð
18 (235r-249r)
Eiríks saga rauða
Titill í handriti

Söguþáttur af Eiríki rauða og Þorfinni karlsefni á ný uppskrifuð eftir afar gömlum blöðum sem skrifað hefur Gísli skrifari Jóns biskups Vídalíns

Upphaf

Maður er nefndur Ólafur hvíti …

Niðurlag

Þorlákur biskup Runólfsson í Skálholti andaðist árið 1133 var biskup 15 ár.

Baktitill

Og lýkur hér svo þessari sögu af Eiríki rauða.

18.1 (249r-250r)
Athugagrein og ættartölur Þorgils Orrabeinsfóstra og Þorfinns karlsefnis
Upphaf

Framanskrifaður söguþáttur mun ei víða vera að finna …

Niðurlag

… Eftir þessu er jeg 26 maður frá Guðríði Þorbjarnardóttur.

Skrifaraklausa

Guðbrandur Sturlaugsson.

19 (250v)
Ættartala Halls á Síðu
Titill í handriti

Ætt Halls á Síðu má telja langt fram í forneskju og er hún þannig

Upphaf

Hrólfur úr Bergi …

Niðurlag

… en eg 25 maður frá Halli á Síðu.

Efnisorð
20 (251r-261v)
Grænlendinga þáttur
Titill í handriti

Grænlendinga þáttur

Upphaf

Herjólfur hét maður íslenskur …

Skrifaraklausa

Hvítadal 6. febrúar 1886. Guðbrandur Sturlaugsson.

Baktitill

Endar þannig sagan af Grænlendingum og Þorfinni karlsefni.

21 (261r-v)
Rostungsvísur
Titill í handriti

Rostungs vísur

Upphaf

Rostungurinn fór á Frón …

Athugasemd

Undir kvæðinu stendur: Hallgrímur Pétursson höfundurinn, þjóðskáldið góða, besta og þarfasta skáld hér á landi, en það er rangt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 261 blöð + i (202 mm x 160-164 mm).
Tölusetning blaða
Handritið er blaðsíðumerkt af skrifara en ekki í samfellu.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur ca 170 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi 24-27
  • Leturflötur er afmarkaður með blýanti.

Skrifarar og skrift

Með hendi Guðbrands Sturlaugssonar í Hvítadal, snarhönd.

Band

Samtímaband (210 mm x 175 mm x 45 mm).

Bókaspjöld úr pappa, klædd grænleitum pappír, brúnt leður á kili og hornum. Sögubók þrykkt á kjöl. Saurblöð tilheyra bandi. Saurblöð og spjaldblöð úr samskonar pappír.

Bandið er snjáð og slitið einkum á kili og hornum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi á árunum 1886-1887.

Ferill

Skrifari hefur merkt sér handritið með stimpli á bl. 1r: G. Sturlaugsson.

Frá erfingjum Jóns M. Samsonarsonar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu 1. október 2014.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði í febrúar og mars 2019.

Notaskrá

Lýsigögn